Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Blaðsíða 25
DV Helgarblað
Rétt foRgangsRöðun mikilvæg
Endurfundir í miðborginni!
Fallegar innréttingar og fullkomin staðsetning Iðusala,
í Lækjargötunni, gerir þessa tvo sali sem um ræðir að
einum vinsælustu veislusölum borgarinnar. Salirnir rúma
250 manns í sæti eða 400 manns í standandi boði.
Lídó er glæsilegur nýr veislusalur sem byggir á klassísk-
um grunni Versala, upplagður fyrir stærri hópa til að
koma saman og fagna. Aðstaða er fyrir 300 manns í
borðhald og yfir 500 manns í standandi boði.
Veisluþjónustan okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar og
spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fagmönnum.
Við sjáum til þess að veislan verði eins og þú vilt hafa
hana: Ykkar ánægja er okkar markmið.
Kynntu þér þjónustu okkar og skoðaðu matseðla á
www.veislukompaniid.is eða hringdu í síma 517 5020
og veislan er í höfn!
Með kveðju,
Hafsteinn Egilsson
Er kominn tími á endurfundi hjá þínum árgangi?
Veislukompaníið býður glæsilega veislusali með
öllum tæknibúnaði og fyrsta flokks veisluþjónustu
í hjarta borgarinnar.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Danmörku og kom heim um sumar-
ið til þess að fermast, því var hentugt
að gefa mér peninga því það var svo
auðvelt að taka þá með út. Ég man þó
að ég fékk líka bækur, úr og útvarps-
tæki. Ég fór síðan í innkaupaleiðang-
ur til Þýskalands ásamt foreldrum
mínum með fermingarpeningana
og keypti þar segulbandstæki, slides-
sýningarvél og tjald. Hvorutveggja á
ég enn og dugar vel.“
„Mér finnst yfirhöfuð að það sé
frekar mikil skynsemi í gangi í þess-
um gjafamálum. Langflestir eru að
gefa eitthvað praktískt á þessum
tímamótum, eitthvað sem hægt er að
nota í framtíðimmi,“ segir Þórhall-
ur Heimisson prestur í Hafnarfirði
þegar hann er spurður út í ferming-
argjafirnar. Hann segir að á þessum
aldri sé kominn tími á að endurnýja
ýmislegt hjá krökkunum enda mik-
il umskipti framundan, það styttist í
framhaldsnám, bílpróf og þess háttar
og því sé tilvalið að nýta þessi tíma-
mót til þess að gefa gjafir sem nýtast
munu vel. „Það er náttúrulega alltaf
spennandi að fá gjafir en mér finnst
samt miklu nærtækara að taka fyrir
þessar brjálæðislegu afmælisveislur
sem fólk er að halda um þrítugt og
fimmtugt. Manni finnst að allir séu
að keppast við að gera eitthvað meira
og stærra en náunginn. Það er mun
meiri hófsemi hjá fermingarforeldr-
um heldur en hjá stórafmælisbörn-
um.“
Sjálfum finnst honum bækur vera
afar góðar fermingargjafir. „Bæk-
ur. Þó krakkarnir séu kannski ekkert
sérstaklega spenntir fyrir bókum á
þessum aldri og lesi þær jafnvel ekki
strax þá mæli ég samt með bókum til
fermingargjafa,“ segir Þórhallur sem
sjálfur fékk sínar dýrmætustu bæk-
ur í fermingargjöf. Hann hvetur ætt-
ingja frekar til þess að kaupa vand-
aða bók handa fermingarbarninu
heldur en gefa því pening.
„Bókin er þarna enn eftir einhver
ár og er miklu dýrmætari en einhver
5000 kall, sérstaklega ef hún er árit-
uð,“segir Þórhallur.
Þegar Þórhallur fermdist átti hann
sér þá ósk heitasta að eignast 8 mm
sýningarvél enda með mikinn kvik-
myndaáhuga á þessum tíma. Fjöl-
skylda hans tók sig saman og keypti
vélina handa honum og hann var
ægilega ánægður með þá gjöf.
„En eftir á að hyggja þá eru bæk-
urnar sem ég fékk í fermingargjöf
dýrmætasta eignin, því þær á ég
ennþá. Sýningarvélin er löngu ónýt.“
Gjafirnar eru þó ekki það sem er eft-
irminnilegast frá fermingardegi Þót-
halls.„Ég bjó í Skálholti á þessum
tíma. Pabbi var rektor í Skálholts-
skóla og veislan var haldin bæði í
skólanum og heima,“ segir Þórhall-
ur og bætir við að móðir sín hafi séð
um allan matinn fyrir utan ferming-
artertur sem keyptar voru í bakaríi
á Selfossi. „Við pabbi keyrðum á Sel-
foss kl.6 að morgni fermingardags-
ins að sækja terturnar. Það var mjög
skemmtileg ferð og í minningunni er
það eiginlega hápunktur fermingar-
dagsins.“
BækuR lifa vel
sælla er að gefa en þiggja