Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 8
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
Slakaðu á heima
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
Úrval nuddsæta - verð frá 29.750 kr.
Verið velkomin í verslun okkar og prófið.
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
BRUNCH HLAÐBORÐ
Á SUNNUDÖGUM
FRÁ KL. 11.00–15.00
UPPLIFÐU NAUTHÓLSVÍKINA
HJÁ OKKUR Í EINSTÖKU UMHVERFI
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
V indvirkjun, þ.e. notkun vindmyllna til raforku-framleiðslu, er kostur sem
Landsvirkjun skoðar af alvöru.
Úlfar Linnet, sérfræðingur í
orkuathugunum hjá Landsvirkjun,
segir athuganir hafa leitt í ljós
að Suðurlandsundirlendið henti
best til framleiðslunnar en ekki
sé tímabært að gefa upp nákvæm-
lega hvar á svæðinu. Þá séu aðrir
staðir á landinu einnig til skoð-
unar en víða á annesjum sé vinda-
samt. Úlfar segir staðarval miðað
við það að myllurnar verði aldrei
settar ofan í byggð.
Byrja þarf á frekari rannsókn-
um á Suðurlandsundirlendi sem
taka minnst eitt ár. Að því loknu
er hægt að skoða hvers konar vind-
myllur henta, þ.e. stærð mastra
og spaða. Þegar það liggi fyrir sé
hægt að huga að tækjakaupum en
það ferli taki ár til viðbótar. Gangi
allt upp taka frekari undirbúnings-
rannsóknir og myllukaupin um
tvö ár en Úlfar segir nauðsynlegt
að fara í tilraunaframleiðslu áður
en ákvörðun verði tekin um stærri
vindvirkjun.
Ef reynslan verður góð og raf-
orkuverðspá gengur upp, þ.e. að
raforkuverð fylgi raforkuverði í
Evrópu, gæti vindvirkjun verið við-
bót við það raforkukerfi sem fyrir
er hérlendis. Í kynningu Harðar
Arnarsonar, forstjóra Landsvirkj-
unar, á haustfundi fyrirtækisins
var kynnt raforkuverðspá fyrir
Norður-Evrópu til ársins 2030.
Þar var gert ráð fyrir tvöföldun á
verði á föstu verðlagi. Úlfar tekur
fram að ekki sé verið að tala um
hækkun á raforkuverði til almenn-
ings hér á landi í tengslum við
vindvirkjun.
Þegar litið er til staðsetningar
vindmyllugarðs koma þeir staðir
fyrst til greina þar sem stutt er
í tengivirki. Rafmagn yrði flutt
með jarðstreng þangað. Úlfar
segir vindvirkjun dýrari kost en
þann sem við þekkjum best, þ.e.
virkjun vatnsorku. Nýtingartími
á vindmyllum sé ekki hár, hafi að
meðaltali verið 25% í heiminum á
liðnu ári. „Við sjáum fyrir okkur að
hann geti verið hærri hér, kannski
á bilinu 30-40% en hann er ennþá
lágur. Þróist þetta þannig að
tæknin verði ódýrari og orkuverð
hækki, þ.e. til stóriðnaðar, þá
skapar það hagstæð skilyrði fyrir
því að vindorka verði að veruleika
hér á landi, en það er ekki hægt
að fara út í þetta af alvöru nema að
gera tilraun fyrst,“ segir Úlfar.
Ytra eru vindmyllur gjarna á
hæðum eða hólum. Úlfar segir
Vindmyllur SuðurlandSundirlendið hentar VindVirkjun beSt
Vindorka vinnur vel á móti
sveigjanlegri vatnsorku
Landsvirkjun skoðar notkun vindmylla til raforkuframleiðslu af alvöru. Tilraunavinnsla, sem er for-
senda stærri virkjunar, gæti hafist eftir tvö ár í kjölfar frekari rannsókna og tækjakaupa.
Þegar litið er til
staðsetningar
vindmyllugarðs
koma þeir staðir
fyrst til greina
þar sem stutt er
í tengivirki.
Athuganir hafa leitt í ljós að Suðurlandsundirlendið hentat best til framleiðslunnar
en ekki er tímabært að gefa upp nákvæmlega hvar á svæðinu.
of kviðusamt á fjöllum og auk þess meiri
ísingarhætta þar. Hann segir vindmyll-
urnar þó þola ótrúlega mikinn vind,
venjulegar myllur geti unnið orku upp í 25
metra vindhraða á sekúndu og hægt sé að
fá myllur sem vinni orku í 30 metra vind-
hraða. Lágmarks vindhraði til orkuvinnslu
er 4 metrar á sekúndu. Athuga verður að
vindhraði er gjarna meiri í 100 metra hæð
en við jörðu en algeng hæð masturs getur
verið 70-80 metrar og hástaða spaða t.d. 50
metrum ofar.
Úlfar segir miklu dýrara að staðsetja
vindmyllur á sjó en landi. Erlendis sé slík
staðsetning varin með auknum nýtingar-
tíma en hérlendis sjái menn ekki annað en
nýtingartími á landi sé það góður að land-
myllur séu fyrsti kostur.
Meðal kosta vindorkunnar hér er að hún
vinnur vel á móti sveigjanlegri vatnsork-
unni, auðlindin er ókeypis og loftmengun
lítil. Helstu ókostir vindmyllna eru sjón-
og hljóðmengun. Úlfar segir að auk þess
þurfi m.a. að huga að fuglalífi þegar tekin
er afstaða til staðsetningar, m.a. að myll-
urnar séu ekki á leið farfugla. Slíkt hefur
mikið verið rannsakað erlendis en Lands-
virkjun hóf slíka rannsókn hér á landi fyrr
í vikunni.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Úlfar Linnet Nauðsynlegt
að fara í tilraunaframleiðslu
áður en ákvörðun verður
tekin um stærri vindvirkjun.
nám bjórSkólinn Stútfullur
Fullbókað í einkakennslu fram í mars
Stútfullt er í einkakennslu Bjór-
skólans fram í mars á næsta ári.
Skólinn hefur þegar útskrifað
um 1.600 nemendur sem hafa
drukkið í sig fróðleikinn um bjór,
bruggun hans, styrkleika og lit-
brigði. „Við þurfum stundum að
grípa til aukakennsludaga,“ seg-
ir Elva Rut Erlingsdóttir, skóla-
stjóri Bjórskólans.
Hún segir að það hafi komið
mörgum á óvart hversu vel skóla-
haldið hefur gengið frá því að
skólinn var settur á stofn fyrir
tæpu ári og hve ásóknin hefur
verið mikil. „En ekki mér. Ég
hafði fulla trú á hugmyndinni.“
Flestir nemendurnir eru karl-
kyns, að sögn Elvu. „En það
slæðist ein og ein kona með og
þær eru að sækja á.“
Kennt er í skólanum á fimmtu-
dögum fyrir einstaklinga og
komast tuttugu að í hvert skipti,
en á föstudags- og laugardags-
kvöldum fer kennslan fram í lok-
uðum hópum. Elva segist aldrei
hafa fengið kvörtun eða heyrt
af vonsviknum nemendum þótt
þeir staulist ekki ölvaðir út. „Nei,
þetta er ekkert fyllirí, heldur
skemmtileg fræðsla með uppi-
standi,“ segir hún og hlær. „Til
drykkju eru barir betri.“
Kennt er í húsakynnum
Ölgerðarinnar, enda skólinn
hennar, og segir Elva það hafa
komið nemendunum á óvart að
drykkjarframleiðandinn hafi
ekki einblínt á eigin vörur, held-
ur kynni bjór hvaðan æva að.
„Markmiðið er jú að opna augu
landsmanna fyrir bjórmenningu
og bruggferli hans.“
gag@frettatiminn.is
Elva Rut,
skólastjóri
Bjórskólans.
8 fréttir Helgin 26.-29. nóvember 2010