Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 50
14 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna selur falleg hálsmen
í fjáröflunarskyni. Hálsmenin eru með áletruninni VON á þremur
tungumálum, íslensku, ensku og latínu. Fáanleg bæði úr silfri og stáli
(grófari fyrir herra). Silfurmen kostar aðeins 4.000 krónur
og stálmen 3.500 krónur.
Hálsmenin eru til sölu á heimasíðu Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna,
www.skb.is og í síma 588 7555. Boðið er upp á heimsendingu.
Hjálpum félagsmönnum að halda í sína von.
Tilvalin jólagjöf!
V O N · H O P E · S P E S
OKKAR VON
JÓLAKORT SKB
Glæsileg jólakort SKB eru til sölu á heimasíðunni www.skb.is.
Þrjár gerðir af kortum eru til sölu.
Tryggðu þér jólakort og styrktu gott málefni.
Jólaskraut
Áður fyrr skreytti fólk híbýli sín um
jól með kertaljósum, sem þóttu
kærkomin tilbreyting frá hversdags-
leikanum. Það er fremur nýr siður að
skreyta allt hátt og lágt.
Valgerður
Guðnadóttir
söngkona
„Ég myndi kveikja á góðu ilmkerti,
setja á rólega og fallega tónlist og
fara í heitt bað til að slaka á fyrir
jólin. Til að forðast jólastressið mæli
ég með því að fara á skemmtilega
tónleika og síðan er alltaf gott að
fara í góðan göngutúr, það er svo
hollt fyrir líkama og sál.“
Ráð við jólastRessi
Vissir þú
þetta?
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt
Jólagjafir
Sá siður að skiptast
á jólagjöfum er
tiltölulega
nýr hérlendis.
Það er eldri
siður að gefa
sumargjafir en til
eru heimildir um
sumargjafir frá 16.
öld. Á seinni hluta
19. aldar fóru gjafir að tíðkast í einhverjum
mæli. Fyrsti vísirinn að því var að gefa
öðrum kerti til að lífga upp á tilveruna.
Síðan fengu flestir eina nýja flík svo þeir
færu ekki í jólaköttinn. Eftir því sem leið á
19. öldina fór að bera meira á jólagjöfum
og jólaauglýsingar komu í kjölfarið.
Aðventuljós
Þótt ótrúlegt sé er það tiltölulega nýr siður að setja að-
ventuljós út í glugga. Aðventuljósin komu fyrst til Íslands
frá Svíþjóð árið 1964. Þau náðu strax miklum vinsældum
og prýða nú flest heimili á aðventunni.
Jólatré
Fallega skreytt jólatré er hluti af
jólunum í hugum flestra. Þó er
þessi siður fremur nýr af nálinni.
Um miðja 19. öld tíðkaðist að
skreyta heimilið með heima-
smíðuðu jólatré. Aðeins var á
færi þeirra efnameiri að kaupa
innflutt grenitré. Á tuttugustu
öldinni fóru grenitrén að ryðja
sér til rúms og þau urðu algeng
meðal almennings.
Aðventukrans
Aðventukransar komu fram í kringum 1930
og eru löngu orðnir ómissandi á aðventunni.
Laufabrauð
Laufabrauð er að margra
mati séríslenskt fyrirbæri.
Laufabrauð varð til vegna
þess að erfitt var að fá
hráefni í brauð. Til að allir
fengju eitthvert góðgæti
að borða var laufabrauðið
haft þunnt og síðan skreytt
með fögrum útskurði. Það
var þó ekki á borðum almenn-
ings fyrr en á 19. öld og þá helst um
norðanvert landið. Stutt er síðan laufabrauð varð hluti af jóla-
hefð hjá flestum Íslendingum.