Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.1979, Qupperneq 25

Læknablaðið - 01.04.1979, Qupperneq 25
LÆKNABLAÐIÐ 71 reyndadóma og gildisdóma. Gildisdómar — þ.e. dómar um siðferði, fegurð, hags- muni, o.s.frv. — eru samkvæmt umræddri kenningu algerlega afstæðir og breytilegir frá einum manni til annars; ástæða þessa er sögð vera sú að sameiginlegur mæli- kvarði í þessum efnum sé enginn til. Þessi staðhæfing er röng: Það eru til sameigin- legir mælikvarðar á rétt og rangt, gott og illt, fagurt og ljótt. Ef svo væri ekki, þá væri mönnum ókleift að komast að nokk- urri sameiginlegri niðurstöðu um slík mál og samlíf manna væri ofurselt algeru ger- ræði og ofbeldi. Spurningin er raunverulega ekki um til- veru slíkra mælikvarða — við vitum af hversdagslegri reynslu að slíkir mæli- kvarðar eða reglur eru til — heldur miklu fremur hvort til sé nokkur einn algildur mælikvarði í þessum efnum, eða hvort og þá hvernig menn geta komið sér saman um nokkra örugga mælikvarða; t.d. hvort og þá hvernig menn geti komið sér saman um að það sé réttara að virða mannslíf fremur en eyða því eða öfugt; eða hvort og þá hvernig mönnum sé kleift að komast að því hvað sé rétt að telja heilbrigt líkam- legt ástand manna eða heilbrigt þjóðfélag. Ef hugmyndir manna í þessum efnum eru algerlega breytilegar og afstæðar, þá er öll skynsamleg rökræða út í bláinn. Þá gildir það eitt að drepa aðra eins hratt og örugglega og unnt er, vilji menn koma sínum hugmyndum fram. Ein ástæðan fyrir þessari afstæðiskenn- ingu um gildisdóma er fólgin í þeirri villu að gera ekki greinarmun á staðhæfingum manna um eigin tilfinningar eða hugar- ástand, staðhæfingar sem tjá hvað mönn- um finnst eða hvernig hlutirnir orka á þá, og staðhæfingum um verðmæti eða hags- muni sem eru raunveruleg fyrirbæri, óháð því hvað mönnum kann að finnast við þessar eða hinar aðstæður. Trúlega er ekki til neinn nákvæmur mælikvarði á skammvinnar tilfinningar eins og ótta og reiði, né langvarandi til- finningar eins og ást eða hatur; sama máli gegnir um kenndir sem vakna með mönn- um þegar þeir hlusta á faera tónlist eða horfa á tilkomumikið landslag. Þó höfum við ýmsar leiðir til að leggja rökstutt mat á hugarástand manna, kenndir þeirra og tilfinningar. Ef svo væri ekki, gætum við aldrei vitað neitt um sálarlíf annarra og jafnvel okkar sjálfra. Ef orð og atferði manna birta ekki sálarlíf þeirra væri öll mannþekking og líka sjálfsþekking óhugs- andi. En um þau fyrirbæri sem talin eru verð- mæt eða eftirsóknarverð höfum við vissu- lega mælikvarða vegna þess að slík fyrir- bæri eru hlutlægar staðreyndir sinnar teg- unar: Það er staðreynd að menn þurfa að borða til að lifa, en það er líka staðreynd að einn matur er öðrum betri og það eru raunverulegir hagsmunir manna að borða góðan mat. Dómur um það hvaða matur sé hollari en annar er staðhæfing um staðreynd, og staðreyndin í þessu tilfelli er ákveðið gildi eða verðmæti, þ.e. hollusta. En auðvitað getur matur sem einum er hollur verið öðrum óhollur, og þetta sýnir að gildi mat- arins er háð því hverjum hann er ætlaður. Gildi eru í þessum skilningi afstæð við einstaklingana, en þar með er ekki sagt að staðhæfingar um gildi og verðmæti séu afstæðar í þeim skilningi að þær ráðist algerlega af geðþótta eða huglægu mati manna, til allrar lukku má yfirleitt rök- styðja eða hrekja slíkar staðhæfingar eftir öruggum leiðum. Sama á við um allar staðhæfingar um gildi og verðmæti, sem eru eiginleikar hluta fyrir manninn sem líkamlega, and- lega og félagslega veru í senn. Það þarf flóknar aðferðir til að kanna þessa eigin- leika vegna þess að það þarf að taka tillit til viðhorfa manna og ástands þeirra til að komast að þessum eiginleikum fyrirbær- anna. Af þessu leiðir að mælikvarðar á gildi hljóta að vera annars eðlis en mæli- kvarðar á þýðingarlausar staðreyndir, þ.e. staðreyndir sem eru mönnum einskis virði. Raunverulega hafa allar staðreyndir — þ.e. atburðir eða ástand í heiminum — ein- hverja þýðingu fyrir menn, skipta þá máli með einhverjum hætti. Þetta sýnir að allir staðreyndadómar sem ekki eru um leið gildisdómar, eru sértekningar. Þeir eru dómar um hlutina eins og þeir sjást undir afmörkuðu sjónarhorni þar sem horft er framhjá því hvaða gildi eða þýðingu hlut- irnir hafa í raun. Það er spurning hvort sértekningin sé ávallt réttmæt vísindalega,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.