Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Síða 34
föstudagur 16. mars 200734 Sport DV
Pétur Marteinsson er kominn heim
eftir ellefu ár í atvinnumennskunni
og mun hann spila með KR í Lands-
bankadeildinni í sumar. Þetta er
mikill liðsstyrkur fyrir vesturbæjar-
liðið en Pétur segir fyrstu vikurn-
ar síðan hann kom heim hafa ver-
ið mjög góðar. „Það hafa vissulega
verið ákveðin viðbrigði enda hef ég
búið erlendis í ellefu ár, en þetta er
eitthvað sem maður hafði búið sig
undir. Það er frábært að vera kom-
inn heim til vina og fjölskyldu og
svo lýst mér vel á þetta hjá KR, þetta
eru mjög skemmtilegir strákar og vel
haldið á spilunum þarna,“ segir Pét-
ur Marteinsson.
Pétur kemur til KR frá sænska
liðinu Hammarby en þar var hann í
miklum metum. „Fjölskyldan hafði
rætt um það í nokkurn tíma hvort
það væri rétt að fara heim þar sem
við höfðum það mjög gott úti. Við
eignuðumst dóttur ekki alls fyrir
löngu og vildum að hún fengi að al-
ast upp í kringum fjölskyldu og vini.
Konan fékk vinnu hérna og var tek-
in sú ákvörðun að koma heim. Mig
langaði að halda áfram í boltanum,
ekki síst þar sem maður hefur verið
talsvert meiddur undanfarið og ég
vildi reyna að klára þetta með stæl.
Svo vildi maður komast inn í íslenskt
samfélag aftur með því að vera í bolt-
anum,“ segir Pétur.
Ekki sama fólkið hjá Fram
Mörg félög hér á landi vildu fá Pét-
ur en KR varð fyrir valinu. „Við flutt-
um í Vesturbæinn og búum mjög ná-
lægt KR-vellinum. Mér hefur alltaf
litist vel á KR, þetta er skemmtilegt
hverfislið og maður hittir KR-inga í
Melabúðinni og Vesturbæjarlaug-
inni. Teitur (Þórðarson, þjálfari KR)
talaði við mig strax í fyrrasumar og
haust og mér leist vel á það starf sem
hann er að vinna þarna og hvern-
ig KR-ingar hugsa framtíðina. Allur
þessi pakki gerði það að verkum að
ég ákvað að fara í KR og sé ekki eftir
þeirri ákvörðun,“ segir Pétur.
Stuðningsmenn Fram vonuðust
til að Pétur kæmi aftur í Safamýr-
ina þar sem hann hóf sinn feril en
þeim varð ekki að ósk sinni. „Ég hef
verið úti lengi. Ég á vissulega góðar
minningar frá Fram, unglingastarfið
á þeim tíma var frábært og mikið af
góðu fólki í kringum félagið. Það fólk
er hinsvegar ekki þarna lengur svo
maður hefði verið að fara í alveg nýtt
lið með því að fara í Fram. Eftir að
hafa hugsað málið taldi ég best fyrir
mig að fara í KR.“
Stefnt á toppinn
KR hefur gríðarlega sterkan mann-
skap í ár og er með sterkara lið en í
fyrra. „Það hlýtur að vera stefna hjá
liði sem hafnaði í öðru sæti í deild-
inni í fyrra og komst í bikarúrslitin að
gera betur í ár. Nú hefur KR styrkt sig
aðeins og þrátt fyrir að það sé utan-
aðkomandi pressa þá upplifum við
aðeins pressuna frá okkur sjálfum.
Við ætlum okkur góða hluti í ár og
stefnan er sett á toppinn,“ segir Pétur
sem hefur spilað í hjarta varnarinn-
ar stærstan hluta ferilsins en Teitur
hefur notað hann mest á miðjunni á
undirbúningstímabilinu.
„Ég spilaði fyrsta leikinn í vörn-
inni en hef spilað sem djúpur miðju-
maður síðustu leiki. Það skiptir mig
ekki máli hvar ég spila, mér finnst
fyrst og fremst gaman að vinna fót-
boltaleiki. Ég er aðeins betri sem
hafsent heldur en sem miðjumaður
en hinsvegar get ég trúað því að eins
og staðan sé í dag þá kæmi ég bet-
ur út sem miðjumaður hjá KR. Ég er
opinn fyrir hverju sem er en drauma-
staðan er að fá að vera senter,“ segir
Pétur í léttum tón.
Margir búast þó við því að Pét-
ur muni snúa aftur í vörnina þegar
Rúnar Kristinsson kemur til KR eins
og allt útlit er fyrir. „Það væri frábært
fyrir KR-inga og bara alla fótbolta-
áhugamenn landsins að fá Rúnar til
að spila hér heima í sumar. Hann
er frábært leikmaður og yrði mikill
fengur fyrir okkur,“ segir Pétur.
Eigum margt eftir ólært
Aðstaða til fótboltaiðkunar hefur
breyst mikið hér á landi síðan Pét-
ur spilaði hér á landi síðast. „Með
tilkomu þessara fótboltahalla er að-
staða til knattspyrnuiðkunar allt
önnur yfir vetrartímann. Við erum
hinsvegar ekki með tíma á hverj-
um degi í Egilshöllinni og erum að
djöflast í rokinu í vesturbænum yfir
vetrarmánuðina. Maður var búinn
að gleyma þessu roki en það er til
staðar á nánast hverri einustu æf-
ingu. Ef við ætlum að ná nágranna-
þjóðunum verðum við að geta æft
enn lengur við toppaðstæður. Þrátt
fyrir að kuldinn sé oft ekki mjög mik-
ill þá er það rokið sem skemmir fyrir
og kemur í veg fyrir faglegar æfingar.
Það þarf að byggja yfir fleiri gervi-
grasvelli,“ segir Pétur.
Hann segir að við eigum margt
eftir ólært hvað varðar aðstöðu fyr-
ir áhorfendur og umgjörð kring-
um leiki. „Svo þurfa að vera fastir
leikdagar svo fólk viti að hverju það
gengur, til dæmis að sunnudagar séu
bara fótboltadagar og fjölskyldurnar
flykkist á völlinn. Þá kemur í kjölfarið
meiri umfjöllun um boltann og þetta
stækkar allt saman. Ég vil bæði sjá fé-
lögin og KSÍ gera smá átak í þessum
málum, þarna þurfum við að sækja
á,“ segir Pétur sem þekkir vel til þess
hvernig staðið er að málum á Norð-
urlöndum.
„Við getum horft á mörg minni
pláss á Norðurlöndum sem dæmi
þar sem byggðir hafa verið nýir vell-
ir og aðstaðan gerð meira aðlaðandi.
Þar hefur áhorfendafjöldinn rok-
ið upp og dæmi um 50-60 þúsund
mann bæjarfélög sem eru að fá um
tólf þúsund manns á völlinn.“
Vinnur með yngri leikmenn
Auk þess að spila er Pétur að vinna
í ýmsum verkefnum hjá KR og er
að starfa kringum akademíuna hjá
félaginu. „Það er mjög gefandi og
skemmtilegt. Þessi akademía er mjög
sniðugt framtak. Í henni eru um þrjá-
tíu strákar á menntaskólaaldri sem
stunda fótbolta eins og þeir séu at-
vinnumenn. Þar kem ég inn og að-
stoða strákana, miðla reynslu minni
og læt þá aðeins hugsa um markmið
sín. Margir af þeim vilja vera atvinnu-
menn og þar get ég vonandi kennt
þeim eitthvað. Það er síðan á þessum
aldri sem brottfallið er hvað mest úr
íþróttunum og ýmislegt sem kemur
þar inn. Það koma ýmsar aðrar freist-
ingar inn og það er ágætt að menn átti
sig aðeins á því,“ segir Pétur.
Stjórn Hammarby hefur rætt við
Pétur um að fylgjast með ungum
leikmönnum hér á landi. „Þeir vilja
að maður sé með augu og eyru opin
og það er aldrei að vita nema hægt sé
að nýta það ef það eru einhverjir ung-
ir og efnilegir leikmenn hér sem hafa
áhuga á að fara eitthvað út að skoða.
Þeir buðu mér áframhaldandi samn-
ing sem leikmaður og svo var spurn-
ing hvort maður tæki sæti í stjórninni
hjá þeim. Fjölskyldan valdi hinsveg-
ar að koma heim og þá var gert það
munnlega samkomulag að ég yrði í
sambandi við þá,“ segir Pétur.
Ekki tvítugur lengur
Teitur Þórðarson er í skýjunum með
að hafa fengið Pétur í sínar raðir. „Ég
er ofboðslega ánægður með hann.
Hann styrkir okkur ekki bara inni á
vellinum heldur einnig utan hans.
Hann er mjög sterk persóna og ger-
ir mikið fyrir hópinn,“ sagði Teitur
við DV en hann segist bæði ætla að
nota hann í vörninni og á miðjunni á
komandi tímabili.
Auk þess að spila með Hammar-
by lék Pétur úti með Stabæk í Nor-
egi og Stoke á Englandi, hann segir
hinsvegar að Stokkhólmsárin standi
upp úr. „Á þeim tíma gekk best hjá
mér og liðinu. Það er einnig ánægju-
legt að hafa fengið að spila og vinna
með svona mikið af skemmtilegu
fólki. Þegar ég fór til Hammarby á
sínum tíma var liðið að komast upp
í úrvalsdeildina í Svíþjóð og það var
mjög gaman að fá að taka þátt í þeirri
uppbyggingu. Ég er fljótur að gleyma
því sem gerist inni á vellinum en það
er meira stemningin í klefanum sem
maður tekur með sér.“
Pétur er 33 ára og skrifaði hann
undir þriggja ára samning við KR.
„Maður er ekki tvítugur lengur svo
við munum setjast niður eftir tvö ár
og skoða samninginn, athuga hvort
maður sé heill og svona,“ sagði Pét-
ur en hann veit ekki hvort hann haldi
áfram að starfa kringum fótboltann
þegar ferlinum lýkur. „Það verður
að koma í ljós. Ég hef eiginlega allt-
af stefnt á að söðla um þegar skórn-
ir fara á hilluna og gera eitthvað allt
annað. Það verður samt erfitt að
kúpla sig alveg út úr boltanum,“ segir
Pétur Marteinsson.
elvargeir@dv.is
UpplifUm pressUna frá
okkUr sjálfUm
DV-mynd Stefán
Sáttur við sína ákvörðun
Pétur marteinsson segist alls ekki sjá
eftir þeirri ákvörðun sinni að fara í Kr.
Pétur Marteinsson hefur snúið heim úr atvinnumennskunni og kominn í KR-búninginn. Hann segir
markmið KR fyrir komandi sumar vera að gera betur en í fyrra þegar liðið hafnaði í öðru sæti.