Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 64
U m s j ó n : J a n u s S i g u r j ó n s s o n . N e t f a n g j a n u s @ d v . i s
&Matur vín
Nokkrar reglur um samsetningu á mat og víni
Með FEITUM mat er gott að vínið sé alkóhólríkt. Vínandinn brýtur niður fituna. Að
sama skapi, sé maturinn léttur, á vínið að vera létt. Ef maturinn er SÚR þarf vínið
líka að vera sýruríkt. SÆTUR matur kallar á sætt vín. Með STERKKRYDDUÐUM
mat á ekki að hafa kröftug vín. Besta mótvægið við sterkt kryddbragð er fremur
létt vín sem er sætt eða ávaxtaríkt. SALTUR matur þarfnast víns sem hefur sætleika
eða mikinn ávöxt eða sýru til að vega á móti saltbragðinu. Með BEISKUM mat er
gott að hafa vín sem hefur sætleika eða góðan ávöxt.
föstudAgur 12. jAnúAr 200764 Helgarblað DV
I
nga Lind Karlsdóttir er mat-
gæðingur vikunnar. Hún ætl-
ar að gefa lesendum uppskrift
að gómsætum flatkökum
sem eru bakaðar fyrir hver jól
í hennar fjölskyldu. Þótt upp-
skriftin sé einföld tekur Inga Lind
fram að kökurnar séu mjög góðar.
„Það sem er mér mjög ofarlega í
huga svona rétt eftir jólin eru flatkök-
ur sem ég baka alltaf fyrir hver jól.
Þær eru ekki neitt sérstaklega jóla-
legar, enda má baka þær hvenær
sem vill. Svona flatkökur voru á sín-
um tíma kallaðar fátækramatur því
það þarf ekki mikið hráefni í þær.
Þetta er gömul uppskrift frá ömmu
og mömmu og hún hefur verið not-
uð í áratugi. Ég verð að taka fram að
ég hef aldrei fengið betri flatkökur.
Það þarf sérstaka pönnu til að
baka kökurnar og pabbi minn smíð-
aði nýja pönnu þegar gamla pann-
an hvarf á einhvern undarlegan
hátt. Pannan sem hann smíðaði er
úr gömlum botni úr eldavél og risa-
stóru skrúfjárni. Ég var svo heppin að
fá pönnuna í fyrirframgreiddan arf
nú fyrir jólin. Á þessari pönnu bak-
aði ég í fyrsta skipi þessar flatkökur
núna fyrir jólin með pabba mínum,
án afskipta frá mömmu, og það gekk
svona ljómandi vel. Flatkökur eru al-
veg sérstaklega góðar með hangikjöti
og jafnvel bara með smjöri og smá
osti. Úr þessari uppskrift er hægt
að ná átján kökum en ég náði
reyndar bara fimmtán. En æf-
ingin skapar meistarann.
UppSKRIFT
l 4 bollar hveiti
l 2 bollar haframjöl
l 2 fullar teskeiðar lyftiduft
l 1 teskeið salt
l sjóðandi vatn
AÐFERÐ
Blandið þurrefnunum í skál og
vætið með sjóðandi vatni þar til deig-
ið er hæfilegt til að hnoða. Kökurn-
ar eru svo flattar út og skornar, til
dæmis er gott að nota matardisk til
að mæla stærðina. Þegar búið er að
skera kökurnar út er pikkað í þær
með gaffli. Best er að baka kökurn-
ar svo á þykkbotna pönnu eða elda-
vélarhellu. Þegar búið er að baka
kökurnar eru þær vættar í sjóð-
andi saltvatni en það er gert
til að þær mýkist.
Inga Lind skorar á
vinkonu sína Þorbjörgu
Helgu Vigfúsdóttur,
borgarfulltrúa og for-
mann leikskólaráðs,
að verða næsti
matgæðingur DV.
Inga Lind Karlsdóttir kann að baka flatkökur:
Matgæðingurinn
Flatkökur á heimagerðapönnu
McGuigan Black Label GTR
Uppruni þess er í Ástralíu, nánar tiltekið í
Hunter Valley. Áferð þess er ljósgul með
grænum blæ og ilmur þess ber keim af rósum
og örlítlu kryddi ásamt sítrus. Bragðið er létt
og ferskt, smá melóna, greip og lime.
Kjörhitastig til drykkjar er 9–11°C og það er
tilbúið eins og það er. GTR stendur fyrir
þrúgurnar Gewurtztraminer og Riesling, það
hentar æðislega sem fordrykkur í veislum
(smá sæta). Svona vín hafa fallið einstaklega
vel í landann sökum þess að þau bera smá
sætu, það kæmi mér ekkert á óvart að þetta
vín yrði vinsælt í saumaklúbbum. Hentar vel
með austurlenskum mat, fiskréttum, þó ekki
of feitum, já og líka með gráðosti.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 1.080 kr.
McGuigan Black Label Shiraz
Nú fjöllum við um annað vín úr Black Label-
línu víngerðarmannsins Brians McGuigan,
100% Shiraz-vín frá Hunter Valley í Ástralíu.
Þetta er meðalbragðmikið vín, kryddað með
pipar, kanil, plómum og svörtum berjum.
Áferðin er mjúk, góð fylling og bragðið ber
keim af karamellu, vanillu ásamt þroskuðum
plómum en einnig kemur smá krydd og sulta
í gegn. Kjörhiti til drykkjar er 16–18°C. Það
hentar einstaklega vel með rauðu kjöti og
mjög gott er að hafa það með grillkjöti, til
dæmis nautapinnum með hvítlauk og
rósmaríni, lambalærissneiðum með sítrus og
timían, en það tónar líka flott með hvítmyglu-
ostum. Vínið er tilbúið til drykkjar.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 1.260 kr.
silfur
Crocodile Rock Merlot/Cabernet
Í þessu frábæra víni er tveimur vinsælum
þrúgum blandað saman og hér gengur það
alveg upp. Vínið kemur frá Murray Valley í
Ástralíu og áferð þess er silkimjúk og rúbín-
rauð. Ilmurinn hefur rauð ber, smá vanillu og
kirsuberjasultu. Það er meðalbragðmikið,
mildur en rauður ávöxtur, þó smá sæta en svo
mjúk og þægileg tannín í endann. Hitastigið
er gott við 16–18°C og það er tilbúið til
drykkjar. Þegar kemur að því að velja gott vín
með grillmat, til dæmis lambakjöti, setjið þá
þetta vín efst á óskalistann, það hreinlega
steinliggur. Einnig má benda á að hafa það
með ostunum eftir góða máltíð, nú eða bara
eitt og sér á síðkvöldi, við kerti og góða bók.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 1.190 kr.
Brons
Áströlsk vín við allra hæfi
gull
Rísottó
með graskeri
og chorizo-
pylsum (fyrir fjóra)
l 1 lítið hokkaido- eða
butternut-grasker
l ¼ dl ólífuolía
l 1 stór laukur, saxaður smátt
l 2 hvítlauksrif, pressuð
l 300 g rísottógrjón (Arborio)
l 2 dl hvítvín
l 1 l kjúklingasoð
l 50 g smjör
l 100 g parmesanostur, rifinn
l salt og pipar
l 8 litlar chorizo-pylsur
l skrælið og skerið graskerið í
tvennt, takið kjarnann úr með
skeið. skerið helminginn í litla
báta, penslið þá með ólífuolíu
og bakið í 180°C heitum ofni
í 20 til 25 mínútur, eða þar til
þeir eru mjúkir. Maukið þá í
matvinnsluvél og geymið þar
til síðar.
l steikið laukana í olíu í potti
þar til þeir eru mjúkir. setjið
grjónin út í og hrærið stans-
laust í eina mínútu. Bætið vín-
inu út í og hrærið þar til næst-
um allt vínið er gufað upp.
Hellið þá 2 dl af kjúklingasoði
út í. Hrærið þar til að grjónin
hafa drukkið í sig næstum all-
an vökvann. Endurtakið þar til
að grjónin eru seigfljótandi,
en samt ekki of lin. Bætið gras-
kersmaukinu út í ásamt smjöri
og ostinum, smakkið til með
salti og pipar.
steikið chorizo-pylsurnar í smá
olíu og berið fram með rísottó-
inu.
AxEL óSKARSSoN
skrifar: axelo@visir.is
DV mynd Stefán