Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Blaðsíða 16
föstudagur 16. mars 200716 Fréttir DV Alþjóðlegar stofnanir telja að spilling sé afar lítil hér á landi og gefa landinu hæstu einkunn. Innan stjórnkerfisins eru margir á öðru máli og benda á að þótt mútur og mútuþægni sé óveruleg hér á landi sé spilling af öðrum toga umtalsverð og tengist fyrirgreiðslu stjórnmála- manna, frændhygli, stöðuveitingum og jafnvel óbeinum mútum. Samkvæmt mælingum upp- lifir íslenskur almenningur sífellt meiri spill- ingu. DV varpar ljósi á valdið og spillinguna. Sterk einkenni spillingar Mútur og mútuþægni er sú tegund spilling- ar í stjórnmálum og viðskiptum sem alþjóðleg- ar stofnanir leggja fyrst og fremst mat á. Í ár- legri könnun sem Transparency International stofnunin birti seint á síðasta ári kemur fram að meðal nærri 160 þjóða upplifa aðeins Finn- ar minni spillingu en Íslendingar. Hins veg- ar upplifir íslenskur almenningur sífellt meiri spillingu í viðskiptum. Á skalanum 1 til 5 gaf al- menningur spillingu í viðskiptalífinu einkunn- ina 2,8 árið 2004, 3,0 ári síðar og 3,4 árið 2006, en einkunnin 5,0 táknar mikla spillingu. Ísland er eftirlegukind þegar kemur að því að auka gagnsæi í stjórnmálum og varpa ljósi á tengsl stjórnmála og viðskiptahagsmuna. Eftir áralangt þjark náðu stjórnmálaflokkarn- ir þó samkomulagi seint á síðasta ári um nýja löggjöf um fjármál stjórnmálaflokkanna. Mútur og mútuþægni er refsivert brot hér á landi sem annars staðar í siðmenntuðum löndum. Jón Ormur Halldórsson dósent við Háskólann í Reykjavík er meðal þeirra sem bent hefur á að þótt slík brot séu fátíð hér á landi sem annars staðar á Norðurlöndum sé ekki þar með sagt að íslenska þjóðin sé laus við spillingu. Þvert á móti telur Jón Ormur að hér viðgangist klíkuskapur og spilling í stjórnmál- um sem tengist ekki síst stöðuveitingum og fyr- irgreiðslu. Enn eru einkenni klíkustjórnmála svo sterk hér á landi að reglulega þurfa skattgreiðendur að greiða nokkurn herkostnað vegna málaferla sem spretta upp af ólögmætum athöfnum ráð- herra við embættisveitingar eða eða starfslok. Með fullum rétti má í dag skilgreina pólitískar stöðuveitingar sem spillingu, þegar og þar sem skýrt er kveðið á um það í lögum að þær skuli lúta faglegum leikreglum. Jón Ormur gengur svo langt að segja að pólitískrar stöðu- og emb- ættisveitingar séu dýr og landlæg spilling og umfangsmeiri hér á landi en í ná- grannalöndunum. Mútur og mútuþægni Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og frambjóðandi flokksins fyrir þingkosningarnar í vor, er líkast til eini stjórn- málamaðurinn á síðari árum sem tekið hefur út refsingu fyrir mútuþægni í opinberu starfi. Aðrir embættismenn hafa þó misst starf sitt vegna óreiðu, fjárdráttar eða fjármálaspilling- ar. Í byrjun mars árið 2003 sakaði Davíð Odds- son, þáverandi forsætisráðherra, Jón Ásgeir Jó- hannesson, forstjóra Baugs, um að hafa ætlað að bera á sig 300 milljóna króna mútur. Unnt er að skoða ummæli Davíðs sem tilraun til þess að dreifa athygli manna frá óþægilegum frétt- um af viðbúnaði stjórnar Baugs gegn hugsan- legum aðgerðum stjórnvalda gegn fyrirtækinu. Engu að síður undrast menn enn þann dag í dag að ekki skyldi umsvifalaust hafin lögreglu- rannsókn á því hvort eitthvað væri hæft í svo al- varlegum ásökunum af hálfu forsætisráðherra. Fullyrðingar Jóns Baldvins Hannibalssonar á síðasta ári um að sími hefði verið hleraður á skrifstofu hans, þegar hann gegndi embætti utanríkisráðherra snemma á síðasta áratug, voru á hinn bóginn rannsakaðar. Niðurstaða rannsóknarinnar varð sú að ekki væri tilefni til ákæru og enginn lægi undir grun um þátttöku í slíkum símhlerunum. Þótt umrædd hlerunarrannsókn hafi sætt gagnrýni er það grundvallaratriði í þessu sam- hengi, að fullyrðingar um ólöglegt athæfi voru rannsakaðar, ólíkt því sem upp á teningnum var í Bolludagsmáli Davíðs Oddssonar. Bankaleyndin breyti- leg Í fróðlegu uppgjöri Guðna Þórðarsonar í Sunnu eru birt gögn sem benda sterklega til þess að Seðlabankinn, ráðherrar og Flugleiðir hafi með margvísilegum og kerf- isbundnum hætti reynt að knésetja flugrekst- ur og ferðaskrifstofuumsvif Guðna á áttunda áratugnum. Vilmundur Gylfason skrifaði í Vísi 19. desember 1975: „Getur verið að almenn- ingi finnist það eðlilegt, sjálfsagt og kurteislegt, sem fram kom í Þjóðviljanum fyrir nokkru, að skömmu áður en samgönguráðherra, Halldór E. Sigurðsson, svipti helsta keppinaut Flug- leiða ferðaskrifstofuumboði, þá þáði hann lúx- usreisu til Bahamaeyja í afmælisgjöf frá Flug- leiðum? Finnur enginn skrítna lykt?“ Áður óbirt minnisblöð Brynjólfs Ingólfsson- ar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í samgöngu- ráðuneytinu, benda til þess að koma Seðla- bankans að málefnum Sunnu og Viking Air hafi verið bæði óvenjuleg og óeðlileg. Til að mynda virðist sem bankaeftirlit Seðlabankans hafi látið samgönguráðherra í té upplýsingar um viðskipti Sunnu og Alþýðubankans sem bankaleynd hvíldi yfir að lögum. „Bankaleynd Seðlabankans var breytileg eftir því hver átti hlut að máli.“ Frásögn Guðna er frásögn af því hvernig stjórvöld og embættis- og valdamenn í banka- kerfinu reyndu að knésetja rekstur hans í þágu Flugleiða, en einnig Sambands íslenskra sam- vinnufélaga og dótturfélaga þess. Stafnbúar Sjálfstæðisflokks Litlar upplýsingar hafa komið fram um mútuþægni stjórnmálaflokka eða tilraunir fyr- irtækja til þess að múta þeim. Til skamms tíma var bókhald þeirra með öllu lokað almenn- ingi. Ein heimild er þó til um tilraun- ir Sjálfstæðisflokksins til að „skatt- leggja“ fyrirtæki. Í bók Einars Kárasonar um kaupsýslumann- inn Jón Ólafsson, Jónsbók, segir á einum stað: „Auð- vitað má segja að Jón og félagar hafi verið að safna glóð- Á meðan alþjóðlegar stofnanir segja að Ísland sé laust við spillingu, upplifir almenningur æ meiri spillingu í stjórnmálum og viðskiptum. Mútur eru sjaldgæfar hér, en stöðuveitingar eru oft á tíðum pólitískar fremur en faglegar. Jóhann Hauksson varpar ljósi á málið. Jón OrMur HalldórSSOn „Við höfum ótrúlega mikinn áhuga á persónum en lítinn áhuga á prinsippum.“ Árni JOHnSen Árni er eini íslenski stjórnmálamaðurinn sem dæmdur hefur verið fyrir mútuþægni á síðari árum. BOlludagSMÁlið fullyrðingar davíðs Oddssonar um að Baugs- menn vildu bera á sig fé voru aldrei rannsakaðar. mútur og mútuþægni er talinn alvarlegastur glæpa í stjórnmálum. Hleranir fullyrðingar Jóns Baldvins Hannibalssonar um að sími hans hafi verið hleraður þegar hann var utanríkisráðherra voru rannsakaðar. Ekkert kom út úr rannsókninni. Blekkingin mikla um óspillt íslensk stjórnmál
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.