Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Síða 13
DV Fréttir föstudagur 16. mars 2007 13 Ali Abdul Herz, 26 ára Majdal Selem í Líbanon 2006 Ali sneri aftur í húsið sitt daginn sem samið var um vopnahlé í Líban- on, 14. ágúst á síðasta ári. „Ég varð mjög hissa að sjá húsið mitt enn standandi þannig að ég gekk hratt til þess að komast heim aftur. Ég sparkaði í eitthvað og það sprakk, ég vissi ekki hvað það var en ég held að það hafi sprungið í smá fjarlægð frá mér. Það var pollur af blóði þar sem ég datt, buxurn- ar mínar og skyrtan voru öll í götum, eins og net. Eitt af brotunum fór í gegnum kinnina á mér og lenti á tönn.“ Ali lá 20 daga á sjúkrahúsi, sprengjubrotin eru samt ennþá í líkama hans. Valgerður Sverrisdóttir, utan- ríkisráðherra, segir mjög mikil- vægt að samstarf Landhelgisgæsl- unnar og Íslensku friðargæslunnar haldi áfram og verði jafnvel aukið. Hún segir samstarfið hafa gengið mjög vel í Líbanon á fyrstu mánuð- um þessa árs og segir mjög jákvætt að sprengjueyðingar- menn geti sinnt verkefnum í útlöndum þegar vetr- araðstæð- ur hamla hreinsun- arstarfi á Ís- landi. „Vissu- lega kostar þetta einhverja peninga,“ segir Valgerð- ur, „en þetta er mikilvægt mann- úðarstarf.“ Valgerður útilokar ekki að utanríkisráðuneytið muni styrkja þjálfun sprengjusérfræðinga, annað hvort á vegum Landhelgisgæslunnar eða á þann hátt að friðargæslan þjálfi upp eigin sprengjueyðingarsveit. Hún segir samt líklegast að ráðu- neytið nýti áfram þá sérþekkingu í sprengjueyðingu sem þegar er til staðar hjá Landhelgisgæslunni. Hún segir einhug um það í íslenskum stjórnmálum að fordæma klasasprengjur og notkun þeirra, til marks um það sé þátttaka Íslands í Oslóar-samþykktinni í síðasta mánuði. Fleiri fundir eru fyr- irhugaðir til að semja textann í samkomulagið og stefnt er að því að undirrita samkomulagið árið 2008 og þar með yrði framleiðsla, flutningur og öll notkun klasa- sprengna bönnuð. Þar verður einnig kveðið á um hreinsun svæða og aðstoð við fórn- arlömb. Utanríkisráðherra Valgerður sverrisdóttir vill auka þátttöku Íslendinga í sprengjuhreinsun á alþjóðavettvangi. Aukum sprengjuhreinsun Morðvopn gegn AlMúgAnuM þjóðlegur sáttmáli gegn minnstu gerð af jarðsprengjum sem sér- hannaður er til að drepa eða lim- lesta fólk tók gildi árið 1999 en lönd eins og Bandaríkin, Rúss- land, Kína og Ísrael hafa ekki skrif- að undir sáttmálann. Thomas bendir hins vegar á að mikið hafi áunnist síðan sátt- málinn var samþykktur. „ Síðan þá hefur þeim löndum sem nota jarðsprengjur fækkað til muna. Í dag eru, að mér vitandi, aðeins þrjú lönd, Burma, Rússland og Ís- rael, sem enn nota minnstu gerð- ina af jarðsprengjum sem sérstak- lega eru hannaðar til að drepa fólk. Þetta er sú gerð sem bönnuð var í sáttmálanum. Og það eru ekki bara miklu færri lönd sem nota þessar sprengjur heldur hefur þeim fækkað snarlega sem fram- leiða, flytja eða eiga þær. Einnig hefur fórnarlömbum þeirra snar- fækkað og viðskipti með þessar sprengjur hafa dregist verulega saman. Besta leiðin til þess að útrýma klasasprengjum er að koma á nýj- um lagalegum og siðferðislegum viðmiðum í alþjóðasamfélaginu þannig að það hafni þessu vopni og kalli það óásættanlegt.“ Mikið verk fyrir höndum Íslenska friðargæslan sendi sprengjueyðingarlið til Líbanons í janúar til þess að aðstoða við hið gríðarmikla verkefni sem þar ligg- ur fyrir. Áætlað er að um 900 þúsund ósprungnar klasasprengjur séu enn í suðurhluta Líbanons. Adrian King, sprengjusérfræðingur Landhelgis- gæslunnar var í Líbanon í sex vikur í janúar og febrúar og er á leið út aftur. Hann segir að nú sé búið að hreinsa sprengjur víðast hvar úr þorpum og af vegum. Þá á samt eftir að hreinsa akra og beitilönd. Grær yfir sprengjurnar Eftir því sem líður á vorið í Líb- anon grær þykkari gróður yfir klasa- sprengjurnar að sögn Adrians. „Það er reyndar eftir sem áður auðvelt fyr- ir sprengjuleitarmennina að finna klasasprengjur með málmleitartæki.“ En almennir borgarar hafa ekki málmleitartæki og því eiga þeir nú erfiðara með að sjá sprengjurnar. Adrian segir samt að þeir viti nokkurn veginn hvaða svæði þeir eigi að forð- ast. „Þeir passa sig mjög vel á þeim svæðum, þeir þekkja vel afleiðingarn- ar af klasasprengjunum.“ Hann segir leitarmenn nálgist prengjusvæðið eins og þegar kom- ið er að jarðsprengjusvæði. „Þetta er mjög seinunnið, það getur tekið vik- ur og jafnvel mánuði að hreinsa upp einn akur. Það þarf að vinna skipulega því að minnsta hreyfing getur leitt til sprengingar. Og jafnvel þó að þær séu byrjaðar að ryðga eða tærast, búnar að liggja óhreyfðar svo árum og jafn- vel áratugum skiptir, þá verður samt að umgangast þær eins og þeim hafi verið skotið í gær.“ Hættuleg vinna Adrian setur hljóðan þegar hann er spurður hvort hann hafi ekki kom- ist í hann krappan. „Jú, ég hef auðvit- að séð ýmislegt en ég vil helst ekki tala mikið um það. Þetta er hættulegt starf sem við vinnum og stundum þurfum við að takast á við erfiðar aðstæður. Það er til dæmis stórhættulegt sums staðar þar sem íbúarnir hafa safnað saman klasasprengjum og sett þær út við veg til þess að við getum safnað þeim saman. Þær eru mjög viðkvæm- ar fyrir snertingu og jafnvel þó einhver sé búinn að taka upp sprengju sem ekki springur, þá er það engin trygg- ing fyrir því að hún springi ekki næst þegar er komið við hana. Ég heyrði af sprengjusérfræðingum sem tóku upp körfu af klasasprengjum til þess að flytja þær eitthvert þangað sem hægt væri að eyða þeim. Þá slitnaði hand- fang á körfunni, hún datt í jörðina og úr varð risasprenging. Svo fóru belg- ískir sérfræðingar inn á sprengju- svæði í Líbanon þar sem þeir töldu að væru klasasprengjur. Þeir létust hins vegar báðir af því að þarna voru jarð- sprengjur en ekki klasasprengjur eins og þeir bjuggust við. Þannig að það er jafnvel hægt að koma vönum mönn- um á óvart.“ Íslenskir sprengju- sérfræðingar í Líbanon. Breið pólitísk samstaða er fyrir því að Íslending- ar taki að sér fleiri slík verkefni á alþjóða- vettvangi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.