Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 10
föstudagur 16. mars 200710 Fréttir DV
Samkvæmt bókhaldi Byrgisins,
sem DV fékk í hendur, greiddi Guð-
mundur Jónsson fyrir lóðir sínar
í Grímsnes- og Grafningshreppi
með peningum heimilisins. Um er
að ræða afborganir í júní árið 2005.
Samtals nemur upphæðin 241 þús-
und krónum. Einnig má sjá í bók-
haldinu að Byrgið greiddi af láni
fyrirtækisins Úrím og Túmmím en
það er í eigu Guðmundar og fyrr-
um starfsmanns Byrgisins. Alls var
skuldastaða Byrgisins í júní-júlí
2005, tæpar fjórar milljónir.
Guðmundur Jónsson fyrrver-
andi forstöðumaður Byrgisins
heldur því fram að hann hafi greitt
lóðirnar sex í Grímsnes -og Grafn-
ingshreppi með reiðufé. Hann seg-
ist hafa borgað um tvær milljónir
fyrir þær. Samkvæmt því plaggi sem
DV hefur undir höndum greiddi
Byrgið af lóðunum. Alls er um þrjár
afborganir að ræða á einum mán-
uði, samtals 241 þúsund krónur. Í
bókhaldinu kemur þó fram að búið
sé að endurgreiða að minnsta kosti
rúmar 121 þúsund krónur ennþá
vantar um helming upp á reiknis-
skil.
Úrím og Túmmím
Í bókhaldinu kemur einnig fram
að Byrgið hafi borgað af endur-
greiðsluláni fyrirtækisins Úrím og
Túmmim. Fyrirtækið er í eigu Guð-
mundar Jónssonar og Jóns Arn-
arrs Einarsson, fyrrum starfsmann
Byrgisins. Í bókhaldinu stendur
ennfremur að Byrgið hafi borgað
220 þúsund króna lán fyrir fyrir-
tækið. Einnig kemur fram að lánið
hafi verið endurgreitt til Byrgisins.
Fyrirtækið er eignarhaldsfélag sem
sér um eignir Guðmundar. Þar á
meðal þær sex lóðir sem hann seg-
ist hafa borgað fyrir með reiðufé.
Alls eru lóðirnar 17 hektarar.
Efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra hefur kyrrsett fyrirtækið
og allar eignir Guðmundar og Jóns
ásamt eignum Magnúsar Einars-
sonar sem starfaði eitt sinn í Byrg-
inu.
Hár launakostnaður
Laun Guðmundar í júní er hálf
milljón króna. Sérstakt greiðslu-
kort sem stílað er á hann í bókhald-
inu, sýnir auk þess að hann hafi eytt
tæpri hálfri milljón á þessum mán-
uði. Einnig er greiðslukort stílað á
Byrgið sjálft. Útgjöld á því korti eru
rúm ein milljón króna. Þá er reikn-
ingur vegna Rarik óvenjulega hár
en hann telur tæpar 200 þúsund
krónur. Svo er Orkuveitureikning-
ur upp á tæpar 140 þúsund krónur.
Reikningarnir eru undarlega háir
miðað við mánaðaruppgjör. Það
má hugsanlega útskýra það með
því að skuldirnar séu uppsafnað-
ar en búið er að borga 65 þúsund
krónur inn á Orkuveitureikning.
Ríkið borgar brúsann
Tekjur Byrgisins eru talsvert
minni en útgjöld. Ríkið styrkir það
mest eða um 2,2 milljónir króna. Þá
sést 125 þúsund króna styrkur frá
Högum en fyrirtækið var í tengsl-
um við Bónus vegna matarkaupa.
Fangelsismálastofnun greiðir 150
þúsund krónur, vegna samstarfs
Fangelsismálastofnunar og Byrg-
isins um að leyfa föngum að ljúka
afplánun á heimilinu. Byrgið áætl-
ar svo vistgjöld á vistmenn en það
er rétt rúm milljón. Með því koma
engar frekari skýringar. Því er ljóst
að innkoma heimilisins var tæp
þrjár og hálf milljón í júní árið
2005. Útgjöld þess voru rétt tæpar
fjórar milljónir.
Óljós sök
Lögfróðir menn sem rætt var við
segja óljóst hvort það sé ólöglegt að
færa fé á milli fyrirtækja líkt og bók-
hald Byrgisins sýnir. Einn nefndi þó
að það væri afar óeðlilegt.
Efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra rannsakar málið en all-
ar eignir Guðmundar sem og fyrir-
tækjanna Úrim og Túmmim hafa
verið kyrrsettar. Verðmæti þeirra
eigna sem hafa verið kyrrsettar
nema um 37,9 milljónum króna.
Ástæðan fyrir kyrrsetningu er að
tryggja að eigunum verði ekki kom-
ið undan ef til skaðabótkröfu kem-
ur á hendur Guðmundi Jónsyni.
Samkvæmt bókahaldsgögnum sem DV komst yfir greiddi Byrgið
niður lóðir Guðmundar Jónssonar, fyrrum forstöðumanns Byrg-
isins. Alls nemur upphæðin 241 þúsund krónum. Einnig greiddi
Byrgið, samkvæmt bókhaldinu, niður lán fyrirtækis sem er í
eigu Guðmundar og fyrrum starfsmanns Byrgisins.
valuR gReTTisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Keypti lóðir með Byrgisfé
Laun Guðmundar
í júní er hálf millj-
ón króna. Sérstakt
greiðslukort sem stíl-
að er á hann í bók-
haldinu, sýnir auk
þess að hann hafi eytt
tæpri hálfri milljón á
þessum mánuði.
guðmundur Jónsson Heldur því
fram að lóðirnar hafi ekki verið
greiddar með fé Byrgisins.
Heimili guðmundar Jónssonar Húsið sem
guðmundur Jónsson býr í er byggt á lóð sem
Byrgið greiddi að minnsta kosti þrívegis af.