Fréttatíminn - 26.11.2010, Blaðsíða 78
54 tíska Helgin 26.-28. nóvember 2010
Vel þjálfuð í að
finna sér fatnað
í Kolaportinu
L ífið innan veggja Kolaportsins er lif-andi og litríkt og
stemningin er alltaf í há-
marki. Þar safnast saman
kaupmenn yfir helgina og
selja vörur sínar, heildsalar
kynna nýjar vörur, íþrótta-
félög selja gamlar vörur í
fjáröflunarskyni og kórar
landsins taka lagið. Rétt
fyrir opnun þess á laugar-
dagsmorgnum myndast
röð fyrir utan húsið og
viðskiptavinir keppast við
verða sér úti um varning
helgarinnar. Í hverri viku
má finna nýjar vörur frá
nýjum kaupmönnum og
fjölbreytnin er í fyrirrúmi.
Í Kolaportinu eru alls
konar básar sem selja nýjar
og notaðar vörur, handunn-
ar vörur, skartgripi, bækur
og geisladiska. Básarnir
eru hver öðrum girnilegri
og fjölbreytnin er eins
mikil og þeir eru margir.
Landsmönnum er gert
kleift að leigja sér bás yfir
helgina og fá tækifæri til
að næla sér í aukapening.
Aðrir hafa komið fyrir sér í
föstum básum þar sem þeir
koma og selja vörur sínar
um hverja helgi. Básar
Kolaportsins draga að sér
fjöldann allan af fólki sem
mætir í Kolaportið í von um
að finna eitthvað við sitt
hæfi.
Margrét Rajani og
Magnús Ágústsson eru
tíðir gestir í Kolaportinu
og eru vel þjálfuð í að finna
sér fatnað og aukahluti sem
henta þeim. Um síðustu
helgi þræddu þau Kolaport-
ið saman og rótuðu eftir
fatnaði sem hentaði þeirra
klæðaburði.
Magnús átti auðvelt með
Í hverri
viku má
finna nýjar
vörur frá
nýjum
kaupmönn-
um og fjöl-
breytnin er
í fyrirrúmi.
Magnús:
Buxur og belti:
500 krónur
Úlpa: 2.000 krónur
Gönguskór: 3.500
krónur
Peysa: 500 krónur
Margrét:
Rúllukragapeysa:
300 krónur
Leðurstuttbuxur:
500 krónur
Sokkabuxur:
600 krónur
Skór 2.500 krónur
Þ að er svo góð tilfinning að vera komin á nýjan stað með betrumbætta og stærri verslun sem fær að njóta sín í svona flottu rými,“ segir
Svava. Síðustu tíu ár hefur verslunin Eva verið á
Laugavegi 89/91 og finnst Svövu tímabært að breyta
til, auka úrvalið og stækka hana. ,,Þetta er Evu-
verslun eins og konur hafa þekkt hana frá upphafi,
þ.e. klassískur fatnaður í bland við grófari fatnað sem
höfðar mest til kvenna yfir tuttugu og fimm ára. Einn-
ig hefur skódeildin mikið verið efld og úrvalið aukist.
Eva skór verður með glæsilega nýjung í skóm en þar
munum við selja klassíska og vandaða skó og stígvél
í bland við grófari frá ýmsum spennandi merkjum,
aðallega ítölskum og spænskum.
„Það er gaman að sjá hve mikil gróska er hérna
neðar í miðbænum og virkilega mikill sjarmi yfir
Laugaveginum. Þetta er æðisleg tilfinning að flytja
í jafn glæsilega verslun og Evu neðar í götunni og
andrúmsloftið hér er mjög skemmtilegt. Laugaveg-
urinn er orðinn tvískiptur, hér eru fleiri verslanir,
veitingastaðir, barir og miklu meiri sjarmi. Ég held
að Laugavegurinn sé að byrja að byggjast upp aftur
eftir hrunið og er sannfærð um að efri hlutinn á eftir
að byggjast upp á næstu misserum. Miðbærinn hefur
alltaf skipt mig máli, hér slær hjarta Reykjavíkur.“
Verslunin Eva betrumbætt
Verslunin Eva hefur starfað í heila fjóra áratugi og hefur aldrei verið stærri og glæsilegri. Svava
Johansen, eigandi NTC-keðjunnar, hefur rekið verslunina í ellefu ár þar sem hún hefur staðið ofarlega
á Laugaveginum. Verslunarstjóri er Fríða Óskarsdóttir og hefur hún starfað í versluninni í þrettán
ár. Í dag, föstudag, verður opnuð ný Evu-verslun á Laugavegi 26 þar sem hún fær að njóta sín í 430
fermetrum, endurfædd og betrumbætt.
Fæst í flestum matvöruverslunum
En
gi
fe
rjó
la
öl
Hollur,
sykurlaus
og lífrænn
gosdrykkur