Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2007, Side 44
og góðu rauðvíni ef stemmingin er þannig. l 2 kjúklingabringur. l Findus smjördeig, 1 plata, látið þiðna í plastfilmu. l Hveiti. l Egg. l Ferskt estragon. l Gráðostur. l Vorlaukur, 3 stönglar. l Scallott-laukur, 2 stk. l Nokkrir kantarellusveppir. l Ferskt tagliatelle-pasta. l Caesar salat í poka. l Ferskur parmesanostur. l Herbamare-hafsalt með kryddjurt- um. l Svartur malaður pipar. l Basilikum ólífuolía. l Matreiðslurjómi. l Hvítvín. Gott er að útbúa fyllinguna áður en bringurnar eru steiktar. Setjið í mat- vinnsluvél rúmlega helminginn af gráðostinum. Sneiðið niður vorlauk- inn, scallottlaukinn og sveppina og bætið dálitlu af olíu út í. Allt hrært vel saman. Kryddið bringurnar með salti og pipar og steikið á pönnu í olí- unni. Takið af pönnunni og haldið heitu. Sáldrið hveiti yfir smjördeig- ið og fletjið út með kökukefli. Þeytið egg og penslið smjördeigið. Skerið þunnar sneiðar í bringurnar og setj- ið fyllinguna yfir. Leggið smjördeig- ið yfir, pakkið saman og setjið í eld- fast mót. Penslið vel þeyttu egginu yfir bringurnar og stráið fersku estr- agon yfir. Setjið í ofn og bakið í 30 mínútur við 170 - 180 gráður eða þar til smjördeigið er orð- ið fallega brúnt. Setjið afgang- inn af gráðostinum á pönn- una sem bringurnar voru steiktar á ásamt matreiðslu- rjóma,hvítvínsslettu og nokkrum kantarellusvepp- um. Hrærið vel saman eða þar til sósan er löguð. Setjið tagliatelle past- að í sjóðandi vatn og sjóðið í 3 - 5 mín- útur eftir leið- beiningum. Lát- ið vatnið renna af pastanu. Tak- ið fram 2 diska (gott að hafa þá forhitaða), skreytið jaðar diskanna með salatinu, leggið því næst pastað meðfram salatinu, hellið sósunni yfir pastað og leggið síðan bringuna á miðju disksins. Ríf- ið ferskan parmesan ost og sáldrið yfir og berið fram. Með þessum rétti mæli ég með ítalska rauðvíninu Tenute Marchese Antinori Chianti Classico Riserva 2001. FöStudaGur 16. MarS 200744 Helgarblað DV Gunnar skorar á frænku sína, Hrafnhildi Hákonardóttur, einkaþjálfara í World Class og segir um hana: „Hún Habbý er ekki aðeins besta frænka mín heldur góður vinur líka. Hún er frábær kokkur og kemur manni sífellt á óvart með framandi og spennandi réttum.“ Gunnar M. Erlingsson,löggiltur end- urskoðandi er matgæðingur DV þessa vikuna. Sigurjón Vilbergsson, læknir, skoraði á hann og sagði við það tækifæri: „Það er ekki nóg með að maðurinn sé endurskoðandinn minn, hann er auk þess mikill mat- gæðingur og frábær kokkur.“ Gunnar segir að starf endurskoð- andans sé krefjandi og vinnudagur- inn oft langur. „Eftir erfiðan vinnu- dag nýt ég þess að slaka á yfir pottum og pönnum og töfra fram einhverja góða rétti. Það má segja að þetta sé mitt áhugamál. Ég styðst ekki mikið við uppskriftir heldur gef oft ímynd- unaraflinu lausan tauminn. Hluti af þessu áhugamáli mínu er að sækja góð veitingahús og verð ég að segja að ég er frekar íhaldssamur í þeim efnum, enda endurskoðendur þekkt- ir fyrir slíkt. Af öðrum stöðum ólöst- uðum þykir mér Hótel Holt bera af í matgæðum, framsetningu og þjón- ustu. Þá förum við hjónin árlega til London og eigum þar okkar uppá- haldsveitingastaði. Ég get ekki látið hjá líða að minnast á eitt glæsilegasta matargerðarmusteri í Portúgal, sem staðsett er í Algarve á suðurströnd Portúgals, og heitir Villa Joya. Þetta er lítið hótel á 2 hæðum og státar af einhverjum glæsilegasta veitinga- stað í Evrópu, enda stjörnum prýdd- ur með 2 Michelin, sá eini í Portú- gal. Það er einstök upplifun að dvelja þarna. Þessi staður er sannkölluð paradís.“ Gunnar hefur uppskrift að tveim- ur réttum, annars vegar réttur sem er fastaréttur á heimilinu á mánudög- um og svo helgarrétt. Plokkfiskur að hætti hússins: (4 - 6 manns) l 800 grömm plokkfiskur úr fiskborði Hagkaupa. l rifinn gratínostur í poka, 2 pokar. l Bearnaise Sauce (Jensen’s Böfhus), fæst í Hagkaup. l Karrý de lux (Pottagaldrar). Ég laga þennan rétt gjarnan eins og lasagna. Set eitt lag af fiskinum í eldfast mót, örlítið karrý yfir, því næst bearnaise yfir fiskinn og síðan ostinn. Endurtaka þetta síðan aftur. Baka í ofni í 30 - 40 mínútur við 180 gráður eða þar til osturinn er bráðn- aður og bakaður. Með þessu er ómissandi að hafa rúgbrauð (Nonnabrauð) með smjöri. Eftirlæti lilju: innbakaðar kjúklingabring- ur mEð svEPPa- lauk- og gráðostafyllingu Þessi réttur er uppáhaldsrétt- ur minnar heittelskuðu og er tilval- inn í helgarkvöldverð yfir kertaljósi l 1/2 dl sykur l 2 dl ljóst síróp l 2 dl salthnetur l 340 g hnetusmjör l 8 dl Special K kornflex l 2 dl gróft kókosmjöl l 120 g hrískúlur frá Freyju l 150 g suðusúkkulaði l 150 g rjómasúkkulaði Sykur og síróp sett í pott og soðið í 15-20 mínútur. Salthnetum (ósaxaðar) og hnetusmjöri bætt út í pottinn að þeim tíma liðnum. Special K, kókosmjöl og hrískúlur. Innihaldi pottsins hellt yfir og blandað með sleif Í stóra skál. Sett í ofnskúffu og þrýst. Súkkulaðið er brætt og sett yfir. Kælt í ísskáp í ca 3 klst. Skorið í bita. uppskrift: Monsa U m s j ó n : J a n u s S i g u r j ó n s s o n . N e t f a n g j a n u s @ d v . i s &Matur vín Tommasi Ripasso, Ítalía Tommasi Ripone er þekkt undir nafninu „baby Amarone“ vegna þess að hratinu úr framleiðslu Amarone er bætt í tunnurnur, sem gefur hið sérstæða bragð sem það ber. Liturinn er rúbín rauður, margslunginn og fágaður ilmur, flott bragð í alla staði, fín fylling með krydduðum rúsínu keim og ávöxtum. Lambakjöt er flott val með þessu víni en einnig má prufa það með gæs og önd. Sérstaklega gott með hörðum ostum. Frábær kaup í alla staði. Verð í Vínbúðum ÁTVR: 1.850 krónur MarquesCasa Concha Cabernet Sauvignon, Chile Frábært vín sem nýtur sín virkilega vel með mat í fínni kantinum, sé þetta sem algjöra sleggju með villibráð. Þetta var eina vínið frá Chile sem komst inn á topp 100 listann hjá Wine spectator árið 200ö en það segir okkur töluvert um gæði þess. Brennandi rúbínrauð- ur litur, ilmurinn er með vott af ristaðri eik, sólber og kirsuber. Einstklega mjúkt bragð og í flottu jafnvægi. Verð í Vínbúðum ÁTVR: 1.790 krónur Wyndham Estate Bin 555 Shiraz Hér er á ferðinni frekar opið og þroskað vín, frábært með nautasteikinni, mikil fylling, þar sem þroskaðir ávextir áberandi í bland við lakkrís, dökkt súkkulaði og vanillu. Dökkrauður litur með purpurarauðum blæ, langt og gott eftirbragð með mjúku tanníni sem gerir vínið enn meira spennandi. Shiraz er að verða ein vinsælasta þrúgan á Íslandi og þetta vín er dæmi um magnað Shiraz. Verð í Vínbúðum ÁTVR: 1.490 krónur axEl ó. skrifar: axelo@visir.is Hvað þarf mikið vín í veislur? Í matarveislu má miða við að tveir deili með sér einni 750 ml flösku af léttu víni. Með pinnamat eða við móttöku sem tekur 2-3 tíma má reikna með 1 lítra af bjór á mann og/eða að tveir deili með sér flösku af léttu víni. Ef notað er sterkt áfengi má reikna með 4 sjússum á mann. Sjússinn er 3 cl þannig að ein 700 ml flaska af sterku áfengi dugar fyrir sex manns. Gunnar M. Erlingsson Matgæðingurinn Endurskoðandiog frábær kokkur silfur uPPskrift fyrir 8 l 6 gæsabringur, hamflettar og fituhreinsaðar (má einnig nota önd, þá þarf fleiri bringur) l 2 box fersk kirsuber – steinhreinsuð og skorin til helminga l 2 shallott laukar – saxaðir smátt l 2 msk. sykur l 1 ½ bolli púrtvín l 12 msk. smjör í bitum l 8 kvistir rósmarín l Salt og nýmalaður pipari l Ólífuolía Ofninn hitaður í 180°. Saltið og piprið bringurnar. Steikið bringurnar við góðan hita á pönnu í örlítilli ólífuolíu. Færið bringurnar í eldfast fat og setjið í ofn í 12 mín. – varist að ofelda. athugið að eldun heldur áfram í nokkrar mínútur eftir að þær koma úr ofninum. Meðan bringurnar bakast í ofninum eru kirsuberin sett á pönnuna ásamt lauknum, víninu og sykrinum. Sjóðið saman í 5 – 6 mín. eða þar til berin eru elduð. takið af hitanum og þeytið smjörbita í einn í einu. Bragðbætið með salti og pipar. takið bringurnar úr ofninum og látið jafna sig í nokkrar mín. Skerið niður – raðið á diska setjið sósu yfir og einn rósmarín kvist á hvern disk. Berið fram með risotto með villisveppum og eplasalati með kóríander og engifer. Íslensk villigæs á ítölskum slóðum Helgarnammið Special K DV MYND STEFÁN Brons gull

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.