Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 28
V ændiskonur eru ekki saklausar og barnalegar. Sumar stela, ljúga og beita jafnvel fjár-
kúgun. Ef kúnni á eiginkonu,
gott líf og er ríkur eiga þær
til að kokka upp alls kon-
ar sögur til að kreista
peninga út úr honum.
Þær segjast til dæmis
vera óléttar og hóta
að segja konunni
hans frá því, nema
þeir borgi til dæmis
hálfa milljón fyrir
þögnina. Auðvitað vilja
menn ekki að konurnar
fái svona fréttir og hjóna-
bandið spryngi. Síðan fer
allt í háaloft þegar gaurinn
kemst að því, að hann var
gabbaður. Þessir viðskipta-
vinir eru tilbúnir til að borga
fyrir þjónustuna og vilja
auðvitað vera öruggir.
Óvönduð hóra þarf ekki
meira en sjá, að kúnni komi
á fínum bíl til að draga þá ályktun, að
hann sé ríkur. Auðvitað notum við alltaf
smokk, en hann getur rifnað. Slysin
gerast. Og kúnninn gerir hvað sem
er til að halda þessu frá konunni
sinni. Þannig að oftar en ekki
skapa hórurnar eigin vandræði.
Þær eru ekki saklausar og þær
kunna leikinn og eru varla búnar
að vera í þessu nema eina viku þeg-
ar þær hafa áttað sig á því, hvernig
skuli spila með karlmenn. Auk
þess geta þær farið að búa það til
í kollinum sér, að kúnninn sé að
nota sig og eru svolítið afbrýði-
samar út í hann. Hann á kannski
dýran bíl, fallega konu og börn á
meðan hóran ferðast um í leigu-
bílum. Þeim finnst þess vegna
alveg réttlætanlegt að snúa að-
eins upp á þá og hafa af þeim
meira fé. Þær ófaglegu verða
afbrýðisamar út í eiginkonuna
og vilja fá alla peningana og lúx-
usinn sem hún hefur. Þetta er
vandamálabransi.
Ég veit líka um vændiskonur, sem taka
kynlíf sitt og viðskiptavina upp á mynd-
band og hóta að birta það, ef þeir borgi
ekki. Það kann ég ekki að meta. Ég á
samt slatta af kynlífsmyndböndum, sem
ég tók upp af mér og alls konar körlum,
sem höfðu ekki hugmynd um, að ég væri
að taka samfarir okkar upp. Þetta eru
upptökur af mér með viðskiptavinum,
einhverjum af kærustunum mínum og
alls konar mönnum, sem ég var að hitta
á stefnumótum. Ég tók þetta bara upp í
leyni mér til skemmtunar og ætla aldrei
að sýna þessi myndbönd og geymi þau
á öruggum stað. Ég horfði svo stundum
á þetta eftir á. Ég fæ mikið út úr kyn-
lífi og öllu sem tengist því og nýt þess
að skemmta mér í rúminu. Sumar kon-
ur hafa gaman af því, að telja saman
rekkjunauta sína og halda bókhald yfir
þá menn, sem þær hafa sofið hjá, en ég
safnaði bólfélögunum á myndbönd. Ég
vil samt ekkert vera að ræða þetta í smá-
atriðum, þar sem ég gerði þessi mynd-
bönd aðeins fyrir sjálfa mig. Þau koma
engum öðrum við.“
C
atalina segir, í samtali
við Fréttatímann, að
hún hafi fallist á að segja
sögu sína til þess að fólk
fengi að kynnast henni
eins og hún er en ekki þeirri mynd
sem fjölmiðlar hafa dregið upp af
henni. „Ég geri mér vonir um að með
bókinni fái fólk rétta mynd af mér og
því sem hefur gengið á í lífi mínu á
undanförnum árum.“
Catalina hefur setið í kvennafang-
elsinu í Kópavogi í um það bil eitt ár
en þar afplánar hún tvo dóma sem
saman hljóða upp á tæp fimm ár í
fangelsi. Þegar Catalina er spurð
hvort hún sé ánægð með bókina
segist hún varla geta tekið sér orðið
„ánægð“ í munn á meðan hún sé inni-
lokuð. „Ég á mjög erfitt með að segja
að ég sé ánægð eða að tala um ham-
ingju á meðan ég er í fangelsi. Frelsið
er mér allt og mér líður eins og fugli í
búri. En ég er stolt af þessari bók og
ánægð með þá ákvörðun mína að fara
út í þessa vinnu með blaðamönnunum
sem tóku að sér að skrá sögu mína.
Þetta var löng og mikil vinna en ég er
mjög þakklát fyrir að bókin er orðin
að veruleika,“ segir Catalina.
Litlar áhyggjur af því hvað aðrir
segja
Catalina segist ekki velta því mikið
fyrir sér hvað fólki muni finnast um
bókina og það sem hún segir þar.
„Ég hef nú ekki miklar áhyggjur af
því sem fólk segir um mig svo lengi
sem það er satt. Ég vil bara fá að lifa
góðu og eðlilegu lífi og kann ekkert
sérstaklega vel við alla þá athygli sem
ég hef fengið. Ég sóttist svo sannar-
lega ekki eftir sviðsljósinu en svona
atvikaðist þetta bara. Í bókinni er allt
sem ég vil segja um mig, líf mitt og
allt sem ég hef lent í en ég get ekki
stjórnað því hvað fólki finnst þannig
að ég læt það ekki trufla mig. Fjöl-
miðlar hafa skrifað margt um mig
sem ekki er satt og ég er ekki sátt við
allt sem hefur verið sagt um mig á
prenti. Þetta er eiginlega aðalástæðan
fyrir því að ég féllst á að segja sögu
mína. Ég vildi að fólk fengi tækifæri
til að kynnast Catalinu eins og hún er
í raun og veru. Að fólk fái rétta mynd
af mér í stað þeirrar sem hefur verið
dregin upp í fjölmiðlum.“
Catalina er íslenskur ríkisborgari
en hingað kom hún fyrst árið 1997
þegar hún var á unglingsaldri. Hún
hóf búskap í Vestmannaeyjum með
íslenskum sjómanni sem hún hafði
kynnst í heimalandi sínu, Miðbaugs-
Gíneu, en eftir að hún varð þekkt sem
vændiskona var hún kennd við upp-
runalandið í fjölmiðlum og oft nefnd
„Miðbaugsmaddaman“. Catalina var
húsmóðir á Íslandi í um það bil áratug
en þegar hjónabandinu lauk ákvað
hún að leggja fyrir sig vændi, ekki
síst þar sem hún fann fljótt fyrir mik-
illi eftirspurn og sá góða tekjumögu-
leika í vændinu.
Gjaldþrota eftir málareksturinn
„Ég vann í frystihúsi á meðan ég var í
Eyjum og við ýmis láglaunastörf eftir
að ég flutti í Kópavoginn. Eftir að ég
skildi hefði ég svo sem getað farið að
vinna aftur í fiski eða farið að vinna á
kassa í búð, en ég vildi verða rík og
ég hef ekki mikla trú á því að manni
takist það ef maður vinnur fyrir aðra.
Ég á samt slatta af kynlífsmyndböndum,
sem ég tók upp af mér og alls konar körlum.
Hið dökka man – Saga Catalinu
Fréttatíminn birtir hér kafla úr bókinni Hið dökka man eftir Jakob Bjarnar Grétarsson og Þórarin Þórarinsson
Miðbaugs-
maddaman
opnar sig
Vændiskonan Catalina Mikue Ncogo stimplaði sig afgerandi
inn í samfélagsumræðuna í byrjun árs 2009 þegar fréttist
að hún ræki vændishús á Hverfisgötu, í næsta nágrenni við
lögreglustöðina. Síðar þetta sama ár var hún, fyrst allra á
Íslandi, ákærð fyrir að hafa stundað mansal en var sýknuð
af þeirri ákæru. Hún fékk hins vegar dóma fyrir ýmis brot,
þar á meðal hórmang. Catalina segir sögu sína í bókinni Hið
dökka man – Saga Catalinu, eftir Jakob Bjarnar Grétarsson
og Þórarin Þórarinsson, sem kemur út í dag.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ei
ða
H
el
ga
dó
tt
ir
28 viðtal Helgin 26.-28. nóvember 2010