Fréttatíminn - 26.11.2010, Page 24
Lúxus-íspinnar 3 x 120ml
298 kr.
Vanillu ís-stangir 12 x 60ml
398 kr.
Vanillu ístoppar 8 x 120ml
498 kr.
Góður ís á frábæru
verði í Bónus
BÝÐUR BETUR
Besta bókar-
kápa ársins
Handritið að kvikmynd
Arnar Featherby og Jóns
Magnússonar ...
eftir Braga Ólafsson
„Þessi kápa lýsir glimrandi
sjálfstrausti og kallar á að
bókin verði lesin. Til þess
eru bókarkápur.“
– Stefán Snær Grétarsson.
„Ég er hrifinn af ákveðinni
tegund af kæruleysi. Það
gengur ekki alltaf og ekki
sama hvernig það er gert.
Á bók Braga gengur þetta
mjög vel. Ég held að ég
hafi tekið fyrst eftir þessari
tegund hönnunar hjá Frank
Zappa – á hvítu Fillmore
East tónleikaplötunni.“
– Guðmundur Oddur Magnússon.
2. sæti
Sýrópsmáninn
eftir Eirík Guðmundsson
„Huggulegt „grunge“.
Snotrir litir og skemmtilega
gamaldags útfærsla.
Dálítið dularfull. Ragnar
Helgi klikkar ekki.“ –
Bergþóra Jónsdóttir.
„Þessa bók er gaman
að handleika, smekkleg
og einhvern veginn
svo „rétt“.“ – Stefán Snær
Grétarsson.
„Ég fell fyrir daufum
gulnuðum blöðum,
stjörnukortum og klassískri
leturnotkun. Nánast eins
gamaldags og hægt er
að hafa það. Stundum er
ég bara þannig. Það eru
nokkuð margar í þessari
kategóríu – Áttablaða-
rósin til dæmis – en ég vel
Sýrópsmánann.“
– Guðmundur Oddur Magnússon.
3. sæti Loðmar
eftir Auði Ösp Guðmundsdóttur
og Emblu Vigfúsdóttur
„Virkilega skemmtileg og
forvitnileg marglaga kápa.
Stílhrein með fallegum
útskurði og þrykki. Alltaf
gaman að sjá hönnuði
leika sér að forminu og
nálgast á annan hátt en
hinn augljósa. Bók sem
mann langar að taka upp
og skoða, fikta í útskurð-
inum og þreifa á þrykkinu.
Innihaldið ekki síðra.“
– Bergþóra Jónsdóttir.
4. sæti Gunnar Thorodd-
sen – Ævisaga
eftir Guðna Th. Jóhannesson
„Sterk framsetning. Ein-
staklega vel úthugsað að
láta Gunnar standa með
bakið í lesandann. Við
vitum flest hvernig Gunnar
leit út og hvernig hann kom
fram, en minna um hugs-
anir hans og tilfinningar.
Litasamsetning flott.“
– Elsa María Ólafsdóttir.
1279_2
1279_3
1279_4
1279_5
1279_6
1279_7
1279_8
1279_9
1279_10
1279_11
1279_12
1279_13
1279_14
Kæruleysi
gengur upp í
bestu bóka-
kápunni
Þótt langflestir sækist frekar eftir innihaldi bóka en
umbúðunum þarf ekki að deila um það að bókarkápan
gegnir mikilvægu hlutverki og góð kápa sem dregur
að sér athygli og heillar getur skilið milli feigs og
ófeigs í jólabókaflóðinu. Fréttatíminn fékk nokkrar
valinkunnar smekkmanneskjur sem fást ýmist við
bækur eða hönnun í það vandasama verkefni að velja
bestu og verstu bókarkápur ársins 2010. Einn álits-
gjafanna sagði að í ár hefði valið verið erfiðara en oft
áður þar sem fátt væri „framúrskarandi“ og lítið um
„hrylling“. Rétt er að hafa í huga að hér er fyrst og
fremst um samkvæmisleik að ræða og áfellisdómar
um bókarkápur gilda ekki um innihaldið.
Helgin 26.-28. nóvember 2010