Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 26
föstudagur 16. mars 200726 Helgarblað DV
K
abbalah var
kynnt fyrir þeim
Íslendingum
sem vildu kynn-
ast fræðun-
um betur, en
þau hafa fram
að þessu aðal-
lega verið tengd Madonnu og öðr-
um heimsfrægum stórstjörnum. En
það er miklu meira sem býr að baki
kabbalah en stjörnur sem aðhyllast
trúarbrögðin. Þeir sem fylgjast vel
með tísku og fræga fólkinu hafa ef-
laust tekið eftir rauða bandinu sem
vafið er um úlnliði margra fræg-
ustu stjarna heims. Beckham og frú,
Britney Spears, Gwyneth Paltrow,
Elizabeth Taylor, Demi Moore, Ma-
donna; öll eru þau með þetta rauða
band, sem virðist ekki vera meiri
„skartgripur“ en einfaldur rauð-
ur þráður sem búið er að binda um
úlnliðinn. Ef þið fylgist vel með, þá
sjáið þið í „Everytime“ myndbandi
Britney Spears að þegar hún rís upp
úr baðkerinu eftir martröð eða mis-
heppnaða sjálfsmorðstilraun (dæmi
hver fyrir sig) þá er þetta band um
vinstri úlnlið hennar og sést vel þeg-
ar hún þurrkar sér um andlitið. Hvað
er þetta band, fyrir hvað stendur það
og af hverju eru allir með það??
Vernd frá hinu illa auga
Bandið kallast „Red String“
(Rauða bandið) og er eitt af vernd-
artáknum kabbalah. Bandinu er
ætlað að vernda fólk frá „Hinu illa
auga“ sem er neikvæð orka frá öðru
fólki og neikvæð augnaráð sem ann-
að fólk á til að senda manni. Kannski
skiljanlegt að umdeildar stjörnur
þurfi á því að halda?! En hvað með
okkur hin? Þurfum við þetta band?
Nánast allt sem tengist kabbalah
virðist vera eldfimt og tvær, þrjár, ef
ekki fjórar hliðar á hverju því sem
sagt er um fræðin. Sem dæmi má
nefna að stundum er kabbalah kall-
að trú og stundum dulspeki, stund-
um hvort tveggja og stundum hvor-
ugt! Í þessari grein mun ég ekki
leggja dóm á hvert af þessu kabb-
alah er en mun þó kalla þetta trú-
arbrögð eftir sem áður og stikla á
stóru eftir að hafa lesið mér heil-
mikið til um fræðin. Rétt eins og
sterkt og voldugt tré, þá hafa öll trú-
arbrögð greinar. Kabbalah er grein
úr gyðingdómi, sem tengist dul-
hyggju, þó svo alls ekki séu allir gyð-
ingar kabbalahtrúar og ekki allir
kabbalahtrúar gyðingar. Trúin bygg-
ir á „Zohar“ (sem er túlkun á „Torah“,
fyrstu bók Gamla testamentisins)
auk þess sem hún inniheldur líka
talna- og dulspeki og þykir það erf-
ið og illskiljanleg, að fólki er ráðlagt
að byrja ekki að nema kabbalah að
ráði fyrr en eftir fertugt! Því er einn-
ig hjátrú um að kenna því guðfeður
kabbalahtrúarinnar dóu fyrir fertugt
og er það einnig ástæðan fyrir að
fólk hreinlega þorir ekki að byrja að
nema fræðin að einhverju ráði fyrr
en eftir þann aldur.
Falleg hugsjón og sannfæring-
arkraftur Madonnu
Madonna, sem reyndar er með
yfirburðagreind og skyldi því fáa
undra að hún fái tíu í öllu í kabb-
alah-fræðum, hefur sannfært mann
sinn, leikstjórann Guy Ritchie, sem
var trúlaus áður en þau kynntust,
um gildi trúarinnar og eru þau nú
bæði heittrúuð og virt innan kabb-
alah menningarinnar, þó svo það
hafi tekið hann lengri tíma að að-
hyllast kabbalah en frúna. Hjónin
sækja námskeið og messur reglu-
lega og Lourdes dóttir Madonnu er
einnig í sunnudagaskóla þar sem
hún nemur fræðin. Kabbalahfræð-
in eru falleg hugsjón; þau snúast um
að við séum ein heild og verðum því
öll að hlúa hvert að öðru, hvort sem
um er að ræða menn, dýr eða jurt-
ir, svo heildin geti skapað hamingju.
Madonna hefur slíkan sannfæring-
armátt, enda ein áhrifamesta stjarna
okkar samtíma, að Britney Spears,
sem er fædd og uppalin baptisti hef-
ur, eftir kynni sín af Madonnu, snúið
baki við sinni trú og lengi stóð til að
hún giftist Kevin Federline í kabb-
alahathöfn. Svo fór reyndar ekki en á
meðan sú hugmynd var til umræðu
hjá Britney og Kevin olli það fjöl-
skyldu stjörnunnar mikilli gremju
og ama. Demi Moore og Ashton
Kutcher giftu sig hins vegar í kabb-
alah-athöfn. Hvort Madonna kynnti
kabbalah fyrir þeim skal ósagt lát-
ið… Madonna er reyndar sjálf fædd
og uppalinn kaþólikki og dóttir
hennar, Lourdes, er nefnd eftir helg-
um stað kaþólikka í Frakklandi. Hún
var þó skírð áður en Madonna sner-
ist til kabbalahtrúar. Reyndar kom
mörgum á óvart þegar slúðurblað í
Bretlandi birti myndir af Madonnu
að koma út úr kabbalah-miðstöð-
inni í London í bol með mynd af
Maríu mey, sem er heilög í augum
kaþólskra og margir þeirra biðja til
hennar á sama hátt og til Guðs eða
Jesú. Þó kaþólskir og gyðingar trúi
á sama guð þá trúa gyðingar því að
Messías sé enn ókominn en kaþól-
ikkar og mótmælendur að Jesús sé
Messías. Þessi þversögn í trúarskiln-
ingi Madonnu vekur óneitanlega
upp fleiri spurningar en ella og nóg
var af þeim fyrir!
Trúin og fræðin lifað í 500 ár
Kabbalah er hebreskt orð og
þýðir „að þiggja“. Leiðbeiningar og
fyrirmæli trúarinnar eru á hebr-
esku og arameísku og hafa aldrei
verið almennilega þýdd yfir á önn-
ur tungumál og því auðveldlega
misskilin og þarf kabbalahrabbíni
að kenna fræðin. Eftir að kabbalah
varð jafn vinsælt og það er núna, er
þó byrjað að þýða fræðin yfir á nú-
tímatungumál en eftir sem áður er
kennslan í höndum rabbína. Hins
vegar er það ekki svo auðvelt að
maður bara skrái sig í Kabbalah-
skóla eða – námskeið. Samkvæmt
fræðunum finnur rabbíninn nem-
andann þegar nemandinn er tilbú-
inn að skilja kabbalah. Bæði gyð-
ingar og þeir sem aðhyllast önnur
trúarbrögð stunda kabbalah. Þótt
svo „Kabbalah-æðið“ hafi verið í
gangi í Hollywood nú í nokkur ár
þá hafa fræðin og trúin lifað góðu
lífi í yfir 500 ár. Sagt er að þegar orð
Guðs kom til Móse á fjallinu þá hafi
hann bara skrifað niður það sem
við þekkjum í dag sem boðorðin tíu.
Hins vegar segja þeir sem aðhyllast
kabbalah trúa því að hafi Guð sagt
heilmargt sem ekki var skrifað nið-
ur heldur hafi þau lög og orð hans
fylgt manninum kynslóð eftir kyn-
slóð í munnlegri geymd og eiga nú
að mynda eina heild sem kabbalah-
speki. Helsta skilyrðið til að aðhyll-
ast trúna er nemandinn viðurkenni
að „Torah“ og „Zohar“ séu guðleg
og, skilji maður textann nógu vel,
geti maður leyst leyndardóminn
um tilveru og upphaf heimsins.
Ekki skrifa „Guð“!
Í kabbalah er Guð nefndur á nafn
en þar sem fylgjendur trúarinnar
eru hræddir um að fólk geri lítið úr
nafni hans er það yfirleitt skrifað G-
ð…! Nú vita flestir hvað hann heitir
svo það er nokkuð skrítið að þessari
hefð sé haldið við! En hefðir eru nú
til þess að halda þeim við, ekki rétt?
G-ð er yfirleitt kallaður Óendanlega
veran og nemendum gert ljóst að
Óendanlega veran elskar mann af
öllu hjarta og ef maður bara gerði
sér grein fyrir hversu elskaður mað-
ur væri af henni þá yrði maður frá
sér numinn af sælu. Önnur kenn-
ing er sú að sál manns sé uppspretta
endalausrar hamingju; börn fæðist
hamingjusöm og að óhamingja sé
lærð en ekki frá sálinni komin. Ég er
ekki viss um að sálfræðingar og geð-
læknar 21. aldarinnar séu því sam-
mála en legg það algjörlega í hend-
ur lesenda að dæma fyrir sig! Einnig
segir að hamingja sé ekki markmið
heldur sé hamingja einfaldlega
að njóta lífsins eins og það er. Þau
vandamál sem mæta okkur á lífs-
leiðinni eru sérhönnuð fyrir hvert
og eitt okkar til að kljást við en ekki
bara óheppni.
Fyrsta hárklipping skref
til manndóms
Ólíkt kristninni er fólki ráðið
frá því að biðja G-ð um eitthvað til
handa sjálfu sér, hvort sem það er
hamingja eða eitthvað annað. Sam-
kvæmt kabbalah er það eigingjörn
ósk og verður því ekki uppfyllt. Þú
verður að biðja fyrir heildinni, ekki
bara eigin hamingju.
Eins og með flest önnur trú-
arbrögð þá er hugsjónin falleg og
fræðin áhugaverð. Spurningin er,
Kabbalah í Kópavogi
Það verður spennandi
að sjá hvernig Íslend-
ingar taka þessum trú-
arbrögðum og lífsstíl.
Ætli rauða bandið verði
aðaljólagjöfin í ár?