Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 40
föstudagur 16. mars 200740 MERKIR ÍSLENDINGAR ættfræði Ættfræði DVKjartan gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í fréttum liðna viku, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk@dv.isU m s j ó n : K j a r t a n G u n n a r K j a r t a n s s o n N e t f a n g k g k @ s i m n e t . i s Ættfræði DV Í fréttum var þetta helst, - 17. mars 1917: Tíminn Þann 17. mars 1917 hóf nýtt lands- málablað göngu sína hér á landi. Það var Tíminn sem kom út einu sinni í viku, fyrstu þrjátíu árin, en varð síð- an dagblað. Um útgáfu blaðsins hafði verið stofnað félag 20-30 manna, víðs vegar um landið, sem lofuðu fjárframlögum til þess. Fyrsti ritstjóri blaðsins var Guðbrandur Magnús- son sem síðar varð forstjóri ÁTVR, en ritstjórn skipuðu þeir Hallgrímur Kristinsson, forstjóri SÍS, Guðbrand- ur og Jónas Jónsson frá Hriflu. Málssvari, - ekki opinbert flokksblað Tíminn hóf göngu sína aðeins þremur mánuðum eftir að átta al- þingismenn komu saman og stofn- uðu sérstakan þingflokk, Fram- sóknarflokkinn. Allt frá upphafi var Tíminn málsvari þess flokks. En þar með er ekki sagt að Tíminn hafi frá upphafi verið opinbert flokksblað Framsóknarflokksins. Þvert á móti var oftast umtalsverður áherslumun- ur á afstöðu hinnar ungu og róttæku Tímaklíku sem stóð að Tímanum, og afstöðu hinna eldri og íhaldssamari þingmanna flokksins. Með mörg járn í eldinum... Það var Jónas frá Hriflu sem stóð á bak við stofnun Tímans fyrir 90 árum, en Jónas hafði þá mörg járn í eldinum. Hann hafði lagt á ráðin um Þjórsártúnsfundinn fræga 19. janúar 1916 sem markar upphaf Framsókn- arflokksins, hann var potturinn og pannan í stofnun Alþýðuflokksins og í hásetaverkfallinu árið 1916, leiddi Sigurð Jónsson í Ystafelli til ráðherra- dóms og hvatti Hallgrím Kristinsson, forstjóra SÍS, til að fara út í stórfellda heildsölu, innflutning og útflutning fyrir hönd Sambandsins. ...og vissi hvað hann vildi Jónas vildi ekki bara stóran og áhrifamikinn bændaflokk. Hann vildi bændaflokk, tengdan sam- vinnuhugsjón og ungmennahreyf- ingu órjúfandi böndum. Bændaflokk sem ynni sleitulaust að því meg- in markmiði Jónasar sjálfs, að losa bændur og verkamenn við „millilið- ina“, þ.e. koma nánast allri verslun í landinu undir Samvinnuhreyfing- una og útrýma þar með kaupmönn- um, heildsölum, umboðsmönnum og útgerðarmönnum. Valdatæki Hriflu-Jónasar Tíminn var stofnaður til að gefa framsóknarmönnum línuna, halda þingmönnum flokksins við efnið svo þeir ekki spilltust sem viðhlæjend- ur Reykjavíkurburgeisa, en síðast en ekki síst til að leiða Jónas sjálfan til valda í flokknum. Honum varð að ósk sinni því Tímaklíka Jónasar varð fljótlega helsta valdamiðstöð flokks- ins og blaðið málpípa hans. Hann var ótrúlega afkastamikill stjórn- málapenni, skrifaði meira í Tímann, fyrstu 30 árin, en nokkur annar eða töluvert á þriðja þúsund greinar. Þjóðþekktir ritstjórar Ritstórar Tímans voru undan- tekningarlaust þjóðkunnar persónur. Má þar nefna Tryggva Þórhallsson, ritstjóra 1917-27 er hann varð forsætisráðherra; Jónas Þorbergsson, ritstjóra 1927-30, er hann varð fyrsti útvarpsstjórinn; Gísla Guðmundsson al- þingismann sem var rit- stjóri 1930-40, og Þór- arinn Þórarinsson sem var ritstjóri Nýja dag- blaðsins og síðan Tím- ans, 1936-85 en enginn Íslendingur mun hafa ritstýrt sama blaði jafn lengi og hann. Þá ber að nefna rithöfundana Jón Helgason og Indriða G. Þorsteinsson og Hauk Snorrason. Gullöld Tímans Um það leyti sem Jónas frá Hriflu var að falla í ónáð, 1934, hófu fram- sóknarmenn í Reykjavík útgáfu Nýja dagblaðsins. Fjórum árum síðar, 1938, varð það svo sameinað Tíman- um sem þá loksins varð eign flokks- ins og opinbert málgagn hans. Tíminn varð ekki dagblað fyrr en árið 1947 og á næsta áratug varð blaðið stórveldi á dagblaðamark- aðnum. Þá fór blaðið með mjólk- urbílnum á annað hvert sveitabýli í landinu, náði hæst 18000 eintök- um og var annað stærsta blaðið eftir Mogganum. Á seinni helmingi sjötta áratugarins varð blaðið sannkölluð uppeldismiðstöð fyr- ir fjölmiðlafólk fram- tíðarinnar. Má þar nefna Jökul Jakobsson leikritaskáld; Magn- ús Bjarnfreðsson, einn fyrsta fréttamann rík- issjónvarpsins; Ólaf Gauk, hljómlistar- mann; Kristján Magn- ússon, ljósmynd- ara og jazzpíanista; Jónas Kristjánsson sem átti eftir að um- bylta íslenskri blaðaútgáfu og blaða- mennsku, síðar ritstjóra Vísis, Dag- blaðsins en lengst af DV; konu hans, Kristínu Halldórsdóttur, síðar rit- stjóra Vikunnar og alþingiskonu; Hall Símonarson, blaðamann á DV; Elías Snæland, aðstoðarritstjóra og helsta máttarstólpa DV og síðar ritstjóra Tímans á síðustu árum hans; Fríðu Björnsdóttur, lengi framkvæmda- stjóra BÍ; Gunnar V. Andrésson, reyndasta og þekktasta blaðaljós- myndara landsins, og Kára Jónas- son, síðar fréttastjóra ríkisútvarpsins og enn síðar ritstjóra Fréttablaðsins. Hnignun flokksblaðanna. Segja má að gullöld Tímans hafi lokið um það leyti sem Viðreisnar- stjórnin komst til valda. Eftir það hnignar Tímanum hægt og sígandi. Vísir tekur fljótlega við sem annað stærsta blað landsins undir ritstjórn Jónasar Kristjánssonar. Við stofnun Dagblaðsins og síðan sameiningu Vísis og Dagblaðsins í DV, eiga gömlu flokksblöðin sífellt meira undir högg að sækja. Framsóknarflokkurinn var útgefandi Tímans til 1984 er hluta- félag hóf útgáfu Nútímans. Því blaði ritstýrði um skeið Helgi Pétursson í Ríó Tríói. Framsóknarflokkurinn tók aftur við útgáfu Tímans 1986 og gaf hann út til ársloka 1991. Síðustu árin Um áramótin 1991-92 gerði Framsóknarflokkurinn samning við Svein R. Eyjólfson og Hörð Einarsson hjá Frjálsri fjölmiðlun ehf um útgáfu Tímans. Ritstjóri blaðsins varð þá Jón Kristjánsson alþingismaður og síðar heilbrigðisráðherra. Árið 1996 samdi svo Frjáls fjöl- miðlun við KEA, aðaleiganda Dags- prents, útgáfufélags Dags á Akur- eyri, um kaup á meirihluta í félaginu. Í framhaldinu voru Tíminn og Dag- ur sameinuð undir heitinu Dagur- Tíminn með höfuðstöðvar á Akur- eyri og auk þess ritstjórnarskrifstofu í Reykjavík. Ritstjóri var þá ráðinn Stefán Jón Hafstein. Árið 1997 samdi Frjáls fjölmiðlun við Alþýðuflokkinn og Alþýðubanda- lagið um að blöð þessara flokka, Al- þýðublaðið og Vikublaðið, yrðu sam- einuð Degi-Tímanum. Jafnframt var ákveðið í ágúst sama ár að hið sameinaða dagblað skyldi heita Dagur. Í framhaldinu var Elías Snæland Jónsson ráðinn ritstjóri við hlið Stefáns Jóns Hafstein. Stefán Jón hætti síðan sem rit- stjóri Dags en Elías Snæland var áfram ritstjóri og Birgir Guðmuds- son aðstoðarritstjóri. Árið 2001 var loks ákveðið að leggja sjálfstæða útgáfu Dags niður, en blaðið þá sameinað DV. Þar með leið Tíminn undir lok. En þá var líka liðinn aldarþriðjungur frá því Jónas frá Hriflu kvaddi þennan heim, „meira að starfa guðs um geim,“ og framsóknarmenn voru löngu hætt- ir að gæla við þá pólitísku draum- sýn hans, að útrýma kaupmönnum, heildsölum og útgerðarmönnum hér á landi. kgk@dv.is Nína Tryggvadóttir sem hét fullu nafni Jónína Tryggvadóttir, fæddist í Neskaupstað en ólst upp á Seyðisfirði fyrstu sjö árin. Hún var dóttir hjón- anna, Tryggva Guðmundssonar frá Efra-Seli í Hrunamannahreppi sem var kennari að mennt, kaupmaður á Seyðisfirði og loks gjaldkeri ÁTVR í Reykjavík, og Gunndóru Benja- mínsdóttur frá Lækjardal í Öxarfirði. Bræður Nínu voru Ólafur, f. 1913, og Viggó sem var fimm árum yngri. Fjölskyldan flutti til Reykjavík- ur 1920. Þar gekk Nína í barnaskóla og stundaði síðan nám við Kvenna- skólann í Reykjavík. Ásgrímur Jóns- son, listmálari og frændi Nínu, varð líklega fyrstur til að segja henni til á listabrautinni. Hún lærði síðan teikn- ingu hjá tveimur þekktum málur- um, þeim Finni Jónssyni og Jóhanni Briem, sigldi til Kaupmannahafnar og stundaði nám við Listaháskólann þar 1935-39, stundaði framhaldsnám í París 1939-40, og nám hjá franska kúbistanum Fernard Leiger og Hans Hoffmann í New York 1942-45. Nína hitti Louisu Matthíasdóttur á Louvre-safninu í París 1939 og voru þær perluvinkonur upp frá því. Þær komu báðar til Íslands haustið 1939, og sóttu þá mikið til Erlendar í Unu- húsi. Þar kynntust þær m.a. Halldóri Laxness og Steini Steinarr en allir þessir þrír menn sátu fyrir hjá þeim báðum. Reyndar hefur sá orðrómur verið lífseigur að sum áhrifamestu ástarljóð Steins hafi verið ort til Lou- isu. Nína var búsett í New York 1942- 49, í Reykjavík 1950-52, í París og London 1952-59 og síðan lengst af í New York. Hún átti þó lengi íbúð í „leikarablokkinni“ á Fálkagötunni og dvaldi þar löngum á sumrin. Nína er, ásamt Louisu, vinkonu sinni, ein virtasta og þekktasta lista- kona Íslendinga á tuttugustu öld. Hún málaði abstrakt myndir und- ir kúbískum áhrifum og gerði m.a. fjölda svipmikilla mannamynda. Þá var hún brautryðjandi í steinglerlist hér á landi og var fyrst til að sýna hér samklipp.Hún vann m.a. glermynd- ir fyrir Þjóðminjasafn Íslands, mósa- íkmyndina í kór Skálholtskirkju og veggmyndina Aðalsteinn konungur og Egill Skallagrímsson fyrir Lands- bankann. Þá myndskreytti hún bæk- ur, s.s. Tindáta, eftir Stein Steinarr. Eiginmaður Nínu var Alfred L. Copley, læknir og listamaður, en dóttir þeirra er Una Dóra. Minnis- merki um Nínu, unnið af Sigurjóni Ólafssyni, var afhjúpað við Kjarvals- staði. kgk@dv.is Nína Tryggvadóttir f. 16.3. 1913, d. 18.6. 1968 Jónas Kristjánsson ritstjóri hefur göngu sína Jónas Jónsson frá Hriflu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.