Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Blaðsíða 41
Starfsferill
Ómar Þorfinnur Ragnarsson fæddist
í Reykjavík 16.9. 1940. Hann ólst upp
í foreldrahúsum, lauk stúdentsprófi
frá MR 1960 og stundaði nám í lög-
fræði við HÍ 1961-64.
Ómar lék eitt af aðalhlutverkun-
um í Vesalingunum hjá LR 1953, lék
þrisvar í Herranótt 1958-60 og lék
nokkur hlutverk við Þjóðleikhúsið og
hjá LR í Iðnó 1953-69.
Ómar hefur verið skemmtikraftur
frá 1958, fyrst að aðalstarfi 1962-69,
síðan að aukastarfi frá 1969. Hann
skemmti með Sumargleðinni 1971-
85, hefur skemmt í ýmsum þjóðlönd-
um og var fulltrúi Íslands í norræn-
um skemmtiþætti í Finnlandi 1967.
Ómar hefur samið fjölda texta
og laga og sungið inná fjölda hljóm-
platna frá 1960 en vel á fjórða hundr-
að textar eftir hann hafa verið sungn-
ir inná hljómplötur og diska.
Ómar var íþróttafréttamað-
ur 1969-76, ritstjóri Dagskrár 1970,
fréttamaður og dagskrárgerðarmað-
ur hjá Sjónvarpinu 1976-88, frétta-
maður og dagskrárgerðarmaður hjá
Stöð 2 1988-95 og síðan aftur hjá
Sjónvarpinu frá 1995.
Ómar keppti í hlaupagreinum
með ÍR 1958-64, var drengjameistari
Íslands í 100 m. og 200 m. hlaupi og
boðhlaupi 1958 og keppti í meistara-
flokki í knattspyrnu með Ármanni
1970. Hann sigraði í góðaksturkeppni
BFÖ 1963, 1969 og 1970, keppti í rall-
akstri 1975-85, varð Íslandsmeistari
í rallakstri 1980-82 og 1984, ásamt
bróður sínum Jóni, sem var aðstoð-
armaður hans. Ómar vann átján röll
af þrjátíu og átta sem hann keppti í
1977-85, þar af öll mót sem Renault-
bifreið þeirra bræðra keppti í 1981.
Ómar tók einkaflugmannspróf
1966 og atvinnuflugmannspróf 1967.
Hann var flugkennari hjá Flugskóla
Helga Jónssonar og Navy Aeroclub
á Keflavíkurflugvelli 1969 og vann
Frambikarinn í flugkeppni 1970.
Fjölskylda
Ómar kvæntist 31.12. 1961 Helgu Jó-
hannsdóttur, f. 25.11. 1942, forstöðu-
konu við félagsmiðstöð hjá Reykja-
víkurborg. Foreldrar Helgu voru
Jóhann Jónsson, f. 1901, d. 1950, vél-
stjóri á Patreksfirði, og kona hans,
Lára Sigfúsdóttir, f. 1903, d. 1972,
húsmóðir.
Börn Ómars og Helgu eru Jón-
ína, f. 29.4. 1962, kennari í Reykjavík,
gift Óskari Olgeirssyni vélvirkja og
eiga þau fjögur börn; Ragnar, f. 21.9.
1963, byggingafræðingur í Reykja-
vík, kvæntur Kristbjörgu Clausen
söngkonu og eiga þau tvo syni; Þorf-
innur, f. 25.10. 1965, upplýsingafull-
trúi hjá Norrænu þróunarhjálpinni
í Sri Lanka og á hann tvo syni; Örn,
f. 22.11. 1967, búsettur í Reykjavík;
Lára, f. 27.3. 1971, fréttamaður við
Kompás á Stöð 2, búsett í Mosfells-
bæ, gift Hauki Ólafsssyni tölvufræð-
ingi og eiga þau fimm börn; Iðunn, f.
8.10. 1972, kennari í Mosfellsbæ, gift
Friðrik Sigurðssyni kennara og eiga
þau fjögur börn; Alma, f. 9.9. 1974,
kennari og skrifstofumaður hjá Flug-
leiðum og á hún einn son.
Systkini Ómars eru Edvarð Sig-
urður, f. 4.8. 1943, kennari í Mosfells-
bæ, kvæntur Jóhönnu Magnúsdóttur
skólastjóra; Jón Rúnar, f. 12.12. 1945,
framkvæmdastjóri og rallökumaður
í Reykjavík, kvæntur Petru Baldurs-
dóttur; Ólöf, f. 16.6. 1948, kennari,
búsett í Kópavogi, gift Ólafi Jóhanni
Sigurðssyni vélvirkja; Guðlaug, f.
20.8. 1951, húsmóðir í Stokkhólmi í
Svíþjóð, gift Sigurjóni Leifssyni mat-
reiðslumanni; Sigurlaug Þuríður, f.
17.7. 1964, listfræðingur í Reykja-
vík en maður hennar er Jóhann Vil-
hjálmsson málari.
Foreldrar Ómars voru Ragnar Eð-
varðsson, f. 24.6. 1922, d. 2002, bakari
og síðar borgarstarfsmaður í Reykja-
vík, og kona hans, Jónína Rannveig
Þorfinnsdóttir, f. 16.9. 1921, d. 10.4.
1992, kennari og húsmóðir.
Ætt
Ragnar var bróðir Gunnlaugs, föð-
ur Gísla Ágústs, lektors í sagnfræði.
Ragnar var sonur Eðvarðs, bakara-
meistara í Reykjavík Bjarnasonar,
formanns í Reykjavík Gíslasonar.
Meðal systkina Eðvaðs voru Anna,
kona Erlends Þórðarsonar, prests
í Odda, og Sigríður, móðir Bjarna
Jónssonar listmálara.
Móðir Ragnars var Sigurlaug
Guðnadóttir, b. á Óspaksstöðum
í Hrútafirði Einarssonar, og Guð-
rúnar Jónsdóttur. Meðal systkina
Sigurlaugar voru Einar, prófast-
ur í Reykholti, faðir Bjarna, fram-
kvæmdastjóra Byggðarstofnunar, og
Guðmundar, forstjóra Skipaútgerð-
ar ríkisins. Annar bróðir Sigurlaugar
var Jón, prestur og skjalavörður, fað-
ir rithöfundanna Guðrúnar, Ingólfs,
Torfa og Eiríks.
Jónína var dóttir Þorfinns, múr-
ara í Reykjavík, bróður Guðbrands á
Prestbakka, föður Ingólfs, forstjóra og
söngstjóra, föður Þorgerðar kórstjóra
og Rutar fiðluleikara. Þorfinnur var
sonur Guðbrands, b. á Orustustöðum
Jónssonar, b. í Efri-Vík Þorkelssonar.
Móðir Jóns var Málfríður Bergsdótt-
ir, prests á Prestabakka Jónssonar, og
Katrínar Jónsdóttur, eldprests Stein-
grímssonar. Móðir Þorfinns var Guð-
laug, ljósmóðir Pálsdóttir, b. á Hörgs-
landi Stefánssonar, og Ragnhildar
Sigurðardóttur.
Móðir Jónínu var Ólöf, systir
Bjarna, hugvitsmanns á Hólmi Run-
ólfssonar, bróður Þorsteins, afa Jó-
hannesar Kjarval og Eiríks Sverris-
sonar, sýslumanns, langafa Eggerts
Briem í Viðey, föður Eiríks, fyrrv. for-
stjóra Landsvirkjunar.
DV Ættfræði föstudagur 16. mars 2007 41
Framvegis mun DV birta tilkynning-
ar um stórafmæli, afmælisbörnum
að kostnaðarlausu. Tilkynningarnar
munu birtast á ættfræðiopnunni
sem verður í helgarblaði DV á föstu-
dögum. Með stórafmælum er hér átt
við 40 ára, 50 ára, 60 ára, 70 ára, 75
ára, 80 ára, 85 ára, 90 ára, 95 ára og
100 ára afmæli.
Þær upplýsingar sem hægt er að
koma á framfæri í slíkum tilkynning-
um eru nafn afmælisbarnsins, fæð-
ingardagur þess og ár, starfsheiti,
heimilisfang, nafn maka, starfsheiti
maka, nafn barna (án fæðingardags,
starfsheitis eða maka), nafn foreldra
afmælisbarnsins og tilkynning um
gestamóttöku eða önnur áform varð-
andi afmælisdaginn.
Á hverjum föstudegi verða birtar
slíkar tilkynningar um þá sem eiga
afmæli á föstudeginum sem blaðið
kemur út á til fimmtudags í vikunni
á eftir. Þannig verða tilkynningarnar
um afmæli á sjálfum útgáfudeginum
og næstu viku fram í tímann.
Senda skal afmælistilkynningar á
netfangið kgk@dv.is. Tilkynningarn-
ar verða að berast blaðinu eigi síðar
en kl. 15 á miðvikudegi. Það er afar
brýnt að þeim fylgi skýr andlitsmynd
af afmælisbarninu.
AfmælistilkynningAr á ættfræðisíðu
Maður VIKuNNar
Ómar Ragnarsson
fjölmiðlamaður og skemmtikraftur
Ómar Ragnarsson hefur í ýmis
horn að líta þessa dagana. Hann
vinnur nú að nýju framboði til Al-
þingiskosninganna í vor, ásamt
ýmsum þekktum einstaklingum.
Framboðið mun leggja áherslu á
náttúruvernd þó það verði eng-
an veginn framboð eins málefnis,
eftir því sem Ómar hefur látið hafa
eftir sér. Auk þess leikur Ómar
stórt hlutverk í söngleiknum Ást
sem frumsýndur var í Borgarleik-
húsinu sl. laugardag.
Ómar Ragnarsson Líklega hefur enginn einn maður lagt meira af mörkum en Ómar ragnarsson við að kynna fyrir landsmönnum íslenskar náttúruperlur. DV mynD SteFán
Veisla í miðborginni
Veislukompaníið er alhliða veislu- og
fundaþjónusta, nýr og spennandi valkostur
í miðborginni. Þú gengur að fyrsta flokks
húsnæði með öllum tæknibúnaði, frábærum
veitingum og þjónustu á besta stað í bænum.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is