Fréttatíminn - 26.11.2010, Síða 86

Fréttatíminn - 26.11.2010, Síða 86
62 bíó Helgin 26.-28. nóvember 2010 Þ essar drottningar hafa báðar sýnt að þær eru jafnvígar á spennu, hrylling, drama og grín og nú mætast þær í gamanmyndinni You Again þar sem Sigourney Weaver hefur yfirhöndina, í það minnsta til að byrja með. Í myndinni leikur Jamie Lee Curtis hana Gail sem fer ásamt dóttur sinni, Marnie, að heim- sækja tilvonandi tengdafjöl- skyldu sonar síns rétt áður en hann gengur upp að altarinu með sinni heittelskuðu. Marnie átti erfitt uppdráttar í æsku, var álkulegur klaufi sem varð fyrir einelti og ofsóknum sætu stelpnanna sem sýndu henni enga miskunn. Nú er hún hins vegar orðin glæsileg ung kona í fínu starfi. Henni er illa brugðið þegar hún kemst að því að heitkona bróður hennar, Jo- anna, er aðal eineltispúkinn úr skólanum. Joanna tekur Mar- nie opnum örmum og virðist ekki muna neitt eftir ömurlegri fortíð þeirra en sú síðarnefnda er nú ekki á því að sleppa bróð- ur sínum í hjónaband án þess að gera upp gömul mál og ná fram hefndum. Móðir hennar er ekki eins æst yfir þessu en það breytist heldur betur þegar Sigourney Weaver mætir í öllu sínu veldi sem Ramona, frænka brúð- arinnar. Þær Ramona elduðu nefnilega grátt silfur á skóla- árum sínum þar sem Gail var í sporum dóttur sinnar og lögð í einelti af Ramonu. Þeg- ar mæðgurnar standa báðar frammi fyrir erkióvinum sínum æsast leikar og enn eina ferð- ina sannast hið fornkveðna að köld eru kvennaráð. Uppgjör er vitaskuld óhjákvæmilegt með tilheyrandi bægslagangi og átökum. Sigourney Weaver er 61 árs og hefur komið víða við á glæst- um ferli þótt þekktust sé hún fyrir túlkun sína á geimfaran- um Ellen Ripley sem hitti fyrst fyrir ógurlega ófreskju í Alien eftir Ridley Scott. Þegar James Cameron tók við af Scott og gerði Aliens steig Weaver fram sem fullskapað hörkutól. Leiðir hennar og Camerons lágu svo síðast saman í Avatar. Weaver hefur einnig tekið góða spretti í spennumyndum á borð við Eyewitness og Copycat og sýnt að hún er með húmorinn í lagi í Ghostbusters-myndunum og Working Girl á móti Harrison Ford og Melanie Griffith. Jamie Lee Curtis er níu árum yngri en Weaver, dóttir leikaraparsins Janet Leigh og Tony Curtis. Móðir hennar er ekki síst fræg fyrir að hafa farið öskrandi til heljar úr sturtunni í Psycho og dóttirin fetaði svip- aðar slóðir þegar hún landaði aðalhlutverkinu í Halloween eftir John Carpenter árið 1978. Sú mynd markaði upphafið á löngum ferli Jamie Lee sem hefur, rétt eins og Weaver, unnið með James Cameron þegar hann leiddi þau Arnold Schwarzenegger saman í True Lies. Hún tók annan hryllings- sprett fyrir Carpenter í The Fog árið 1980 og sýndi styrk sinn sem gamanleikkona í Trading Places með þeim Dan Akroyd og Eddie Murphy á ní- unda áratugnum og ekki síður í A Fish Called Wanda á móti John Cleese nokkrum árum síðar. Aðrir miðlar: Imdb: 5,3/10, Rotten Tomatoes: 18%, Metacritic: 29/100 Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is bíó B æ k u r n a r u m galdrastrákinn Harry Potter eru sjö talsins en hádrama- tískt lokabindið er svo mikið að vöxtum og margt sem þar gengur á að ákveðið var að deila inni- haldinu á tvær bíómyndir. Og nú er sú fyrri komin og er það vel lukkuð að flestir bíða líklega spennt- ir eftir síðustu myndinni – jafnvel þótt rúmlega hálf heimsbyggðin viti upp á sína tíu fingur hvernig ósköpin enda. Harry Potter-myndirn- ar eru misskemmtilegar og -spennandi en allar hafa þær staðið fyrir sínu og þessi gerir það líka þótt hún gefi því besta sem gert hefur verið hing- að til nokkuð eftir. Allir helstu leikararn- ir fara í gegnum rullur sínar af gömlum vana og standa sig almennt með prýði. Bókin segir flókna og mikla sögu og spenn- an magnast eftir því sem lokauppgjör góðs og ills færist nær. Þessi fyrri bíómynd líður óneitanlega fyrir það og þótt regluleg- ar flugeldasýningar haldi áhorfendum við efnið dettur myndin aðeins nið- ur um miðbikið. Harry og vinir hans tveir eru mikið á vergangi og göngutúr- inn þeirra teygist nokkuð á langinn en maður þolir þetta allt áreynslulítið vegna vitneskjunnar um að þau eru á leið í magnað- an lokabardaga sem get- ur varla annað en tryggt aðdáendum Potters frá- bæra skemmtun næsta sumar.Þórarinn Þórarinsson Rölt í átt að endalokum  you AgAin: Stórveldi mætASt Stórveldin Sigourney Weaver og Jamie Lee Curtis mætast í gamanmyndinni You Again og allt verður brjálað. Öskurdrottning mætir geimverubana Leikkonurnar Sigourney Weaver og Jamie Lee Curtis eru í hópi öflugustu valkyrjanna í Hollywood í fullorðnu deildinni. Báðar eiga þær að baki glæstan feril og fína frammistöðu í ógleymanlegum myndum. Weaver er vitaskuld lang þekktust fyrir að hafa fjórum sinnum tekist á við geimófreskju- na sem við Alien er kennd og Jamie Lee fyrir að hafa ítrekað tekist á við hinn morðóða Michael Myers í Halloween-myndunum.  Bíódómur HArry Potter And tHe deAtHly HAllowS, PArt i  Harry Potter fikrar sig hægt og bítandi að lokauppgjörinu við Voldemort. Óvægin og spennandi framtíðarsýn, þar sem sakamálasaga fléttast saman við orðræðu um trúmál, náttúruauðlindir og menningarverðmæti. Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur sími 561 0055 • www.ormstunga.is Helgi Ingólfsson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 1994 fyrir skáldsögu sína, Letrað í vindinn, og vorið 2010 sæmdi Hið íslenska glæpafélag hann Blóðdropanum, viðurkenningu fyrir bestu glæpasögu ársins 2009, Þegar kóngur kom. Helgi Ingólfsson RUNUKROSSAR Hörkuspennandi framtíðarglæpasaga eftir höfund metsölu- og verðlaunabókarinnar Þegar kóngur kom! Móðir hennar er ekki síst fræg fyrir að hafa farið öskrandi til heljar úr sturt- unni í Psycho
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.