Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Blaðsíða 37
Í huga kynslóðar þess sem þetta
skrifar er Hlemmur ekki beint há-
menningarlegur staður. Þar sátu á
árum áður illa þokkaðir pönkarar
sem sniffuðu lím og stungu öryggis-
nælum í eyrnasneplana á sér. Maður
norpaði frekar úti undir húsvegg eft-
ir strætó en að hætta sér inn á yfir-
ráðasvæði leðurklæddra, ógreiddra
stjórnleysingjanna. En þetta er liðin
tíð og Hlemmur minnir orðið meira
á hlýlegt bókasafn en alræmda bið-
stöð. Við Hlemm er líka starfrækt
barna- og unglingaleikhús - Mögu-
leikhúsið.
Góður andi
Það er notalegt að koma í Mögu-
leikhúsið við Hlemm. Andrúms-
loftið er afslappað, jafnvel þótt fyrir
dyrum sé frumsýning og það er ein-
hver heimilislegur andi sem svífur
þar yfir vötnum. Rýmið er ekki stórt
og sviðið mjög nálægt áhorfendum,
sem sitja þétt og salurinn er fullur af
fólki á öllum aldri. Sýningin er jafn-
framt einföld, leikarar aðeins þrír og
leikmynd þess eðlis að án mikilla
tilfæringa er hægt að breyta ólgu-
sjó í þéttan skóg og Oddakirkju í
fjós. Pétur Eggerz er höfundur leik-
ritsins og leikur jafnframt aðalhlut-
verkið, en hann hefur verið iðinn
við að setja upp sýningar fyrir börn
og unglinga undanfarin 17 ár. Með
önnur hlutverk fara Bjarni Ingvars-
son og Alda Arnardóttir. Aðrir sem
koma að sýningunni eru Þórhallur
Sigurðsson, leikstjóri, Guðni Franz-
son, Messíana Tómasdóttir og Ólaf-
ur Pétur Georgsson.
Sígildar þjóðsögur
Leikritið um Sæmund fróða
byggir á sígildum þjóðsögum og
bók Njarðar P. Njarðvík, Púkablístr-
unni - en sögurnar af Sæmundi og
viðskiptum hans við Kölska eru
bráðskemmtilegar, eins og allir vita
sem þekkja þjóðsögurnar. Í verkinu
er því lýst hvernig hinn fróðleiks-
fúsi Sæmundur fer utan til náms í
Svartaskóla, þar sem sjálfur Kölski
er lærimeistari. Þar er jafnan niða-
myrkur og „gott að bækurnar séu
skrifaðar með glóandi eldletri“, eins
og Sæmundur bendir áhorfend-
um á. Kölski á með réttu þann sem
síðastur gengur út úr skólanum, en
Sæmundur leikur á hann og upp
frá því reynir Kölski án árangurs að
komast yfir sál hans. Í sýningunni
er svo farið yfir þekktustu sögurnar
af Sæmundi og viðskiptum þeirra
Kölska - sem alltaf enda á einn veg;
Sæmundi tekst með klókindum að
vefja sjálfum myrkrahöfðingjanum
um fingur sér.
Sýningin er stórskemmtileg og
til fyrirmyndar að kynna menning-
ararfinn fyrir börnum með þessum
hætti, en Möguleikhúsið hefur áður
meðal annars sett upp Völuspá. Um
þessar mundir er þar líka sýnt leikrit
Péturs, Langafi prakkari, sem bygg-
ir á sögum Sigrúnar Eldjárn. Næsta
verkefni Möguleikhússins er svo Að-
venta Gunnars Gunnarssonar, sem
líklega verður frumsýnt í desember.
gudmundurp@dv.is
Menning
Stefán Jóhann Boulter
Nú stendur yfir sýning Stefáns Jóhanns Boulter í Gallery Turpentine.
Stefán Jóhann er fæddur í Reykjavík 6. júní 1970. Hann lærði
myndlist í Montagnana og Flórens á Ítalíu og Al Collins Graphic
School í Arizona í Bandaríkjunum. Einnig var hann aðstoðarmaður
og nemi hjá Odd Nerdrum, bæði í Noregi og á Íslandi árin 2001-2004.
Stefán hefur haldið einkasýningar á Íslandi, í Noregi, Danmörku og
Bandaríkjunum og tekið þátt í samsýningum á Íslandi, í Færeyjum,
Danmörku og Noregi. Sýningin stendur til 24. mars.
DV Menning föstudagur 16. mars 2007 37
Bæjarbíó í Hafnarfirði sýnir eina eftirlætismynd Hilmars Oddssonar, Oh, Lucky Man:
Kolsvartur, hápólitískur húmor
Kvikmyndin Oh, Lucky Man, eft-
ir Lindsey Anderson verður sýnd
annað kvöld í Bæjarbíói í Hafnar-
firði. Hilmar Oddsson kvikmynda-
gerðarmaður valdi myndina á dag-
skrá Kvikmyndasafns Íslands ásamt
tveimur öðrum myndum; Speglin-
um eftir Tarkovsky og Farþeganum
eftir Antonioni. Hilmar segir allar
þessar myndir hafa haft mikil áhrif
á sig. „Ég sá allar þessar myndir á
unglingsárum mínum, þær eru frá
mismunandi löndum og hreyfðu
mjög við mér á sínum tíma. Þær
höfðu í rauninni þau áhrif að mig
langaði að verða kvikmyndagerðar-
maður,“ segir hann. Hilmar hefur
séð Spegilinn og Farþegann oft síð-
an, en Oh, Lucky Man hefur hann
ekki séð aftur, fyrr en nú.
„Mig langaði svo að sjá hana aftur
að ég valdi hana á listann, minning-
in er svo sterk og góð að ég er mjög
spenntur að sjá hvort hún stendur
undir væntingum.“ Oh, Lucky Man
er frá árinu1973 og meðal leikara
eru Malcolm McDowell, Ralph Ri-
chardson og Helen Mirren. Hilmar
segir myndina mjög einkennandi
fyrir breska kvikmyndagerð á þess-
um tíma. „Þetta er mjög bresk sat-
íra, alveg kolsvartur, hápólitískur
húmor og það eru alveg rosalegar
senur í þessari mynd - alveg geggj-
aðar senur. Hún minnir svolítið á
A Clockwork Orange að því leyti að
hún kemur svolítið óþægilega við
kauninn á manni.“ Tónlist leikur
stórt hlutverk í myndinni, en hún er
eftir Alan Price sem þá var í hljóm-
sveitinni Animals og naut titillagið
Oh, Lucky Man til að mynda mikilla
vinsælda. Sýningin fer, sem fyrr seg-
ir, fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði ann-
að kvöld og hefst kl. 20.
Hilmar Oddsson „Þessar myndir höfðu
þau áhrif að mig langaði að verða
kvikmyndagerðarmaður“
Nýr geisladisk-
ur Ísafoldar
Kammersveitin Ísafold hefur
nýverið tekið upp sínu fyrstu
plötu, sem gefin er út af 12
Tónum. Á plötunni er m.a. verk
eftir Hauk Tómasson, verð-
launahafa tónlistarverðlauna
Norðurlandaráðs 2004. Verk
hans á plötunni var samið
sérstaklega fyrir Ísafold og
frumflutt síðasta sumar á
tónleikaferð hljómsveitarinnar.
Árið 2005 var sveitin ásamt
stjórnanda sínum, Daníel
Bjarnasyni, tilnefnd til Íslensku
tónlistarverðlaunanna sem
bjartasta vonin í flokki sígildrar
tónlistar. Hljómplatan fæst í
öllum betri tónlistarverslunum
landsins.
Endurreisn í
Kristskirkju
Kammerkórinn Carmina flytur
Requiem eða Sálumessu eftir
spænska endurreisnartónskáld-
ið Tomás Luis de Victoria í fyrsta
sinn á Íslandi á tónleikum í
Kristskirkju 17. og 18. mars.
Victoria var fremsta tónskáld
Spánverja á 16. öld og sálumess-
an var hans mesta meistaraverk.
Auk sálumessunnar mun
Carmina flytja verk sem tengjast
sálumessum eftir endurreisnar-
tónskáldin Cristóbal de Morales
og Josquin des Prez. Kammer-
kórinn Carmina var stofnaður
sumarið 2004 með það að
markmiði að flytja kórtónlist
endurreisnarinnar á Íslandi. Á
tónleikunum í Kristskirkju munu
fjórir söngvarar úr BBC Singers,
The Tallis Scholars og Westmin-
ster Abbey-kórnum í Lundúnum
slást í lið með félögum í
Carminu. Stjórnandi á tónleik-
unum er Árni Heimir Ingólfsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 báða
dagana.
Vilborg les
ljóð
Á morgun kl. 16 mun Vilborg
Dagbjartsdóttir lesa eigin ljóð í
Borgarbókasafni, Tryggvagötu
15. Tilefnið er opnun á
myndlistarsýningu Kristínar
Þorkelsdóttur í Artóteki, en þar
sýnir Kristín meðal annars
portrettmynd af Vilborgu. Fyrsta
ljóðabók Vilborgar var Laufið á
trjánum sem kom út árið 1960
og var hún þá ein af fáum
konum sem skrifuðu atómljóð.
Á síðasta ári kom út eftir
Vilborgu bókin Fugl og fiskur:
ljóð og sögur handa börnum.
Ljóð Vilborgar hafa birst í
erlendum safnritum og
tímaritum á fjölda tungumála.
Helga í hvítu
Möguleikhúsið frumsýndi í vikunni leikrit Péturs Eggerz um Sæmund fróða.
Í verkinu eru þjóðsögur af viðskiptum Sæmundar og Kölska í forgrunni.
Þjóðlegt
Möguleikhús við Hlemm
Einföld sýning
Þrír leikarar fara með öll hlutverkin í sæmundi fróða.
Pétur Eggerz
Hefur verið iðinn við að setja upp sýningar fyrir börn og unglinga