Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 79

Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 79
tíska 55 Helgin 26.-28. nóvember 2010 að finna sér klæðnað í Kola- portinu. „Buxurnar fann ég neðst í einhverjum kassa sem ég rótaði í. Flottur litur og ágætlega vel með farnar. Beltið fylgdi með og þetta sett kostaði mig 500 krónur,“ segir Magnús og lítur niður á buxurnar. „Svo sá ég þessa úlpu og ákvað strax að þetta væri eitthvað fyrir mig. Hún virtist hlý og vel með farin. Hún kostaði 2.000 krónur. Skóna og peysuna fann ég á sama stað. Þetta er bæði lítið notað og ekki á hverju strái sem maður finnur svona góða gönguskó á lágu verði. Saman kostaði þetta 4.000 krónur.“ Margrét átti ekki eins auðvelt með að finna sér samsetningu á fötum. Miklu meira úrval er af kvenmannsfötum og þræddi hún gegnum hvern básinn af öðrum. „Eftir góða leit fann ég notaða rúllukragapeysu á 300 krónur. Ég varð ástfangin af litnum þegar ég sá hana,“ segir Margrét og hlær. „Ég hef verið lengi að leita að leðurstuttbuxum og var frekar hissa þegar ég fann þær þarna inni á milli. Ég náði að prútta verðið í 500 krónur, sem ég kalla frekar gott verð fyrir svona fínar stuttbuxur. Sokkabuxurnar fann ég nýjar á 600 krónur og þessir skór sem ég fann eru mjög lítið notaðir og kostuðu 2.500 krónur. Mjög flottir!“ Hár í öllum regn- bogans litum Söngkonan Nicki Minaj gerði samn- ing við snyrtivörufyrirtækið M.A.C. fyrir skömmu. Í dag, föstudaginn 26. nóvember, kemur á markaðinn varalitur hannaður af söngkonunni undir heitinu „Bleikur föstudagur“. Nýjasta plata Nicki, sem mun koma út á næstu dögum, mun bera sama nafn. Á þriðjudaginn var kynnti hún nýja varalitinn sinn á Times Square þar sem metfjöldi var mættur og fagnaði söngkonunni þegar hún birtist í límósínu íklædd leðurkjól, hnésíðum pels og með hárið litað í öllum regnbogans litum. Andlit Versace Mad Men-leikkonan January Jones mun feta í fótspor Madonnu, Halle Berry og fleiri stjarna og verða andlit Versace-tískurisans. Dona- tella Versace, eigandi fyrir- tækisins, og leikkonan hafa verið vinkonur lengi og bað Donatella hana um þennan greiða. Talsmaður leikkon- unnar hefur staðfest að hún muni taka þátt í herferðinni fyrir vorlínuna 2011. Alltaf staðið við Laugaveginn „Verslunin Eva var stofnuð árið 1970 af þeim Mörtu og Þórarni og var fyrst á Laugavegi 28. Verslunin er órjúfanlegur partur af Lauga- veginum og hefur staðið þar á fjór- um stöðum og enn finnst mér að hún eigi einungis heima á Lauga- veginum. Nú hefst nýr kafli og hún er næstum því á sama stað og hún var fyrst til húsa. Verslunin hefur verið flutt ofar og ofar í gegnum tíðina og nú er tímabært að flytja hana aftur nánast þangað sem hún fæddist. Þetta fer í hringi!” segir Svava og hlær. ,,En nú eru breyttir tímar og þetta verður stærsta og ein glæsilegasta verslun Evu frá upphafi. Það er gaman að segja frá því að frábært starfsfólk innan NTC hefur unnið að útliti þessarar verslunar. Við erum öll mjög glöð með þetta – góð tilfinning.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.