Fréttatíminn - 26.11.2010, Page 52
16 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010
.
10 R.
R.
hálsi 3
- 110 R
.
..
F lestir njóta jólanna í faðmi fjölskyldunnar en Jón Ragn-ar Jónsson læknanemi ætl-
ar að vinna um hátíðarnar. Hann
mun leysa af lækninn í Búðardal
og finnst ekkert tiltökumál að vera
aleinn um jólin, fjarri fjölskyldu og
vinum. „Ég sá auglýst eftir lækna-
nema í afleysingar á heimasíðu
læknanema og ákvað að sækja um.
Maður stekkur nú á hvert tækifæri
til að safna í reynslubankann, og
mér fannst kominn tími til að bæta
ferð út í hérað undir beltið. En það
verður bakvakt reynslumeiri heim-
ilislæknis sem ég get reitt mig á
ef þörf krefur. Að auki verður gott
að vinna sér inn pening,“ segir Jón
Ragnar sem verður á vakt öll jól-
in. „Ég verð að vera tiltækur allan
Á vaktinni
um jólin
Jón Ragnar Jónsson læknanemi verður að vinna um jól og áramót
sólarhringinn og fæ íbúð á vegum
heilsugæslunnar,“ segir hann.
Hvernig leggst þetta í þig?
„Mjög vel. Ég er mjög spenntur
fyrir þessu. Ég er heldur ekki bú-
inn að stofna eigin fjölskyldu og
finnst sjálfsagt að fórna mér fyrir
þá sem hafa meiru að tapa. Þetta
verður kannski ekki eins gaman og
að vera með fjölskyldunni en ég hef
litlar áhyggjur af því.“
Ætlar þú að gera þér einhvern
dagamun yfir hátíðarnar?
„Góð spurning. Ég hef ekki hugs-
að út í það. Ætli ég reyni ekki að
elda góðan mat og svo er aldrei að
vita nema félagi minn, sem er frá
Búðardal, verði á staðnum og ég get
þá litið við hjá honum ef tækifæri
gefst til.“
Hefur þú ákveðið hvort þú opnar
jólapakkana þína í Búðardal eða
bíður með það?
„Ég ætla að láta það ráðast. Senni-
lega er skemmtilegra að opna þá
með fjölskyldunni. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem ég er fjarri heima-
högum um jólin. Í hittiðfyrra var
ég á ferðalagi um Suður-Ameríku
og eyddi jólunum í Perú. Þá bað ég
sérstaklega um að það yrðu haldin
litlu jólin þegar ég kæmi heim. Það
er aldrei að vita nema ég biðji um
það aftur, þ.e.a.s. ef mamma verður
búin að fyrirgefa mér að yfirgefa
hana aftur um jólin.“
Linda Björk
Hilmarsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Hress
heilsurækt
„Einfaldaðu líf þitt, njóttu hvers
augnabliks og skipuleggðu þig. Ekki
eyða um efni fram því það veldur
oft áhyggjum. Notaðu til dæmis
gamla jólaskrautið, það laðar oft
fram hinn eina sanna jólaanda.
Láttu gott af þér leiða fyrir aðra
og fyrir líkama þinn og sál. Ekki
gleyma þér í öllu jólaamstrinu.“
Ráð við jólastRessi
Í hittiðfyrra var ég á ferða-
lagi um Suður-Ameríku og
eyddi jólunum í Perú. Þá
bað ég sérstaklega um að
það yrðu haldin litlu jólin
þegar ég kæmi heim.
Jón Ragnar er barnlaus og finnst sjálfsagt að fórna sér fyrir þá sem hafa meiru að tapa með því að vinna þegar aðrir eru að
taka upp pakkana. Ljósmynd/Hari