Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 42
6 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010
C harlotte Bøving leikkona er farin að hlakka til jólanna. Þau Benedikt Erlingsson,
eiginmaður hennar, og börnin
þeirra þrjú ætla að halda jólin í
heimalandi hennar, Danmörku.
„Við verðum hjá mömmu minni sem
býr á Norður-Jótlandi,“ segir Char-
lotte sem þessa daga na er önnum
kafin við að sýna einleikinn Þetta
er lífið í Iðnó. „Við höfum haldið
jól á Íslandi síðustu þrjú árin. Mér
finnst mjög kósí og gaman að vera
hér á jólunum. Það er svo mikil fjöl-
skyldustemning. Hér er fólk meira
saman en í Danmörku,“ segir Char-
lotte um muninn á jólahaldi hér-
lendis og í Danaveldi. Hún er hrifin
af því að kveikja á kerti og setja á
leiði látinna ástvina. „Mér þykir það
fallegur siður.“
Í Danmörku skreyta margir
jólatréð í byrjun desember og láta
það standa fram á annan í jólum en
Charlotte hefur ekki þann háttinn
á. „Við fjölskyldan söfnumst saman
á Þorláksmessu og skreytum tréð
saman. Ég skreyti tréð alltaf með
kertum en ég vandist því á æsku-
heimili mínu. Á aðfangadag kveikj-
um við á kertunum og eigum nota-
lega stund við jólatréð. Mér finnst
þetta svo huggulegt en Íslendingar
verða dáldið stressaðir, enda óvanir
því að hafa lifandi ljós á jólatrénu,“
segir hún og skellir upp úr.
Charlotte segist hafa mjög gam-
an af því að undirbúa jólin, ekki síst
þegar hún hafi nægan tíma. „Mér
finnst gaman að föndra og bý alltaf
til minn eigin aðventukrans. Fyr-
ir þremur árum bjuggum við vin-
kona mín til meira en tvö hundruð
jólaepli úr þæfðri ull og seldum
þau síðan á einni jólatréssölunni.
Undanfarin jól hafa verið nokkuð
óvenjuleg því fyrir tveimur árum
var ég ófrísk og í fyrra var ég með
tvö smábörn. Ég vildi samt endilega
búa til piparkökur með ellefu ára
dóttur minni á aðventunni. Annar
tvíburinn var órólegur og vildi ekki
sofa þannig að ég var með hann í
poka á maganum og bjó um leið til
piparkökurnar. Þetta var strembið
en ég vildi alls ekki sleppa þessu,“
rifjar Charlotte upp.
Er eitthvað sem þú hefur saknað
frá Danmörku um jólin?
„Nei, því fjölskyldan mín hefur
komið hingað. Ég hlakka til að vera
með systkinum mínum um jólin og
vona að það verði gaman. Stundum
væntir maður þess að jólin verði ljúf
og góð en svo verða þau það ekki.
En ég hlakka samt alltaf til jólanna
og vona að allir hagi sér vel,“ segir
Charlotte hress í bragði að lokum.
Lifandi ljós
á jólatrénu
Íslensk jól kósí og skemmtileg
Ráð við jólastRessi
Lín Design / Laugavegi 176 / Sími 533 2220 / www.lindesign.is
Charlotte verður með fjölskyldu sinni í Danmörku um jólin. Ljósmynd/Hari
Þórunn Lárusdóttir leikkona
„Taka jólin ekki of alvarlega. Fara í heitt bað og hlusta á góða jólatónlist. Kveikja á
kerti. Allt í lagi þótt það sé ryk í hornum. Hafa ekki áhyggjur. Njóta stundarinnar.“