Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Síða 20
Fyrir nokkru birtist tónlistardómur í Morgunblaðinu
eftir Orra Harðarson. Þessi dómur var stórkostlegur og
varð klassík meðal tónlistaráhugamanna. Það væri van-
mat að segja að þar hafi sólóskífa Geirs Ólafssonar ver-
ið tekinn í bakaríið, nær lagi að hún hafi verið tekinn í
Byrgið. Sá dómur bar sömu fyrirsögn og þessi pistill en
hér er það annar Geir sem verður Ironmasteraður. Enda
varðar mig ekkert um það hvaða félagsheimili hýsir
Frank Sinatra í sópran og stepp upp á borðum meðan
sú iðja er ekki á fjárlögum. Auk þess er Geir H. Haarde
töluvert falskari.
Allir vilja frið. Geir vill líka frið. Allir vilja líka kók og
pulsu. Geir vill líka kók og pulsu. Spurningin er hversu
mikið menn vilja frið. Ef menn vilja frið jafn mikið og
þeir vilja eina með sinnep
og steiktum þá endum við
eingöngu með pulsuna.
Það er búið að spyrja Geir hvort Ísland verði á ”lista
hinna viljugu” ef Bandaríkin ráðast nú á Íran. Geir vill
ekki útiloka að við styðjum Íranstríð. Hann segir bara
að það hafi ekkert komið til umræðu. Nei Geir, held-
ur ekki Íraksstríðið og þess vegna vorum við á þessum
lista. Með lýðræðislegum umræðum hefðum við aldrei
verið með í þessum trúðahóp af vandræðalegum ríkis-
stjórnum.
Í pólitískum apabúning
Bretar og jafnvel Danir vilja taka þátt í nýju eldflauga-
kerfi Bandaríkjamanna. Rökstuðningurinn snýst um að
vesturlöndum sé ógnað, meðal annars af Íran. Þetta
minnir á það þegar Colin Powell gerði sig að fífli frammi
fyrir Sameinuðu þjóðunum með sjónvarpsmarkaðsleg-
um rökstuðning á gjöreyðingarvopnaeign Íraka. Eina
sem heimurinn sá voru gervitunglamyndir af trukkum
að ferja rör. Fyrir Hvíta hús haukunum er ekki nema
eins stafs munur á Írak og Íran. Þeir vilja bæði en það
er líka bara eins stafs munur á sigri og ósigri. Geir, ekki
þið blámennirnir gera þjóðina að fífli aftur. Þú og félag-
ar í Valhöll megið ganga um í pólitískum apabúning en
haldið þjóðinni utan við þetta grímuball. Íranir eiga ekki
kjarnorkuvopn og það er ekki hægt að sanna að þeir séu
að koma sér þeim upp. Hinar raunverulegu ástæður fyr-
ir óstöðugleika í heiminum er fátækt og mengun en frá
ykkur myndum við aldrei heyra: ”The war against pov-
erty. You´re either with us or against us”.
Vinalegi Repúblíkaninn
Það er ekki að ástæðulausu sem Davíð og Halldór
hurfu úr pólítik. Fólk hugsar ekki um Bergþórugötuna
og Tanna þegar menn muna arfleifð Davíðs. Menn sjá
í minningunni Davíð með uppistand um ”gróðurhús-
áhrifin”, steppandi á öryrkjum og gamalmennum innan
um kakkalakka og vatnskemmdar byggingar á Miðnes-
heiði með gúmmísamning sem hann notar til að veifa
burt flugum sem sækja eðlilega í rotgufurnar sem liðast
uppúr Baugsmálum og Ironmasteruðum meðferðarúr-
ræðum meðan Árni Johnsen læðist bakdyramegin inn í
pólitík á ný. En nú er Geir H. Haarde hinsvegar mættur
sem nýtt andlist Flokksins. Hann er vinalegi Repúblik-
aninn meðan það vantaði hins vegar nokkra kafla í Dav-
íð, aðallega þó kaflann um að Die Hard sé bíómynd og
Bónus sé bara matvöruverslun. En Geir er að fara að
gera svipaða hluti og Davíð. Hann er bara kurteisari og
ekki jafn geðstirður. Geir virðist ætla að vera enn einn
Flokksformaðurinn sem verður minnst fyrir að sigla
einn í víking á Þjóðarskútunni. Þótt þjóðin sé enn í landi
og enginn niðri í lúkar nema Sigurður Kári og Eyþór
Arnalds og þeir séu fullir. Á að endurtaka leikinn á nýj-
um stað? Eru menn búnir að gleyma útkomunni sein-
ast þegar farið var í þrautakóng með Hvíta húsinu? Svo
virðist sem enn einn Repúblikaninn sé kominn með
Alzheimer. Reagan var með alvöru en hvaða afsökun
hefur þú Geir?
Föstudagur 16. mars 200714 Umræða DV
Verið er að blása til kosningabaráttu. Þingið er að láta af störfum og stjórn-
málamennirnir taka upp baráttu fyrir endurkjöri. Sumum hefur þegar verið hafn-
að, aðrir ákváðu sjálfviljugir að hætta og svo eru nokkuð margir vissir um endur-
kjör. Frá yfirstandandi þingi ganga þingmennirnir meðal annars með þá staðreynd
að virðing þingsins hefur varla í annan tíma verið minni meðal þjóðarinnar, það
segja mælingar.
Svo virðist sem virðing Alþingis minnki stöðugt. Ummæli ýmissa þingmanna
eru með þeim hætti að ekki er nokkur leið að fólk geti borið virðingu fyrir þing-
inu. Einar Oddur Kristjánsson, einn af reyndari þingmönnum Sjálfstæðisflokks,
sagði til að mynda að barningur þeirra Geirs H. Haarde og Jóns Sigurðssonar til
að klambra saman sátt milli flokkanna og nota til þess stjórnarskrána væri mark-
leysa og hefði ekkert að segja. Ekkert myndi breytast. Einar Oddur sagði þetta á
lokuðum fundi, hann sagði þetta í beinni útsendingu Sjónvarps. Orð þingmanns-
ins féllu nokkru áður en virðingarmælinging var gerð. Ekki hefur virðingin fyrir
þinginu aukist við að heyra einn af reyndustu þingmönnum þjóðarinnar tala með
þessum hætti, hann sagði formenn stjórnarflokkanna vera að leika sér með stjórn-
arskrána, til þess eins að uppfylla heit Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgríms-
sonar frá því fyrir fjórum árum. Ef meirihluti Alþingis ber ekki meiri virðingu fyrir
stjórnarskránni en þetta, er ekki hægt að ætlast til að fólkið í landinu beri virðingu
fyrir þinginu.
DV byrjar í dag að fjalla um spillingu í íslensku samfélagi. DV mun halda áfram
að fjalla um spillingu næstu daga. Af nógu er að taka og DV mun kappkosta að
fjalla um það sem ekki hefur farið hátt hingað til. Vonandi hjálpar umfjöllunin ein-
hverjum kjósendum við að gera upp hug sinn. Löng úttekt er í DV í dag um spill-
ingu í samfélaginu og með henni er hrundið þeirri kenningu að hér sé ekki spill-
ing. Hér á landi er spilling og á hana verður bent.
Staðreyndir sem verða dregnar fram, orð stjórnmálamanna og gerðir þeirra
munu vonandi ráða hvernig kosningarnar fara. Fagurgalinn má ekki ná yfirhönd-
inni og til að svo verði ekki þurfa fjölmiðlar að standa vaktina með kjósendum. DV
mun gera það.
Nokkrir þeirra stjórnmálamanna sem sækjast eftir endurkjöri að þessu sinni
koma fyrir í spillingarúttektinni svo það er ekki bara gott fyrir kjósendur að kynna
sér umfjöllunina, það kann að vera nauðsynlegt. Kannski hefur margt af því sem
tekið er fyrir heyrst áður. Það er ekki aðalmálið. Mestu skiptir að halda upplýsing-
unum til haga og birta þær svo verkin falli ekki í gleymskunnar dá.
Í aðdraganda kosninga er enn meiri nauðsyn fyrir vakandi fjölmiðla.
Sigurjón M. Egilsson.
Spilling og virðing
Brautarholti 26 · 105 Reykjavík · 512 7000 · dv@dv.is
DV greiðir 2.500 krónur fyrir þau fréttaskot sem
leiða til frétta. Fyrir besta fréttaskot hverrar viku
eru greiddar 5.000 krónur og 10.000 fyrir besta
fréttaskot mánaðarins.
512 7070
frettaskot@dv.is
Félagsmálaráðherra fjarri
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra missir af lokaspretti
þingstarfana.
Herdís Á. Sæ-
mundardóttir,
varaþingmaður
hans, tók sæti
hans á þingi
í gær og situr
til þingloka þó
ekki sé setan
löng að þessu
sinni. Magn-
ús stríðir enn við heilsuleysi það
sem varð meðal annars til að
hann varð að víkja úr ræðustól
á Alþingi í síðustu viku, í miðri
ræðu. Læknar hafa ráðlagt hon-
um að hvíla sig og ná sér góðum
áður en hann snýr til starfa.
Gleymska forseta
Þingmenn sátu sveittir í þingsæt-
um sínum og greiddu atkvæði í
gríð og erg í gær. Tuttugu þing-
mála biðu afgreiðslu og máttu
menn því þrýsta jafnt og þétt á
takkana á borðum sínum. Þegar
mikið gengur á vilja sumir hlut-
ir gleym-
ast. Eitt sinn
leit Sólveig
Pétursdótt-
ir þingforseti
yfir þingheim
til að athuga
hvort allir
væru bún-
ir að greiða
atkvæði, leit síðan á töflu með
atkvæðum og áttaði sig á að hún
ætti enn eftir að greiða atkvæði
sjálf.
Atvinnusköpun
Eitt af meginþemum stjórnmála-
baráttunnar hefur í gegnum tíð-
ina verið at-
vinnusköpun,
þó það hafi
stundum ver-
ið búið í ann-
an búning í
seinni tíð. Nú
virðast menn
farnir að sjá
björtu hlið-
arnar á deil-
unni um stjórnarskrárákvæði for-
manna stjórnarflokkanna. Í það
minnsta segist Ágústi Ólafi Ág-
ústssyni svo frá að einn lögmað-
ur sem komið hafi fyrir stjórnar-
skrárnefnd hafi séð þann helstan
kost við tillöguna að hún væri at-
vinnuskapandi fyrir lögmenn.
Hinir ylhýru fingur
Meðal þeirra mála sem hafa
árum saman vafist fyrir þing-
mönnum er
frumvarp um
Sigurlínar
Margrétar Sig-
urðardóttur
varaþingmanns
um að táknmál
verði skilgreint
sem fyrsta mál
heyrnarlausra
og heyrnar-
skertra. Verði það að lögum
styrkist réttarstaða þeirra sem
eiga táknmál sem sitt móðurmál.
Sigurlín var bjartsýn á að nú yrði
frumvarpið loks að lögum eftir
að hafa kynnt það fyrir þingflokki
sjálfstæðismanna. Nú telja marg-
ir að ekkert verði af því.
Sandkorn
Ekki meir, Geir
kjallari
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að
birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
ÚtGáfufélaG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri oG áByrGðarmaður: Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Þröstur Emilsson auGlýSinGaStjóri: auður Húnfjörð
Kínastofan • Stórhöfði 17 • 110 Rvk • 577 7007
Thai nudd
Að fá Thai nudd er eins og að
fara í jógatíma án þess að hafa
neitt fyrir því.
Og fá svæðanudd í leiðinni.
Bjóðum einnig upp á
sogæðanudd sem grennir og
hreinsar líkamann.
15% afsláttur vikuna
9.-15. mars. Hringdu
strax og pantaðu tíma
í s. 577-7007.
Erpur Þ. EyvindArson
tónlistarmaður skrifar
„Geir vill ekki útiloka að
við styðjum Íranstríð.