Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 80
56 tíska Helgin 26.-28. nóvember 2010
É g á bara eftir að klára nokkr-ar einingar til stúdents-prófs, sem ég klára núna í
desember, og þá get ég farið að ein-
beita mér alveg að fatahönnun. Það
er mín köllun, býst ég við,“ segir
Marta og hlær. „Planið eftir stúd-
entinn er svo að vinna í alla vega
hálft ár hjá símafyrirtækinu Nova
og búa til möppu með hönnuninni
minni samhliða því.“
Til að byrja með hóf Marta nám
í Fjölbrautaskóla Garðabæjar á
félagsfræðibraut. Á öðru ári ákvað
hún svo að taka nokkrar einingar
í fatahönnun til að fylla upp í þær
einingar sem hana vantaði. Þá varð
ekki aftur snúið. „Ég heillaðist svo
af fatahönnuninni og fann að þetta
var fyrir mig. Fólk misskilur oft
hvað felst í þessu. Við erum ekki
að sníða og sauma allan daginn,
mjög fjölbreytilegt nám. Í einum
áfanganum vorum við til dæmis í
smíðum. Það var áhugavert. Svo
lærum við um alls konar hönnun,
markaðsfræði og textílfræði, allt til
að koma sér áfram. En þetta nám
byggist samt mest á rannsóknar-
vinnu. Skoða fatnað og efni, klippa
út og hugmyndaflæðið þarf að vera
rosalega mikið.“ „Í lok síðustu
annar héldum við útskriftará-
fanginn rosalega tískusýningu
með okkar hönnun. Hver og einn
valdi sér ákveðið þema og vann út
frá því alla önnina. Mitt þema var
gegnsæ, víð föt sem ég vann með
á alls konar hátt. Ég myndi vilja
leggja þannig klæðnað fyrir mig.
Mjög hrifin af því.“ Marta hefur nú
lokið við alla þá verklegu áfanga
sem skólinn býður upp á og situr
sveitt yfir bókunum. Hún stefnir
á að klára stúdentinn með pomp
og prakt í næsta mánuði. „Þótt ég
sé búin með verklegu áfangana er
nú ekki þar með sagt að ég hafi
lagt saumavélina niður. Þvert á
móti, ég sauma mikið fyrir mig og
vini mína. Hettur, trefla og annan
klæðnað. Svo er ég að vinna að
mögnuðum útskriftarkjól á sjálfa
mig. Hann er úr velúrefni, þröngur,
mjög venjulegur að framan og
opinn í bakið.“
Innblásturinn leitar til mín
Marta segist ekki vita neitt
skemmtilegra en að sitja við
saumavélina og sjá framtakið og
markmiðið verða að veruleika.
„Þegar ég fæ eitthvað í kollinn
þá framkvæmi það. Og þegar ég
byrja, þá get ég ekki hætt. Inn-
blástur fæ ég af ljósmyndum og
fólki sem ég sé alls staðar í kring.
Eiginlega allt sem augað grípur.
Kannski er það samt meira að inn-
blásturinn leiti til mín. Eins og
fatahönnunarneminn marta rún
Dreymir stórt
og hefur fulla
trú á sjálfri sér
Marta Rún Ársælsdóttir er fatahönnuður á framabraut og útskrif-
aðist úr fatahönnunardeild Fjölbrautaskólans í Garðabæ síðastliðið
vor. Hún klárar stúdentinn nú í desember, er með fulla vasa af
draumum og ætlar að leggja undir sig heiminn.
Bjóðum kjósendum til samtals við okkur
í hádeginu í dag um málefni stjórnlagaþings.
Verðum á Kaffi Sólon að Bankastræti kl. 12-13.
Föstudagur 26. nóvember
6153
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
Kynningarstjóri
Hildigunnur
Sverrisdóttir
Arkitekt
2193
Eiríkur Bergmann
Einarsson
Doktor í Stjórnmálafr.
3238
KOSNINGAR TIL STJÓRNLAGAÞINGS
Fæst í flestum matvöruverslunum
En
gi
fe
rjó
la
öl
Hollur,
sykurlaus
og lífrænn
gosdrykkur
2413
Ég stefni á að
verða stór og fræg
og að allir þekki
nafnið mitt.”
Marta Rún „Þegar ég
fæ eitthvað í kollinn þá
framkvæmi það. Og þegar
ég byrja, þá get ég ekki
hætt.“
Sýnishorn
af fatahönnun
Mörtu Rúnar.
þegar maður vafrar á netinu og sér
einhverja stelpu í flottum kjól. Það
er upphafið að verkinu og ég geri
það að mínu. Ég reyni sem oftast að
hafa skissubók meðferðis svo að ég
geti fangað hverja einustu hugmynd
sem ég fæ. Mikilvægt í þessu ferli.
Hugmyndavinnan.“ Marta vill ekki
ennþá skilgreina sig sem fatahönnuð.
Henni finnst hún þurfa aðeins meiri
menntun til þess. „Þrátt fyrir alla þá
sauma- og hönnunarvinnu sem ég hef
unnið með skólanum tel ég mig ekki
hafa stofnað mína eigin fatalínu. Með
árunum fer það að gerast og þá mun
ég líklega nota öll mín gögn og snið
sem ég hef gert.“
Ísland of lítið fyrir mig
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ er með
mjög gott undirbúningsnám fyrir
hönnunarskóla erlendis. Skólinn fer
sífellt stækkandi og fleiri sem hafa
áhuga á þessu. Ekki bara fyrir fram-
tíðarhönnuði, heildur einnig fyrir
þá sem vilja bara læra að sauma og
kunna eitthvað fyrir sér. ,„Í skólanum
er frábærir kennarar og mórallinn
enn betri. Við erum öll rosalega náin,
enda alltaf sömu krakkarnir saman
í tímum.“ Marta á sér stóra drauma
og ætlar ekki að láta neitt hindra sig í
því sem hún vill taka sér fyrir hendur.
„Mig dreymir stórt og hef trú á sjálfri
mér. Ég stefni á að verða stór og fræg
og að allir þekki nafnið mitt. Held svei
mér þá að Ísland sé of lítið fyrir mig.
En þetta er rosalega harður heimur
sem við búum í og ég veit að það þýðir
ekkert annað en að vinna hörðum
höndum til þess að koma sér á fram-
færi. Það er það sem ég ætla að gera.
Ekkert kemur af sjálfu sér.“
Framhaldsnám mikilvægt
Marta telur framhaldsnám í fata-
hönnun mjög mikilvægt og vill bæta
ofan á þá grunnþekkingu sem hún
hefur. „Ég sé mig mögulega fyrir mér
í háskóla, annaðhvort í Bandaríkj-
unum eða einhvers staðar í Evrópu.
Ekki í Listaháskólanum hérna heima.
Finnst ég þurfa að fara þangað sem
almennileg þekking er á þessu sviði
og þá finnst mér nauðsynlegt að leita
erlendis. Flestir af okkar flottustu
fatahönnuðum lærðu úti. Stein-
unn Sigurðardóttir og Una Hlín eru
gott dæmi um það. Þær eru að gera
gríðarlega góða hluti eftir að hafa lært
erlendis.
Í fyrra fór ég til Bandaríkjanna í
forvitnaðist aðeins um háskóla, bæði í
New York og Boston, og leist gríðar-
lega vel á þá. En þetta nám kostar
náttúrlega sitt, sérstaklega í Banda-
ríkjunum. Spurningin er hvort það
mun nokkuð stoppa mig,“ segir Marta
alvarleg.
kolbrun@frettatiminn.is