Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 4
V egatollur til Selfoss verður 310 krónur aðra leið, verði dæmi sem Vegagerðin set-
ur upp um innheimtu á Suðurlands-
vegi að veruleika. Í gögnum hennar
frá því í september er sýnt hvernig
skipta mætti Suðurlandsvegi upp
og koma fyrir fjórum innheimtu-
stöðvum, þar af þremur á leiðinni
til Selfoss. Ökuferð um hvern spotta
myndi kosta 80 til 120 krónur. Þá er
talað um tvær til fjórar innheimtu-
stöðvar á Reykjanesbraut.
„Nei takk, segir Runólfur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra bifreiðareigenda, FÍB. „Veg-
gjöld eru hrein viðbót við annan
kostnað bifreiðaeigenda. Þau eru
brot á jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar – því íbúi í Vogum á Vatns-
leysuströnd greiðir veggjöld til að
komast í Háskóla Íslands en Grafar-
vogsbúinn ekki – og grundvallar-
breyting á gjaldtöku af vegum. Er
þjóðarsátt um slíkt?“ spyr hann.
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri segir ákvörðun um þessi
veggjöld ekki endanlega heldur
velti hún á samningum við lífeyris-
sjóðina. Vegagerðin hafi sett dæm-
ið svona upp svo hægt væri að sjá
gróflega hvernig ná mætti veggjöld-
unum inn. „Ef á annað borð á að fara
út í frekari framkvæmdir er alveg
ljóst að það þarf að greiða þær til
baka með notendagjöldum.“ Þessi
leið finnst honum nær því að þeir
sem noti mannvirkin greiði fyrir
það heldur en að hækka álögur á
eldsneyti. „Þetta er sú leið sem ver-
ið er að fara í allri Evrópu til að flýta
framkvæmdum.“
Vegir afhentir gæðingum?
Runólfur segir að vegirnir séu eign
almennings, en nú þegar ríkið
hafi stofnað hlutafélög um fram-
kvæmdir á Suðurlandsvegi og um
Vaðlaheiðargöng fái lífeyrissjóðir
þá á silfurfati til gjaldtöku. „Ætlar
Ögmundur að afhenda einhverjum
gæðingum, sem í dag heita lífeyris-
sjóðir og ákveða að selja öðrum rétt-
inn á morgun, vegina?“ spyr hann.
„Þarf ekki að kjósa um slíkt?“
Hann segir það áætlanir yfirvalda
að innheimta um þrjá milljarða í
formi veggjalda á landinu þegar öll
veggjöld hafi verið sett upp. „Norð-
menn áætla að minnsta kosti 15%
fari í rekstur við innheimtuna. Það
færu því í það minnsta 450 millj-
ónir í rekstur innheimtunnar hér
og ætla má að hlutfallið yrði meira
en þar því umferðin hér er minni.“
Ráða þurfi fólk, framkvæmdastjóra
yfir rekstrarfélögunum og stjórn
auk kaupa á búnaði svo hægt sé að
aka á milli innheimtustöðva á 2+2
lúxusvegum í stað 2+1 sem séu jafn
öruggir og Bretar og Svíar kjósi fyr-
ir mun meiri umferð. „Ég óttast að
þetta sé orðið gæðingaprógramm
hjá pólitíkusunum.“
Hreinn segir hins vegar að inn-
heimtukostnaðurinn verði ekki
nema nokkur prósent af heildar-
tekjunum og fari lækkandi með
nýrri tækni. Þá hafi alltaf verið
rætt um afsláttarkerfi fyrir þá sem
noti mannvirkin mikið. Stóra breyt-
ingin frá því sem nú sé verði þó sú
að ökumenn geti ekki kosið að fara
aðra leið til að komast hjá gjaldtöku.
„Það er kominn tími á að fólk ræði
veggjöldin.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ný bók með speki
Dalai Lama,
leiðarvísir sem
veitir styrk, huggun
og innblástur.
Leitar þú að
innri friði?
Verðtryggð lán landsmanna hækka minna vegna
verðbótarþáttarins á þessu ári en raunin hefur
verið frá því árið 2003. Samkvæmt nýbirtri
mælingu Hagstofunnar stóð vísitala neysluverðs
nánast í stað á milli október og nóvember. Hækk-
aði vísitalan um 0,05% á milli mánaða, en spár
höfðu legið á bilinu 0,4-0,5%. Verðbólga mælist nú
2,6% og hefur ekki verið minni síðan í apríl 2004.
Verðbólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%, er því
nánast í höfn. Niðurstaðan eykur, að mati grein-
ingardeildar Íslandsbanka, líkur á vaxtalækkun
8. desember næstkomandi. -jh
2,6%
Hækkun á vísitölu
neysluverðs
Milli október
og nóvember
Seðlabankinn
reykjavík
Hveragerði
selfoss
Þrengsli
110 kr. vesturlandsvegur — Þrengslavegur
80 kr. Þrengslavegur — Hveragerði
120 kr. Hveragerði — selfoss
90 kr. norðan selfoss
Dæmi um innheimtu á SuðurlanDSvegi
Heimild: Vegagerðin
Ef á annað borð á
að fara út í frekari
framkvæmdir er
alveg ljóst að það
þarf að greiða
þær til baka með
notendagjöldum.
Veggjöld Fjögur gjaldhlið á SuðurlandSVegi
Þrjár gjaldstöðvar og 310
kall hver bílferð til Selfoss
120 krónur milli Hveragerðis og selfoss og 310 krónur frá selfossi til reykjavíkur er viðmiðið í
gögnum vegagerðarinnar um innheimtu veggjalda. nei takk, segir framkvæmdastjóri FíB, bifreiða-
eigendur eiga ekki að bera óþarfa kostnað vegna lúxusvega í gæðaáætlunum pólitíkusa.
runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FíB.
Að borga eða flytja – það er valið
„Þetta er hrein og klár skattlagning á
landsbyggðina og til þess eins að reka
mann til höfuðborgarinnar,“ segir Þórir
Haraldsson, lögfræðingur hjá íslenskri
erfðagreiningu. Hann hefur í 23 ár sótt
vinnu til borgarinnar frá selfossi, daglega
síðustu fimmtán árin. Hann segir að
forsenda þeirra hundraða sem aki til
borgarinnar í vinnu sé að öllum líkindum
brostin, þótt afsláttur yrði gefinn á gjald-
heimtunni fyrir íbúa, því hver mínúta
sem bætist við ferðatímann reiknist í
klukkustundum yfir árið.
„Þá verður að spyrja, verði þetta niður-
staðan, hvaða vegatolla eigi að leggja
á aðrar framkvæmdir sem hafa verið
kostaðar af ríkissjóði og skattborgarar
hafa greitt og eru að greiða, hvort sem er
á höfuðborgarsvæðinu, suðurlandi eða
vegna jarðganga úti um allt land? Hvernig
á að gæta jafnræðis?“ Auk þess bendir
hann á að engin önnur leið sé til þess að
komast til og frá vinnu. „valkosturinn er
að borga eða flytja.“
Þórir segir sveitarstjórnir á landsbyggð-
inni verða að bregast við. „eigi þetta að
verða niðurstaðan finnst mér að Sunn-
lendingar eigi að skattleggja orkuna sem
þaðan fer og verður að tekjum annars
staðar.“
Þórir Haraldsson. Ljósmynd/Hari
Veggjöld Íbúi á SelFoSSi óSáttur Við ójaFnræðið
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Veður FöStudagur laugardagur Sunnudagur
Fremur hæG N- oG NA-átt, NemA AllrA
AustAst. smáél NorðAustAN- oG AustANtil,
eN ANNArs bjArt oG FAlleGt Veður.
höFuðborGArsVæðið: Hægur vindur og
léttskýjAð. vægt Frost.
hæViðri eðA hæGur ViNdur AF NA. Allt Að
þVí heiðríkjA, eN smáél þó með Norður- oG
AusturströNdiNNi.
höFuðborGArsVæðið: Hægvirði og nánAst
HeiðríkjA. Heldur Herðir á Frostinu.
sVipAð Veður oG hæGViði um mest Allt
lANd. herðir á FrostiNu iNN til lANdsiNs.
höFuðborGArsVæðið: áFrAm FAllegt
vetrArveður með vægu Frosti.
Eins og vetrarveðrið
getur orðið fallegast
spáð er áframhaldandi rólegheitaveðri um
helgina. víðáttumikið háþrýstisvæði er búið
að hreiðra um sig við landið og lægðirnar
komast ekki að á meðan. víðast verður nær
heiður himinn á landinu, en þó
smáél norðaustantil. Yfirleitt
vægt frost við sjávarsíðuna,
en talsvert inn til landsins og
getur farið í 15 til 20 stig
þar sem kaldast verður á
sunnudag. Þetta er eins
kjörið veður til útivistar
eins og hugsast getur.
2
1 4 4
5 5
5 9
6
9
4
6 12
4
10
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
ingibjörg r.
guðmundsdóttir látin
ingibjörg r. guðmundsdóttir, for-
maður landssambands íslenzkra
verzlunarmanna og fyrrverandi
varaforseti Alþýðusambands íslands,
er látin, 61 árs að aldri. ingibjörg tók
þátt í þingum Alþýðusambandsins frá
því að hún tók sæti í stjórn vr. Hún sat
lengi í sambandsstjórn Así og var kjörin
í miðstjórn og sem varaforseti árið 1992
og gegndi því embætti samtals í 14 ár en
gaf ekki kost á sér aftur nú í haust vegna
veikinda. ingibjörg lætur eftir sig tvo
kjörsyni. -jh
sigurður sigurðarson
vígslubiskup látinn
sigurður sigurðarson, vígslubiskup í
skálholti, lést á landspítalanum í gær,
66 ára að aldri. sigurður var sóknar-
prestur á selfossi 1971-1994 er hann tók
við embætti vígslubiskups og gegndi
embættinu þar til hann lést. sigurður
sat í stjórn Prestafélags íslands og var
formaður þess um hríð. Hann sinnti
kennslustöfum, m.a. stundakennslu við
Háskóla íslands. eftirlifandi eiginkona
hans er Arndís jónsdóttir skólastjóri. Þau
eignuðust tvö börn. Fóstursonur þeirra
lést árið 2000. -jh
Verðbólgumarkmið nánast í höfn
þrotabú sendir
út innheimtuviðvörun
Bjarni s. ásgeirsson, skiptastjóri þrotabús Bge eignar-
haldsfélags, ætlar að senda út innheimtuviðvörun
vegna skulda hluthafa félagsins við félagið á næstu
dögum. Þetta staðfesti hann í samtali við Frétta-
tímann. Bge eignarhaldsfélag var í eigu starfs-
manna Baugs og var stofnað í kringum hluta-
fjáreign þeirra í Baugi. stærstu hluthafarnir
voru jón ásgeir jóhannesson, fyrrverandi
forstjóri og stjórnarformaður, stefán Hilmar
Hilmarsson aðstoðarforstjóri og gunnar
sigurðsson forstjóri. Bjarni segir að fjöldi
þeirra sem fái innheimtuviðvörun séu á
bilinu 15 til 20 en hann vildi ekki gefa upp
fjárhæðina sem þrotabúið ætlaði sér að
innheimta. -óhþ
4 fréttir Helgin 26.-28. nóvember 2010