Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Blaðsíða 11
DV Fréttir föstudagur 16. mars 2007 11 Það var á fimmtudaginn fyr- ir rúmri viku sem lögreglan kom heim til Guðmunds í Byrginu og gróf bakgarðinn hans upp. Grunur lék á að hann hefði spillt sönnun- argöngnum með því að grafa þau í garði sínum nærri rotþró. Sjálfur segir Guðmundur að ekkert hafi fundist. Rannsóknarlögreglan á Selfossi neitar að gefa upp hvers- vegna grafið var í garðinum eða hvort eitthvað hafi fundist. „Ég gaf rannsóknarlögreglu- manninum bara vindil á meðan við fylgdumst með uppgreftrin- um,“ sagði Guðmundur um við- brögð sín þegar garðurinn var grafinn upp en rannsókn á málum hans og fjármálum Byrgisins hafa staðið yfir síðan í nóvember síð- astliðinn. Þá var gerð stjórnsýslu- úttekt á heimilinu sjálfu. Henni var vísað til ríkissaksóknara til frekari rannsóknar. Alls hafa sjö konur kært Guðmund fyrir kynferðisbrot en hann neitar því statt og stöðugt. Búið er að taka skýrslur af þeim öllum að sögn Guðmundar. Kyrrsettar eignir „Við kyrrsettum eigur Guð- mundar til að tryggja hugsanlegar skaðabætur,“ sagði Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra, í viðtali við DV. Alls voru kyrrsettar eignir að verðmæti 37,9 milljónir króna. Um er að ræða sex sumarbústaðarlóðir valur grettisson blaðamaður skrifar: valur@dv.is Rannsókn ByRgisins Rannsókn á máli Byrgisins er langt því frá að vera lokið. Rannsóknarlög- reglan á Selfossi gróf upp garðinn hjá guðmundi Jónssyni, fyrrum for- stöðumanni Byrgisins í síðustu viku. Grunur lék á að hann hefði spillt sönnunargögnum. Bókhald Byrgisins sem DV fékk í hendur sýna einnig að heimilið greiddi afborganir af lóðum Guðmundar í Grímsnesi og Grafn- ingshreppi. Hann hefur hingað til neitað því að lóðirnar hefðu verið borg- aðar af Byrginu. Sjálfur segist hann hafa greitt fyrir þær með reiðufé. F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð fréttir Mánudagur 12. Mars 2007 dagblaðið vísir 20. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235 Ofleikur >> Voru átök milli stjórnarflokkanna ekki raunveruleg og oflék Framsókn í andstöðunni við Sjálfstæðisflokk?. fréttir dv mynd GÚndI BLS. 4 Traustið endurheimt BLS. 23 >> Verð á myndlist hefur hækkað eftir öldudal í kjölfar málverkaföls- unarmálsins. BLS. 6 Lægstu laun væru mikið hærri >> Hefði almennt launafólk notið sömu hækkana og alþingis- menn væru lægstu laun fimmtungi hærri en þau er nú. rannsókn Byrgismálsins eykst stöðugt og tugir hafa verið yfirheyrðir: LöGreGLan Gróf í GarðI Guðmundar Prentað í morgun Íþróttir helgarinnar - búin smárri gröfu mætti lögreglan að heimili guðmundar Jónssonar í Byrginu og gróf upp garðinn vegna gruns um að guðmundur hefði grafið sönnungargögn. guðmundur segir ekkert hafa fundist. lögreglan segir ekkert. sjá bls. 7 MENNiNG DV-SPOrt >> DV-Sport er stærra nú en áður. Allar íþróttir, allt það helsta er að finna í blaðinu í dag. NBA-leikir næturinnar er líka í DV- Sport í dag. F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjudagur 13. mars 2007 dagblaðið vísir 21. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235 fréttir Þrengir að Mugabe fólk Prentað í morgun Geta grætt tugi milljóna Fatalína Madonnu að lenda í H&M DV Sport þriðjudagur 13. mars 2007 15 Sport Þriðjudagur 13. mars 2007 sport@dv.is HK undirbýr sig af krafti fyrir fyrsta tímabil félagsins í efstu deild Allt um leiki næturinnAr í nbA deildinni í nótt á bls. 18. Federer tapaði Fyrir Canas Óvænt úrslit litu dagsins ljós í annari umferð Indian Wells mótsins í tennis á sunnudaginn þegar efsti maður heimslistans, Roger Feder- er, tapaði fyrir Argentínumanninum Guillermo Canas í tveimur settum, 7- 5 og 6-2. Canas er í 60. sæti heims- listans. Federer átti möguleika á að vinna Indian Wells mótið í fjórða sinn í röð. Hann hafði unnið 41 leik í röð fram til þessa en síðast tapaði Federer í ágúst gegn Bretanum Andy Murray. Fed- erer var eingöngu fimm sigrum frá metinu en metið á Argentínumaður- inn Guillermo Vilas sem vann 46 leiki í röð á sínum tíma. Federer sagði þó að tilhugsunin um að setja nýtt met hafi ekki truflað hann að þessu sinni. „Það var alls engin pressa því ég tek einn leik fyrir í einu. Ég hef áhyggjur af því að tapa fyrir minni spámanni. Tapið sýnir bara hversu erfitt þetta er. Ég átti í vandræðum frá byrjun hér í dag. Fyrsti leikurinn er alltaf erfiður, en ég hef verið í frábæru formi, ég hef ekki tapað fyrsta leik á móti í rúmlega tvö ár. Ég er mjög ánægður með það. Það hlaut að koma að þessu fyrr eða síðar og það er allt í lagi,“ sagði Federer. Þetta var fyrsti leikur hans á mótinu. Federer hélt upp á það í síðasta mánuði að hafa setið á toppi heims- listans í 161 vikur í röð og bætti þar með þrjátíu ára gamalt met Banda- ríkjamannsins Jimmy Connors. „Það er frábært að vinna efsta mann heimslistans, mér líður æðis- lega. Þetta var alltaf draumur, en ég bjóst ekki við þessu. Ég er fullur sjálfstrausts núna en þetta verður erf- itt,“ sagði Canas. Canas hefur hæst náð áttunda sæti heimslistans árið 2005. Hann snéri aftur á tennisvöllinn í septemb- er í fyrra eftir að hafa afplánað fimm- tán mánaða keppnisbanni vegna lyfjanotkunar. dagur@dv.is Óvænt úrslit í nbaGolden state stöðvaði siGurGönGu dallas Margrét Lára sló markametið DV-sport fylgir AllAr eignir guðmundAr kyrrsettAr LögregLan hefur hert rannsókn ByrgismáLsins: - lögreglan kyrrsetur eignirnar til að mæta hugsanlegum skaðabótum. sjá bls. 9 dv mynd gúndi Lánin lækka ekki >> Lán verða ekki fyrir áhrifum vegna breytinga á vaski og vörugjaldi. >> Andstaða við forsetann vex innan hans eigin flokks. >> Eigendur Gullnám- unnar fundu góða gullnámu í Mjóddinni. eignir kyrrsettar fyrirtækið Úrím og túmmim var kyrrsett í vikunni ásamt eignu guðmundar og fyrrum starfsmanna Byrgisins. Guðmundar, bíll, hús og fleira. Þá var fyrirtæki í hans eigu og fyrrum starfsmanns Byrgisins einnig kyrr- sett. Það er fyrirtækið Úrím og Túm- mim. Það er í raun eignarhaldsfélag sem heldur utan um þær eignir sem Guðmundur á. Meðeigandi hans heitir Jón Arnarr Einarsson, hann var starfsmaður í Byrginu. Einn- ig voru eignir annars starfsmanns, Magnúsar Einarssonar, kyrrsettar. Hann segist hafa átt tuttugu prósent í félaginu en er fyrir allnokkru bú- inn að segja úr félaginu. Það gerði hann eftir að mál Byrgisins komust í hámæli. Sjálfur segist Magnús hafa staðið í þeirri trú að eitt félag yrði stofnað í kringum hverja eign. Í ljós kom að allar eignirnar heyra undir Úrím og Túmimm. endurgreiddi vistina Í vikunni voru fyrrum starfs- menn boðaðir í skýrslutöku hjá rík- isskattstjóra. Þeim var tilkynnt að þeir bæru stöðu sakbornings í þeirri skýrslutöku. Ástæðan mun vera fé sem lagt var inn á reikninga þeirra af reikningum Byrgisins. „Yfirleitt voru þetta endur- greiðslur vegna vistarinnar,“ seg- ir Guðmundur spurður um skatt- rannsóknina á vistmönnunum. Hann segir að þegar vistmenn hafi ekki lokið meðferðinni hafi Byrgið endurgreitt þeim það fé sem þeir borguðu þegar þeir voru lagðir inn. Hann segir að þetta hafi yfirleitt ver- ið lágar fjárhæðir en vistin kostaði í kringum fimmtíu þúsund krónur á mánuði. Að auki segir Guðmundur að það hafi komið fyrir að lagt hafi verið inn á reikninga fólks þegar það var beðið um að kaupa nauðsynja- vörur fyrir meðferðarheimilið. segir guðmund ljúga „Guðmundur lýgur öllu,“ fullyrð- ir Magnús um ummæli Guðmundar um að vistmenn hafi fengið vistina endurgreidda þegar þeir yfirgáfu ókláraða meðferð. Að sögn Magn- úsar var engum endurgreidd vist- in eftir að viðkomandi fór úr henni. Hann segir að Guðmundur hafi lagt fé inn á reikninga fólks og heldur því fram að í raun sé verið að ljúga launum upp á fólk. „Þegar hann lagði launin inn á fólkið sagði hann það vera blessun frá guði,“ segir Magnús sem kann honum litlar þakkir fyrir að draga sig inn í þetta. Ekki er ljóst hvað er satt í þessum efnum en hitt er ljóst að Guðmund- ur lagði fé inn á vistmennina. saumaði leðurgrímur „Ég fór nokkrum sinnum með Guðmundi í Hvítlist,“ segir Magnús Einarsson, fyrrverandi starfsmaður Byrgisins. Efnahagsbrotadeild hef- ur spurt fyrrverandi starfsmenn og vistmenn á Byrginu af hverju Guð- mundur Jónsson í Byrginu hafi átt svona mikil samskipti við fyrirtæk- ið. Það selur bæði pappírsvörur og leður. Að sögn Magnúsar keypti Guð- mundur leðurskinn og fleira en hann vill meina að tilgangurinn hafi verið sá að búa til svipur og leðurgrímur. Svo virðist sem einka- neysla Guðmundar hafi blandast við fjármál Byrgisins. Hann neitar þó fyrir það og hefur ávallt neitað að hann stundi bindi- og drottnun- arleiki. undarlegt bókhald Bókhald Byrgisins, sem DV komst yfir, sýnir að Byrg- ið borgaði þrjár greiðslur af lóðum Guðmundar í Grímsnesi og Grafn- ingshreppi. Hingað til hefur hann haldið því fram að hann hafi borg- að lóðirnar með eigin reiðufé. Einn- ig kemur í ljós þegar bókhaldið er skoðað að Byrgið borgaði af end- urgreiðsluláni fyrirtækisins Úrím og Túmmím, sem er í hans eigu og Jóns Arnarrs Einarssonar. Í bókhaldinu má einnig finna óvenjuhá hita- og rafmagnsreikn- inga. Laun Guðmundar á með- an hann starfaði í Byrginu var hálf milljón króna á mánuði. Að auki hafði hann eigið greiðslukort til umráða. Í bókhald- inu, sem telur yfir mánuðinn júní til júlí árið 2005, kemur fram að kortareikningur hans var tæp hálf milljón en reikningur heimilisins sjálfs var rúm milljón. Efnhags- brotadeild ríkislögreglustjóra rann- sakar málið. ekki í gæsluvarðhald „Það hefur ekki reynst þörf á að hneppa Guðmund í gæsluvarð- hald,“ segir Jón Hrafnsson rann- sóknarlögreglumaður sem rann- sakar mál Guðmundar í Byrginu. Aðspurður hvort Guðmundur hafi spillt sönnunargögnum vildi hann sem minnst segja. Jón segir rannsókn langt komna en þegar er búið að taka skýrslur af konunum sjö og öllum starfsmönn- um Byrgisins. Sjálfur segist Jón ekki vera bú- inn að telja saman hversu margir hafa verið kallaðir til, en þeir skipta tugum. Ekki er ljóst hversu langan tíma rannsóknirnar taka en það er þó ljóst að þær eru verulega viða- miklar. grófu upp garðinn hans guðmundar dV sagði frá því fyrr í vikunni að lögreglan á selfossi gróf í garði guðmundar Jónssonar í Byrginu. guðmundur Jónsson Bendir á holuna þar sem lögreglan leitaði sönnunargagna í síðustu viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.