Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 46

Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 46
10 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010 Hefðbundin aðferð við temprun Til að konfekTmolar fái sléTTa og gljáandi áferð er besT að Hjúpa þá með Tempruðu súkkulaði. Saxið súkkulaðið og bræðið við vægan hita. Hrærið í því á meðan það bráðnar og fylgist vel með hitanum með hitamæli. Dökkt súkkulaði ætti helst að verða 42-45°C heitt, en ljóst eða hvítt súkkulaði heldur svalara. Þegar rétta hitastiginu er náð, bætið þá söxuðu súkkulaði út í það bráðna. Það á að vera u.þ.b. 20% hlutfall af bráðna súkkulaðinu (t.d. 1 kg af bráðnu súkkul- aði og 200 g af söxuðu súkkulaði), blandið vel saman við og látið standa þar til súkkulaðið nær 32°C. Þá er það temprað. Passið að halda hitanum um 32°C. Ef það fer yfir það hitastig þarf að gera allt upp á nýtt. konfektgerð Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · sími 530 2200 · www.thjodminjasafn.is · Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17 Fallegar gjafir á góðu verði Safnbúð Þjóðminjasafnsins Sælusápur margar gerðir 650 kr. Viskastykki 2.490 kr. Hugrún Flöskutappar 4.500 kr. Safnbúðin Eldspýtustokkur 650 kr. Servéttur 850 kr. Kerti 1.850 kr. Jólalínan frá Heklu Íslensk leikföng Víkingaskip 3.300 kr. Djákninn á Myrká 1.990 kr. Stubbur leikfangasmiðja Falleg bókamerki 300 kr. Bláberjalyng 2.990 kr. Bility Rósavettlingar 8.900 kr. Sesselja Þórðardóttir Sérpakkað súkkulaði 595 kr. Safnbúðin Úrval af áhugaverðum bókum. Laufabrauðsjárn, 5.900 kr. Ægir P álmi Jónsson er í draumastarfi súkkulaði­áhugamannsins. Hann er viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Nóa Síríusi og hefur haldið námskeið í konfektgerð fyrir þá sem vilja læra að búa til sitt eigið eðalkonfekt. „Því fyrr sem jólakonfektið er búið til, þeim mun betra, vegna þess að með því kemur jólaskapið. Eða þannig er það að minnsta kosti heima hjá mér,“ segir Pálmi brosandi og saxar súkkulaði. Hann segir að konfekt geymist vel og því sé gott að búa það til í byrjun desember. „Oftast er konfektið borðað svo fljótt að það verður aldrei gamalt, en þá er bara að búa til meira.“ Pálmi lærði til meistara í matreiðslu í Dan­ mörku, þar sem hann ólst upp. Í náminu var farið vítt og breitt um matargerð og þar kynntist Pálmi konfektgerð. Hann vann á veitingastöðum, m.a. í Kaupmannahöfn, og hafði umsjón með eftir­ réttum og konfektgerð. Hérlendis vann hann hjá Vox og Turninum áður en Nói Síríus fékk að njóta krafta hans. Hvað þarf að hafa í huga áður en hafist er handa við að búa til konfekt? „Hafa þetta eins einfalt og mögulegt er þannig að hægt sé að búa til konfektið nánast hvar og hvenær sem er án mikils tilkostnaðar. Gott er að athuga hvað maður á heima áður en farið er af stað. Finna þarf til súkkulaðimót ef ætlunin er að steypa konfektið. Síðan þarf að vera aðstaða til að bræða súkkulaðið, annað hvort yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Digital­hitamælir er nauðsynlegur þegar tempra á súkkulaðið en sú aðferð krefst þess að hitastig súkkulaðisins sé nákvæmt. Slíkir mælar fást í flestum búðum sem selja búsáhöld. Loks þarf að versla inn eftir innkaupalistanum og hefjast handa.“ Hvað er temprun? „Temprun er ákveðin aðferð til að konfektmol­ arnir verði sléttir og gljáandi. Ef súkkulaðið er ekki temprað verður yfirborðið dáldið matt og líf­ laust þegar það storknar. Temprunin lítur út fyrir að vera flókin, en hún er það samt ekki. Það þarf aðeins að æfa sig og prófa sig áfram. Það er fyrir­ hafnarinnar virði.“ Borðar þú mikið súkkulaði í vinnunni? „Nei, ég reyni að halda mig við nammidag í vinnunni á föstudögum og heima á laugardögum. Þannig verður maður aldrei leiður á súkkulaði.“ Pálmi segir að flest börn hafi gaman af því að búa til sitt eigið konfekt. „Það barnakonfekt sem hefur alltaf vakið mesta lukku heima hjá mér er temprað hvítt súkkulaði eða rjómasúkkulaði sem er steypt í gömul jóladagatalamót. Ég ríf einfald­ lega pappann utan af gömlum súkkulaðidaga­ tölum og þá eru komin þessi fínu súkkulaðimót. Tempruðu súkkulaði er hellt í mótið og skafið yfir með spaða til að fá sléttan botn. Loks er súkkul­ aðið látið kólna. Súkkulaðimolarnir eiga að detta úr mótinu þegar því er snúið við og krökkunum líður eins og þeir eru flottustu súkkulaðimeistarar heims!“  Heimagert konfekt slær alltaf í gegn marsípan- og orange- konfekt 250 g gott marsípan 40 ml appelsínusafi börkur af 1 appelsínu grand marnier Hnoðið saman marsípan og appelsínusafa, rífið appelsínubörkinn af með rifjárni og blandið saman við. gott að smakka til með grand marnier. mótið kúlur úr marsípan- inu og látið þær standa í stofuhita í u.þ.b. klukku- tíma. Dýfið kúlunum þá í temprað súkkulaði, t.d. síríus 70%, raðið konfektinu á smjörpappír og skreytið með t.d. söxuðum möndlum. kletta- konfekt auðvelt fyrir krakka 200 g temprað rjómasúkkulaði 100 g gróft saxaðar salthnetur dill Hellið tempruðu súkkul- aði í skál og blandið hnetunum saman við súkkulaðið og smakkað til með dilli. mótið kletta- konfektið á smjörpappír og látið storkna. þessir molar eru flottir skreyttir með söxuðum salt- hnetum og gróft söxuðu súkkulaði. Trufflur 520 g dökkt súkkulaði 500 g rjómi 100 g smjör bræðið súkkulaðið við vægan hita á meðan suðan er látin koma upp á rjómanum. blandið rjóm- anum saman við súkkul- aðið í smáskömmtum. látið kólna lítillega og setjið þá smjörið saman við. látið stífna al- veg í ísskáp. mótið kúlur og veltið upp úr kakói, eða hjúpið með tempruðu súkkul- Jólaskapið kemur með konfektinu gott ráð! að bræða súkkulaði Þegar brætt súkkulaði er notað með öðru hráefni er best að byrja alltaf á að bræða súkkulaðið og bæta síðan hráefninu út í. gott ráð! fjölbreyTTara bragð Prófaðu að bæta kryddi eða ferskum kryddjurtum við trufflurnar. aði og veltið í hnetum eða hverju því sem ykkur dettur í hug.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.