Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 62
Minnisblað Guðna Bragasonar sendifull-
trúa um fund hans og Helga Ágústssonar
sendiherra í bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu 18. mars 2003 er stórmerkilegt plagg.
Þar kemur fram, svo að varla verður um
villst, að ástæðan fyrir því að Ísland var
sett á lista þeirra þjóða sem studdu innrás
Bandaríkjanna í Írak var einföld. Stuðning-
urinn var seldur. Uppsett verð var að horfið
yrði frá fyrirætlunum Bandaríkjamanna um
að hverfa á brott með herlið sitt frá Miðnes-
heiði.
Hún hefur verið lengi á kreiki kenningin
um að nákvæmlega þetta atriði hafi vegið
þyngst þegar Davíð Oddsson, þáverandi
forsætisráðherra, og Halldór Ásgríms-
son, þáverandi utanríkis-
ráðherra, ákváðu upp á sitt
eindæmi að Ísland yrði á
lista hinna viljugu þjóða.
Birting Fréttatímans á
minnisblaðinu skýrir þá
mynd til muna.
Komið hefur fram í
heimspressunni að stjórn
George W. Bush vílaði ekki
fyrir sér að beita fjölbreytt-
um aðferðum við að safna nöfnum á lista
hinna viljugu þjóða og líka hitt, að þjóðirnar
hafi hreint ekki allar verið sérlega viljugar.
Hótanir og mútur eru meðal orða sem
notuð hafa verið um aðfarir bandarískra
stjórnvalda. Það sem haft er eftir hinum
háttsetta bandaríska embættismanni í
minnisblaði Guðna staðfestir að minnsta
kosta hluta þessara lýsinga: „... Bandaríkja-
stjórn áttaði sig vel á því að stuðningur ríkja
við aðgerðirnar væri nokkru verði keyptur“,
stendur þar skrifað af diplómatinum sem
hefur enga ástæða til að setja spuna til eða
frá á málið, heldur færir það til bókar eins
og það kom af skepnunni.
En ólíkt sumum öðrum þjóðum sátu
Íslendingar ekki undir hótunum, heldur
voru kjörnir fulltrúar þjóðarinnar í kaup-
skap með stuðning við árásarstríð í trássi
við samþykktir Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna, til að freista þess að halda banda-
rískri herstöð í landinu.
Með því allra magnaðasta í minnis-
blaðinu eru orð íslenska sendiherrans um
að „Ísland gæti orðið skotmark hryðju-
verkamanna vegna stuðningsins“. Í sam-
hengi við innihald minnisblaðsins er erfitt
að skilja þetta á annan veg en þann að ís-
lensk stjórnvöld hafi beinlínis ákveðið að
kalla þessa hryðjuverkaógn yfir landið svo
að erfiðara væri að fara með herinn burt.
Það dugði auðvitað skammt. Herinn var
farinn þremur árum síðar.
Það er ógnvænleg tilhugsun að íslenskir
ráðamenn hafi gert þjóðina að þátttakanda
í innrás í land í annarri heimsálfu – þar
sem meira en hundrað þúsund menn, kon-
ur og börn hafa farist – og fært landið inn á
radar mögulegra hryðjuverkamanna í þeim
tilgangi að verja óbreytt atvinnuástand á
Reykjanesi.
38 viðhorf Helgin 26.-28. nóvember 2010
Vera Íslands á lista hinna viljugu þjóða
Myndin skýrist
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga-
stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Miðopnu ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
É g hef komið til Suður-Kóreu. Ég hef raunar einnig heim-sótt Taívan. Löndin eiga
það sameiginlegt að eiga einhvers
konar systurríki sem eru verri út-
gáfur af þeim sjálfum. Taívan kall-
ar sjálft sig „Lýðveldið Kína“ og er
þannig séð arftaki þess ríkis sem
finna mátti á meginlandinu áður en
kommúnistarnir tóku völdin. Það
ríki var raunar ekkert spes, en hins
vegar hafa Taívanar fetað góðan veg
undanfarna áratugi. Taívan er þann-
ig lýðræðisleg útgáfa af Kína.
Vafasami eldri bróðirinn
Suður-Kórea á einnig vont systur-
ríki, sem er Norður-Kórea. Saman-
burður á þessum systkinapörum
leiðir auðvitað í ljós að þau eru æði
ólík. Kína er margfalt stærra en
Taívan. Suður-Kórea er helmingi
stærra en Norður-Kórea. Kína hef-
ur á undanförnum áratugum risið
hratt sem viðskiptaveldi með til-
heyrandi lífskjarabótum fyrir íbúa
þess. Norður-Kóreumenn eru í al-
gjöru rugli.
Það má því kannski segja að Al-
þýðulýðveldið Kína sé eins og vafa-
sami eldri bróðirinn sem klæðir sig
smekklega, ávarpar menn kurteisis-
lega, en menn vilja samt ekki fá upp
á móti sér. Norður-Kórea er hins
vegar eins og ungi bróðirinn sem
hefur alltaf verið til vandræða og er
nú kominn í dópið.
Vælir út pening til
að eiga fyrir næsta
skammti og lemur
fólk.
Í fljótu bragði virk-
ar utanríkisstefna
Norður-Kóreu á eft-
irfarandi hátt: Menn
væla út pening fyrir
mat til að byggja upp
her sem þeir nota
til að kúga út meiri
pening til að byggja
upp meiri her. Á
meðan búa íbúarnir
við óþurftarbúskap
sem er sagður sjálfs-
þurftarbúskapur.
Þeir búa við kúgun, ofbeldi og heila-
þvott. Formlegur leiðtogi ríkisins
er dauður gaur, Kim Il Sung, faðir
núverandi leiðtoga. Þetta hefur ver-
ið kallað necrocracy á ensku; ríki
sem er stjórnað af hinum dauðu.
Líkræði.
... og stóri pottþétti bróðirinn
Ég hef hitt nokkra sem heimsótt
hafa þetta undarlega samfélag og
lesið þó nokkrar frásagnir af þaul-
skipulögðum ferðum þangað þar
sem fulltrúar stjórnvalda fylgja
mönnum hvert fótmál. Það skoplega
er að jafnvel kínverskum gestum
slíkra ferða finnst þeir vera staddir í
hugmyndafræðilegu
og efnahagslegu Ár-
bæjarsafni. Samt
skorar Kína ekki
beint toppeinkunn á
lýðræðis- og mann-
réttindaprófinu.
Það er raunar
ákveðin huggun að
vita að af frásögnum
þeirra Norður-Kór-
eumanna sem flúið
hafa land má merkja
að margir átti sig á
að þeir búi í ömur-
legu ríki. Frelsisþrá
sumra verður ekki
kæfð, jafnvel með
óhóf legu magni
kjaftæðis. Allir íbúar þessa glataða
ríkis ættu að eiga fulla samúð okkar
og við skulum vona að þau muni dag
einn vakna; ef ekki í lýðræðisríki þá
alla vega í „venjulegu“ harðstjórnar-
ríki. Sem er ekki súrrealískt í mann-
vonsku sinni.
Stóri pottþétti bróðirinn, Suður-
Kórea, á auðvitað að halda að sér
höndum og ekki láta hafa sig út í
eitthvert rugl. Styrjöld er það síð-
asta sem fólkið á þessum skaga
þarf. En við skulum samt vera skýr
í því með hverjum við stöndum. Það
er nefnilega þannig að oft þegar
tveir deila, þá hefur annar einfald-
lega rétt fyrir sér.
Átökin á Kóreuskaga
Vondi tvíburinn
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Fært til bókar
Hvað með skotapilsin?
Fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur alþingismanns til Ögmundar
Jónassonar dóms- og mannréttindaráð-
herra um það hvort hann telji rétt að
banna búrkur vakti athygli. Haft var eftir
Þorgerði Katrínu að hún væri þeirrar
skoðunar að banna bæri þennan búnað
kvenna. Salmann Tamini, formaður
Félags múslíma á Íslandi, svaraði þing-
manninum og sagði téðan búnað ekki
part af íslam heldur hluta af hefðum í
ríkjum eins og Sádi-Arabíu og Afgan-
istan. Því væri um mannréttindamál að
ræða, fólk ætti að fá að klæða sig eins
og því sýndist. Salmann spurði síðan
hvort afklæða ætti ferða-
menn sem kæmu hing-
að með búrkur. Með
smá snúningi má
einnig velta því fyrir
sér hvernig taka
eigi á Skotum
í pilsum og
Færeyingum
með skott-
húfur.
Handlama og heiladauðir
Björgvin Þorsteinsson, lögmaður
hjónanna á meðferðarheimilinu Árbót,
lét ekki deigan síga í málflutningi í þeirra
þágu. Hjónin fengu 30 milljóna greiðslu
frá ríkinu, svo sem frægt er orðið, en frá
því í janúar sendi Björgvin nær 40 tölvu-
pósta til félagsmálaráðuneytisins, flesta
til skrifstofustjórans Einars Njálssonar,
að því er Vísir greindi frá. Ekki er að sjá
að lögmaðurinn hafi mikla trú á kerfinu.
„Er málið algerlega frosið,“ skrifar hann
í mars. Í júní er honum farið að leiðast
þófið og segir: „Sæll Einar. Hann er
líklega ekki hraðlæs aðstoðarmaðurinn.
Er ekki rétt að lesa þetta fyrir hann?“
Ekki eykst álitið í júlí. Þá segir Björgvin
í pósti til Einars: „Sæll Einar. Eru flestir
heiladauðir í þessum ráðuneytum? Nú á
að vera búið að borga að hluta til sam-
kvæmt samkomulaginu en það fæst
ekki undirritað. Er nokkur möguleiki
að þetta klárist í tíð þessarar stjórnar?
Þegar haustar, þ.e. í október, er skotið
fast á ráðherrann en í pósti til Einars
segir Björgvin: „Sæll Einar. Er nokkuð að
frétta af hinum handlama ráðherra vel-
ferðarmála?
M
Einbýlishúsalóðir í
Akralandi til sölu
Tilboðsfrestur er til 8. desember 2010 kl.12.00
og skulu tilboðin berast til skrifstofu Auðar Capital hf.
Borgartúni 29, 105 Reykjavík, merkt ,,Akraland”
Góðakur 2. Landnr. 187240.
Lóðin er óhreyfð og selst án gatnagerðar-
gjalda. Gatnagerðargjöld eru skv. gjaldskrá
Garðabæjar
Gullakur 3. Fastanr. 230-5333.
Samþykkt er að byggja um 390 fm einbýlishús
á lóðinni en búið er að reisa sökkla og
stoðveggi. Gatnagerðargjöld af húsinu eru
þegar greidd.
Lóðirnar eru í eigu kröfuhafa sem leystu þær til
sín á nauðungaruppboði þann 8. október sl.
Lóðirnar seljast eins og þær eru og eru bjóðendur
hvattir til að kynna sér þær með skoðun.
Auður Capital óskar eftir tilboðum í einbýlis-
húsalóðir í Akralandi. Um er að ræða tvær lóðir í
nýju og eftirsóknarverðu hverfi í Garðabæ.
Nánari upplýsingar veitir: Friðjón Sigurðarson
fridjon@audur.is sími: 585 6500
Borgartún 29 I s. 5856500 I www.audur.is
Stuðningurinn var seldur. Uppsett verð var að horfið yrði
frá fyrirætlunum Bandaríkjamanna um að hverfa á brott
með herlið sitt frá Miðnesheiði.