Fréttatíminn - 26.11.2010, Síða 58

Fréttatíminn - 26.11.2010, Síða 58
22 jól Helgin 26.-28. nóvember 2010 – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 24 31 1 1/ 10 Jólin eru tími til að gefa. Í Lyfju finnurðu úrval af gjafavöru í pakkana til þeirra sem þér þykir vænst um. Við erum aldrei langt undan. Kannski er jólagjöfin í Lyfju Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Setbergi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík Á Þorláksmessu heldur Nanna Rögnvaldar-dóttir boð fyrir vini og vandamenn þar sem hún býður upp á smárétti í bland við stærri steikur. „Það er mjög þægilegt að bjóða upp á mismunandi smá- rétti í jólaboðum. Marga smárétti má útbúa með stuttum fyrir- vara, eða samdægurs, en aðra má gera daginn áður eða jafnvel enn fyrr og frysta,“ segir Nanna sem nýlega sendi frá sér mat- reiðslubók þar sem smáréttir eru einmitt í aðalhlutverki. „Smá- réttir geta verið afar fjölbreyttir, jafnvel þótt þeir séu svipaðir, með því að útbúa mismunandi sósur og ídýfur eða nota mismunandi krydd,“ upplýsir hún og bætir við að hún bjóði oft upp á smárétti þegar hún fær gesti. „Svo hef ég líka útbúið smárétti fyrir ættingja og vini þegar þeir halda veislur.“ Þorláksmessuboðin hjá Nönnu hafa vakið mikla lukku en hvern- ig kom það til að hún fór að halda boð þennan dag? „Ég fór alltaf norður á Sauðárkrók til foreldra minna á jólunum en eftir að ég hætti því fór ég að hafa opið hús alla Þorláksmessuna til að hitta vini og kunningja. Ég bý í mið- bænum og fólk er mikið á ferð- inni þennan dag. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir fólk til að hittast og skiptast á kveðjum og pökkum. Það eru margir fastagestir sem koma ár eftir ár og segja að jólin byrji hjá mér. Ég held þessu áfram á meðan ég hef gaman af því – og ég hef enn gaman af þessu,“ svarar hún kankvís. Nanna er ekki ein af þeim sem hafa alltaf það sama í jólamatinn frá ári til árs. „Ég hef þá stefnu að vera ekki með neina fasta siði sem ekki megi hvika frá. Ég vil ekki festa mig í venjum. Barna- börnin vilja að vísu helst fá andar- bringur og því hef ég haft þær síðustu árin en þá er bæði for- og eftirrétturinn mjög breytilegur. Ég ákveð stundum ekki fyrr en á Þorláksmessu hvað verður í jólamatinn, enda er ég ekki alltaf mjög fyrirhyggjusöm,“ segir Nanna og bæti við að það sé afar mismunandi hvenær hún byrji að undirbúa jólin. „Stundum á haustin en stundum ekki fyrr en í desember.“ Hangi kjöts - tætingur 150 g hrátt, taðreykt hangikjöt 2 msk. gott balsamedik 2 msk. ferskt timjan, saxað nýmalaður pipar Skerðu hangikjötið í litla bita. Best er að það sé bragðmikið og ég mæli með tvíreyktu sauðahangikjöti. Settu það í matvinnsluvél og grófsaxaðu það – notaðu púlshnappinn eða kveiktu og slökktu á vélinni til skiptis ef hann er ekki til staðar. (Ef þú átt ekki matvinnsluvél geturðu skorið kjötið mjög smátt með beittum hníf.) Settu það í skál, ýrðu balsam- ediki yfir, hrærðu timjani og pipar saman við og láttu standa smástund. Sítrónuleginn þorskur 150 g þorskur (eða annar fiskur eftir smekk) 1 sítróna ½-1 tsk. rautt chili-aldin, fræhreinsað og saxað mjög smátt ½ lítil rauð paprika, fræ- hreinsuð og söxuð smátt nokkur basilíkulauf, skorin í mjóar ræmur nýmalaður pipar salt Gott er að frysta fiskinn til hálfs eða nota frosinn fisk og skera hann þegar frostið er rétt byrjað að fara úr honum, þá er auðvelt að skera hann í mjög þunnar sneiðar. Dreifðu sneiðunum á disk og kreistu safann úr sítrónunni yfir. Dreifðu svo chili, papriku og basilíku yfir og kryddaðu með pipar og salti. Láttu standa í um 1 klst. Heldur árlega boð á Þorláksmessu  Matarboð SMÁréttir í bland við StórSteikur Lj ós m ny d/ G ís li Eg ill H ra fn ss on Í skeið Það er dálítið flott að bjóða upp á alls konar góðgæti borið fram í matskeiðum, oftast með sérstaklega beygðu og sveigðu skafti sem ekki er hægt að nota til neins annars en í svona fínirí – en fæstir eiga slíkar skeiðar og það er engin ástæða til að fjárfesta í þeim ef þær verða svo bara notaðar einu sinni á ári. En það er hægt að fara aðrar leiðir. Það má nota venjulegar matskeiðar, ef þær eru fallegar og maður á nóg af þeim – þá getur verið gott að hafa þær á bakka með barmi og láta skaftið hvíla á barminum svo skeiðin haldist bein og ekki renni úr henni – eða litlar skálar af ýmsu tagi, en þá þarf reyndar oftast að hafa lítinn gaffal eða skeið með. Alla þessa rétti sem hér koma uppskriftir að má líka bera fram á disk eða fati og láta gestina skammta sér sjálfa, annaðhvort á smádiska með öðru góðgæti eða á brauð eða kex. Svo henta þeir líka allir mjög vel sem forréttir, bornir fram á litlum diskum, kannski með nokkrum salatblöðum og ristuðu brauði eða hvítlauksbrauði. SMÁréttir nönnu Ég hef þá stefnu að vera ekki með neina fasta siði sem ekki megi hvika frá. Ég vil ekki festa mig í venjum. Nanna Rögnvaldardóttir stressar sig ekki á jólaundirbúningnum. Stundum hefst hann á haustin og stundum í desember. Ljósmynd/Hari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.