Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1979, Page 35

Læknablaðið - 01.04.1979, Page 35
LÆKNABLAÐIÐ 75 — upp í andstæðu sína, því að hann heldur því fram, að þar sem enginn leið er til að færa sönnur á hina siðferðilegu forsendu, þá sé einungis „hægt að túlka, hvað í henni felst, og taka því síðan eða hafna, allt eftir því, hvaða afstöðu hver og einn kýs að taka til tilverunnar". (4:95). Og síðar segir hann: Valið stendur um guð og djöfulinn, en hvort er hvor, það er háð endanlegri af- stöðu þess, sem í hlut á; hver maður verður að velja, hvort er lians guð og hvort hans djöfull. Sama á við um öll sviö lífsins. (4:103, síðari undirstrikunin er mín). Hinn siðferðilegi boðskapur Webers er krafa um samkvæmni eða samræmi í skoð- unum og breytni: Fræðimanninum er kleift — og skylt — að segja við yður: „Tiltekin stefna í einstöku máli getur verið í samræmi við og þar með heiðarlegur þáttur í tiltekinni grundvallar- lífsskoðun, kannski fleirum en einni, en samrýmist ekki tilteknum skoðunum öðr- um. Þegar þér takið tiltekna afstöðu, eruð þér, í líkingum talað, að þjóna þessum guði, en styggja hinn. Séuð þér sjálfum yður trú, komizt þér ekki hjá þvi að hafa þetta tiltekna samræmi í skoðunum yðar“. Þessu er hægt að skera úr, eða að minnsta kosti er það ekki útilokað. Því hlutverki gegnir heimspekin sem sérstök fræðigrein og rannsóknir hverrar fræðigreinar á forserd- um sínum, sem í rauninni eru heimspeki- legs eðlis. (4:107-108). Þessi krafa um grundvallarval og sam- kvæmni í skoðunum og breytni minnir á kenningu franska heimspekingsins Jean- Paul Sartre, í fyrirlestrinum Existentíal- ismi er húmanismi.7 Þar reifar hann og rökstyður eftirfarandi skoðun: Hlutirnir hafa ekkert gildi í sjálfu sér, lífið hefur engan æðri tilgang; hlutirnir öðlast gildi og lífið fær tilgang vegna ákvarðana og breytni manna. Þar af leiðir að val hvers einstaklings skiptir eitt öllu máli, á því hvílir allt siðferði og verðmætamat. Ábyrgðin sem þetta val leggur á herðar hverjum einstaklingi er algjör, ekkert get- ur réttlætt valið fyllilega. Valinu fylgir krafa um algera samkvæmni og heilindi, þ.e. að einstaklingurinn axli fyllilega á- byrgðina sem vali hans fylgir — hugsi og breyti í fullu samræmi við eigin ákvarðan- ir og taki afleiðingum gerða sinna, en skjóti sér ekki bak við einhverjar fyrir- fram gefnar reglur eða gildi sem afsökun eða ástæður fyrir vali sínu: Slíkar reglur eða slík gildi eru ekki til fyrirfram, heldur verða til vegna ákvarðana einstaklingsins. 11. LÍFSVIÐHORF OG VÍSINDI Spurningin sem blasir við af þessum vangaveltum sem hér eru hafðar eftir Weber og Sartre er þessi: Hvaða rök ef nokkur höfum við fyrir þeirri skoðun að lífið sé þess vert að því sé lifað? Ef slík rök eru ekki til, hvernig er þá hægt að fallast á að þessi skoðun sé meginsiðferði- lega forsenda læknisfræðinnar? Hvers vegna skyldu menn, þegar öllu er á botn- inn hvolft, virða mannslíf? Ein tilraun til svars við þessum vanda er að finna í ritgerð eftir Albert Camus, Goðsögnin um Sisyfos,8 en bókin hefst á þessum orðum: Það er einungis einn fyllilega alvarlegur heimspekilegur vandi: Það er sjálfsmorðið. Að dæma um það hvort lifið sé vert að því sé lifað eða ekki, það er að svara undir- stöðuspurningu heimspekinnar. Heiti bókarinnar sækir Camus í hina grísku goðsögn um Sisyfos: Guðirnir höfðu dæmt Sisyfos, sem hafði óhlýðnast boðum þeirra, til að velta um allan aldur þungum steini upp á fjallsbrún, en steinninn valt ætíð niður jafnskjótt og upp var komið. Enga refsingu töldu guðirnir meiri en þá að vera látinn vinna algerlega tilgangs- laust verk. En í þessari dæmisögu um hlut- skipti mannsins í heiminum, vill Camus lesa rök fyrir þeirri skoðun að lífið sé þess vert að því sé lifað. Niðurlagsorð hans eru þessi: Ég yfirgef Sisyfos við rætur fjallsins. Mað- ur tekur ávallt kross sinn upp aftur. En Sisyfos ber vitni um æðri trúmennsku sem afneitar guðunum og lyftir steininum. Og hann viðurkennir að allt sé gott. Hinn hús- bóndalausi alheimur virðist honum hvorki ófrjór né tilgangslaus. Sérhvert granitkorn í steininum, hver glitrandi málmsteinsarða í dimmu fjallinu mynda sinn heim. Bar- áttan við að ná upp á tindinn er nóg til að fylla eitt mannshjarta. Maður hlýtur að ímynda sér Sisyfos hamingjusaman mann. Niðurstaða Camus er því sú að lífið sé þess virði að vera lifað, að hlutskipti okkar hafi gildi í sjálfu sér. En þessi niðurstaða er ekki án fyrirvara og ekki fyrirfram gefin. Steinninn gæti reynst einhverjum of þungur. — Er lífið ávallt og fortaks-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.