Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Blaðsíða 62
föstudagur 16 . mars 200762 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
sunnudagurLaugadagur
5
10
8
15
10
10
3
3
35
3
3
2
0
1
2
5
5
44
5
7
7
10
8
13
8
13
77
7
6
5
4
6
4
5
3
67
Köld helgi framundan
“Ekki er að sjá að vetri sé að ljúka,
öðru nær því nú fer veður kólnandi.
Um helgina úr útlit fyrir að frost verði
um allt land og það fer vaxandi eftir
því sem frá líður. Frostið verður hvað
mest á mánudag, víða 5-10 stig, en
hlýrra loft úr suðvestri væntanlegt í
kjölfarið,” segir Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur.
Hann segir lægðirnar nú bíða í
röðum og svo sé að sjá sem ein skjót-
ist nokkuð hratt til austurs yfir sunn-
anvert landið á laugardag.
“Ef svo fer sem flest bendir jú til,
má fastlega gera ráð fyrir því að það
geri hálfgert hríðarveður um tíma
sunnan- og suðvestanlands. Síðan
snýr hann sér til norðurs og á sunnu-
dag verður éljagangur á landinu, en
þó léttara yfir sunnantil og harðnandi
frost eins og áður segir.”
Einar segir sér sýnist á öllu að það
verði vetrarfærð á landinu eins og
þeir kalla það hjá Vegagerðinni og því
betra að kynna sér aðstæður áður en
lagt er í hann.
“Auðvitað
er engin ófærð
á landinu,
eins og þegar
hér eru alvöru
snjóavetur. En
snjór og élfa-
gangur skapa
hálku svo ekki
sé talað um
blindu vegna
skafrennings,” segir Einar Svein-
björnsson.
Óðinn snorrason starfaði sem ljónatemjari í dýragarð í Barce-
lona. Hann segir starfið hafa verið skemmtilegt þó so hann hafi
þjáðst af kattaofnæmi, sem er heldur óvenjulegt í þeirri atvinnu-
grein. Óðinn er nú fluttur heim til Íslands og segist vera hættur
afskiptum af kattardýrum:
Óðinn Snorrason er eini Íslending-
urinn sem vitað er um, sem hefur
starfað sem ljónatemjari, en þá iðju
stundaði hann í heilan áratug í dýra-
garðinum í Barcelona á Spáni. Fyrir
nokkrum árum síðan lennti Óðinn í
slysi hér á Íslandi og neyddist hann
í kjölfarið til þess að leggja svipuna
á hilluna. Þegar Óðinn skráði starfs-
heiti sitt í símaskránna, fékk hann
ekki að heita ljónatemjari, þar sem
hann starfaði ekki lengur sem slíkur.
Óðinn er því skráður sem fyrrverandi
ljónatemjari. Á skrifstofu Já feng-
ust þær upplýsingar að fólk geti ekki
skráð starfsheiti nema það geti sýnt
fram á það hafi raunverulega starfað
við það. Í tilviki Óðinns, varð hann
því að bæta „fyrrverandi,” á undan
starfsheiti sínu.
„Ég bjó í Barcelona í nokkur ár
og starfaði þar í dýragarðinum. Ég
hef alltaf haft gaman af kattardýrum.
Áhuginn kviknaði þegar ég var ungur
og fékk að ganga með tveimur ljóns-
ungum sem voru á Sædýrasafninu
hér á landi”
Tuktaði ljónin með svipu
Óðinn viðurkennir að starf ljónat-
emjara geti verið hættulegt. Þegar
fólk lendir í hrammi og klóm ljóns-
ins geti það verið banvænt. „Ég fékk
enga sérstaka kennslu eða námskeið
í ljónatamningu. Ég fékk bara svipu í
hendurnar og svo tuktaði þau til með
henni. Ég lennti aldrei í neinni hættu
í kringum ljónin, enda geta þau líka
orðið vinir manns.”
Hann segir að umgengni við ljón
sé ekki ýkja ólík því að umgangast
heimilsketti. „Ljón eru bara stór-
ir kettir, munurinn felst aðallega í
stærðinni, þau geta verið algjörar
kisur” segir hann.
Vinnudagurinn í dýragarðinum
fólst þó ekki alfarið í því temja ljón í
sérstöku gerði með svipu. „Ég þurfti
náttúrulega að sinna fílunum mjög
mikið. Það þurfti alltaf að vera að
fóðra þá, enda éta þeir heil ósköp.
Ég gaf þeim tvo fulla poka af eplum á
dag, þeir svoleiðis úða þessu í sig.”
Hættur afskiptum af
kattardýrum
Óðinn viðurkennir að hann
sakni þess stundum að temja
ljón, en ef hann myndi ein-
hvern tíman snúa aftur í brans-
ann, þá myndi hann vilja prufa
tígrisdýr. “Ég myndi vilja prófa
eitthvað nýtt. Tígrisdýrin eru bæði
stærri, öflugri og grimmari. Það væri
miklu meiri áskorun að takast á við
þau,” segir hann, en Óðinn er með
þann hvimleiða ókost að þjást af
kattarofnæmi. Hann segir þó að of-
næmið hafi ekki aftrað sér í starfi.
“Ljónshárin eru mun grófari en katt-
arhárin og fara því ekki eins mikið í
mig.” Við komuna heim til Íslands
gat Óðinn því ekki fengið sér kisu,
en í staðinn fékk hann sér lítinn og
sætan púðlu hund og kirkislöngu,
enda mikill áhugamaður um hvers-
kyns dýr. „Slangan hvarf frá mér fyr-
ir nokkrum árum síðan og hunds-
greyið dugði mér þar til hann dó líka.
Þannig að núna er ég ekki með nein
dýr. Ætli ég sé ekki hættur afskiptum
af kattardýrum fyrir fullt og allt. Þetta
er komið gott.”
valgeir@dv.is
Ritstjórn: 512-7010
Dreifing og áskriftir: 512-7005
Auglýsingar: 512-7005
Fréttaskot: 512-7010
512-1700
DV hefur fengið nýtt símanúmer
Fyrrverandi ljónatemjari
er með kattaofnæmi
Óðinn snorrason starfaði sem
ljónatemjari í Barcelona í nokkur ár.
Hann segir ljónin geta verið ágæta vini
manns, en þau geti þó verið mjög varasöm.
Í dagsins önn
Hrifin af dómaranum
Sjónvarpsþulan Ellý Ármanns
hefur bæst í hóp þeirra sem farn-
ir eru að blogga
og stendur sig
bara ágætlega.
Að undanförnu
hafa karlmenn
verið mikið
til umræðu á
blogginu hjá
Ellý og þannig
lofar hún t.d.
Dr. Gunna í hástert og segist
myndi kjósa hann færi hiklaust
í framboð. Ellý er einnig hrifin
af Davíð Þór Jónssyni dómara
í Gettu Betur og segir að þar sé
ekki endilega löðrandi kyn-
þokki á ferð heldur eitthvað allt
annað og betra. „Það er ekkert
meira sexý en þegar menn hafa
húmor, eru vel lesnir og eru enn
ekki komnir á það stig að vera of
uppteknir af eigin mikilfengleika
. Kannski erum við svona hrifn-
ar af honum því hann er með
öll svörin á hreinu!,“ segir Ellý
orðrétt á bloggsíðu sinni ellyar-
manns.blog.is
Viðurkenni mistök
Kristinn H. Gunnarsson, einn
frjálslyndasti þingmaðurinn og
þingmaður
Frjálslynda
flokksins lét
ráðherra heyra
það við eldhús-
dagsumræð-
ur á Alþingi á
miðvikudag-
inn var. Hann
gagnrýndi
ónefnda ráðherra fyrir að hylma
yfir þau mistök sem stjórnvöld
gerðu með stuðning við inn-
rásina í Írak. „Þeir tóku ranga
ákvörðun en brestur kjark til þess
að viðurkenna það,“ sagði Krist-
inn og lagði áherslu á að ráðherr-
arnir yrðu að ganga alla leið og
biðja íslensku þjóðina afsökunar
á framferði sínu.
Ekkert stuð
Jakob Frímann Magnússon, fyrr-
verandi Samfylkingarmaður mun
ekki taka sæti á
lista Aflavka, Ís-
landsflokksins,
Íslandshreyf-
ingarinnar, fylk-
ingarinnar eða
hvað svo sem
framboð Mar-
grétar Sverr-
isdóttur og
Ómars Ragn-
arssonar kemur til með að heita.
Þar er skarð fyrir skildi því fáir
eru betur tengdir og kunna út-
breiðslufræðin betur en einmitt
Jakob stuðmaður Magnússon.
Leikarar fagna
Leikararnir hjá Þjóðleikhúsinu
sem tóku þátt í uppsetningu leik-
ritsins Leg, gerðu sér glaðan dag
á laugardaginn
var og fengu sér
bjór á Boston.
Leikritið er eftir
Hugleik Dags-
son og hefur
slegið í gegn fyr-
ir óforskamm-
arlegan húmor.
Þar er engum
hlíft og jafnvel fjallkonan sjálf er
tekinn til bæna í sýningunni. Ekki
fylgdi þó sögunni hvort hegðun
leikaranna hefði verið jafn gróf á
barnum Boston líkt og í sýning-
unni. Né hvort Fjallkonan sjálf
hefði verið tekinn til bæna þá nótt.
...Hildi Völu Einarsdóttur að búa í
Vesturbænum. Hildur Vala á það
sameiginlegt með...
...aðalheiði Ólafsdóttur, að hafa
tekið þátt í Idol. aðalheiður á það
sameiginlegt með...
...Matthíasi Matthíassyni að hafa
tekið þátt í söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva.
Matthías á það sameiginlegt
með...
...guðrúnu gunnarsdóttur,
söngkonu og dagskrárgerðar-
konu, að hafa farið með hlutverk í
söngleiknum “Jesus Christ
superstar”. guðrún á það
sameiginlegt með...
...Páli Magnússyni útvarpsstjóra
að starfa hjá ríkisútvarpinu. Páll
Magnússon á það sameiginlegt
með...
...Árna Johnsen að vera frá
Vestmannaeyjum. Árni Johnsen á
það sameiginlegt með...
...Eiríki Haukssyni að hafa kennt
börnum. Eiríkur Hauksson á það
sameiginlegt með...
... siv Friðleifsdóttur, heilbrigðis-
ráðherra að tala norsku reiprenn-
andi. siv á það sameiginlegt
með...
...Einari Bárðarsyni að hafa prýtt
forsíðu dV á síðasta ári.
Tengsl
Einar Bárðarson
á það sameiginlegt með...