Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.1976, Qupperneq 55

Læknablaðið - 01.04.1976, Qupperneq 55
LÆKNABLAÐIÐ 83 félagsins að hafa forgöngu um betri tjáskipti milli læknastéttarinnar og almennings, þannig að skipuð verði nefnd, þar sem kvartanir og önnur vandamál, sem kunna að skapast, verði meðhöndluð.11 „Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn í Reykjavík dagana 4.-6. sept. 1975 ályktar, að hið fyrsta verði komið á skipulagðri framhalds- menntun lækna á Islandi. I því skyni verði bú- in aðstaða fyrir kennslu og vísindastörf við sem flestar heilbrigðisstofnanir og námsstöður stofnaðar við sjúkrahús, heilsugæzlustöðvar og aðrar heilbrigðisstofnanir, sem metnar verða hæfar til að taka að sér slíka kennslu. Telur fundurinn, að sérstaka áherzlu beri að leggja á, að kennslu í heimilislækningum verði komið á án tafar. Tii að tryggja framgöngu þessa máls felur fundurinn stjórninni að hefja hið fyrsta viðræður um málið við læknadeild Há- skóla Islands, menntamálaráðuneytið og heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytið." „Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn í Reykjavík 4.—6. sept. 1975 beinir því til heil- brigðismálaráðs Reykjavíkurborgar, að gerð verði könnun á heilsufari og högum Reykvík- inga 67 ára og eldri. Slík könnun er nauðsyn- legur grundvöllur uppbyggingar stofnana og þjónustu í þágu aldraðra. Auk þess gæti slík könnun orðið upphaf að skipulagðri heilsuvernd aldraðra." All mörgum tillögum frá svæðafélögum var vísað til stjórnar félagsins. LœknataliÖ og bardtta gegn reykingum Bjarni Bjarnason kvaddi sér hljóðs. Ræddi hann Læknatalið og hversu dregizt hefði að gefa það út, þar sem 6 ár hefðu liðið frá því bókin var tilbúin, þar til hún var gefin út. Hefði hann heyrt hjá mörgum, að nýtt „supple- rnent" þyrfti að gefa út. Hefði mál þetta m.a. verið rætt af höfundum læknatalsins, þeim Vilmundi Jónssyni og Lárusi Blöndal. Þá óskaði Bjarni eftir stuðningi aðalfundar við „Samstarfsnefnd til baráttu gegn reyking- um“. Bar hann fram tillögu um þetta efni (sbr. fylgiskj. 38) svohljóðandi: „Vegna hins mikla og geigvænlega vanda, sem stafar af sígarettureykingum, beinir aðal- fundur Læknafélags Islands, haldinn 4.—6. sept. 1975, þeim tilmælum: — til félagsmanna sinna, að reykja helzt ekki utan einkaverustaða sinna, — til þeirra, sem stjórna sjúkrahúsum og öðr- um stofnunum, þar sem læknisfræðileg störf eru unnin, að gera sitt til að starfsfólkið reyki ekki í vinnutíma sínum og að reyk- ingar séu ekki leyfðar á spítalagöngum eða í öðrum vistaverum spítalanna, nema sem sérstaklega eru ætlaðar til reykinga, —■ til kennara, að reykja hvorki meðan kennsla fer fram í skólunum né á umráðasvæði þeirra, — til foreldra, að gaumgæfa vel ábyrgð sína gagnvart börnunum og vernda þau fyrir reykingahættunni með fordæmi sinu: að reykja ekki, — til stjórnar Sjónvarpsins, að hlutast til um, að Þeir, sem koma þar fram, reyki ekki, sé þess nokkur kostur að komast hjá að reykja." Örn Bjarnason vildi sleppa úr síðustu máls- grein tillögunnar: „sé nokkur kostur að kom- ast hjá að reykja“. Snorri P. Snorrason lagði til, að stjórninni yrði fengin tillagan til endurskoðunar m.t t orðalags Var tillagan afgreidd með þeim hætti. Úr ýmsum áttum Snorri^ P. Snorrason kvaddi sér hljóðs og sagði frá_ því, að L.I. ætti rétt á að tilnefna fulltrúa í Nordisk Federation for Medisinsk Undervisning. Lagði hann til, að formaður væntanlegrar stjórnar yrði fulltrúi L.I. þar. Tómas Árni Jónasson taldi ekki rétt, að sami maðurinn væri ávallt kjörinn til að sitja á fundum norrænu nefndarinnar, þar sem mjög mismunandi málefni væru þar til umræðu. Snorri P. Snorrason samþykkti þetta sjónar- mið Tómasar Árna. Snorri kvaddi sér hljóðs og minnti á, að einn starfandi læknir væri ekki meðlimur í L.I. og hefði ekki greitt árgjald til félagsins frá árinu 1970. Beindi hann því til fulltrúa Læknafélags Akureyrar, hvort þessi aðili væri félagi i því félagi. Brynjólfur Ingvarsson taldi sig ekki muna eftir því, að ónefndur aðili væri í viðkomandi svæðafélagi. Snorri P. Snorrason óskaði eftir því, að bók- uð yrði megn óánægja sín og fráfarandi stjórn- ar með háttarlag viðkomandi læknis. Örn Bjarnason lagði áherzlu á, að allir héldu lög félagsins. Allmiklar umræður urðu um mál þetta, þar sem m.a. korn fram, að fundurinn gæti ekki tekið afstöðu til þess, þar sem viðkomandi aðili hefði ekki verið látinn vita af því fyrirfram, að fundurinn fjallaði um mál hans. Fundarritari kvaddi sér hljóðs og óskaði eftir því, að 18. gr. laga L.I. yrði lesin upp, en skv. þeirri grein hefði átt að bera það undir þennan aðalfund, hvaða aðgerðir ætti að við- hafa í sambandi við viðkomandi lækni. Var máli þessu visað til meðferðar næstu stjórnar. Umræður urðu um það, hvort taka ætti fyrir athugasemd Guðmundar Oddssonar um þátt- töku L.I. i B.H.M. Snorri P. Snorrason taldi heppilegast að beina þessu máli til næstu formannaráðstefnu. Guðmundur Jóhannesson vildi ekki, að neitt yrði gert, sem kæmi sér illa fyrir B.H.M., því að þeir hefðu úrslitaáhrif um samningamál Læknafélags Islands. Taldi hann þó ekki eðli- legt, að meðlimir L.I. greiddu fullt framlag til B.H.M., þar sem samtökin bæru ekki sama kostnað vegna L.I. félaga, er semdu fyrir sig sjálfir Fundarstjóri taldi ekki óeðlilegt að skipa nefnd til að kanna málið og vildi vísa því til næstu stjórnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.