Læknablaðið - 01.06.1976, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ
89
Fitusýrusamseitningin var síðan ákvörðuð
á „gas-liquid chromatograph“ með saman-
burði við þekkta staðla. Mynd I sýnir eitt
sýnishorn. Magn hverrar fitusýru var
reiknað með því að margfalda tímann, sem
það tók uns viðkomandi fitusýra kom á
pappirinn („retention time“) með hæð
viðkomandi fitusýrusúlu.2 Þessi aðferð gef-
ur svipaðar niðurstöður og mæling á flatar-
máli hverrar fitusýrusúlu. Niðurstöður ein-
stakra súlna voru síðan lagðar saman og
magn hverrar fitusýru lýst sem hundraðs-
hluta af heildinni. Fylgni endurtekinna
sýna svo og milli sýna, sem tekin voru á
mismunandi stöðum á þjókinn var góð
(100 ± 6%).
Sams konar húðfitusýni voru tekin til
samanburðar frá 15 Lundúnabúum, starfs-
fólki í verksmiðju (bæði verkafólk og
stjórnendur), sem þátt tóku í hóprannsókn
til ákvörðunar á meðalgildum blóðfitu.20
Þessi hóprannsókn sýndi meðalgildi kól
esteróls í blóði fyrir aldurshópinn 40-60
ára 240mg% borið saman við 254mg%
(karlar) í hóprannsókn Hjartaverndar.
Hins vegar var meðalgildi þríglyseríða
124mg%, en 95mg% hérlendis (karlar).14
Var því talið fróðlegt að bera saman fitu-
sýni þessara hópa, ef það kynni að varpa
einhverju Ijósi á orsök þessa mismunar á
meðalgildum kólesteróls og þríglyseríða.
Við tölfræðilegan samanburð var notað
„students t test“.
NIÐURSTÖÐUR
Eins og tafla I sýnir var lítill munur á
meðalfæðusamsetningu þátttakendanna frá
Árnessýslu og Reykjavík og munurinn töl-
fræðilega ómarktækur. Óhætt virðist því
að taka hópana saman í eina heild og var
meðaltal karla- og kvennafæðis reiknað.
Tafla 2 sýnir samanburð á fæðusamsetn-
ingunni 1940 samkvæmt rannsóknum
Manneldisráðs,30 1 9 6 5 samkvæmt búvöru-
reikningum í Hagtíðindum12 og í þessari
rannsókn. Við samanburð á þessum niður-
stöðum ber að hafa í huga, að þessar rann-
TABLE 1
Average consumption per person per day.
Total Protein Fat Carbohydrate
calories G.day % Cals. G.day % Cals. G.day % Cals.
Reykjavik
women (16) 1957 80.1 15.4 95.9 44.1 194.4 39.6
men (13) 2685 115.5 17.6 127.8 42.35 260 40.1
Arnessysla
women (12) 1875 77.3 16.5 79.2 41.2 196.5 42.5
men (16) 2753 119.6 17.5 130.4 42.35 278.4 40.4
Mean/person 2318 98.1 16.4 108.3 42.7 232.5 40.5
TABLE 2
Comparison of average consumption per person in Iceland and in Britain.
Protein % total cals. Fat % total cals. Carbohydrates % total cals.
Iceland
1939-1940 (30) 17.1 39.8 43.1
1965-1967 (12) 18.6 39.1 42.3
1973 16.4 42.7 40.5
Britain (8)
1940 11.1 38.3 50.7
1966 10.7 41.0 47.0
1971 11.6 42.3 46.0