Fréttatíminn - 26.11.2010, Qupperneq 90
Raxi er langt fyrir
ofan heimskautsbaug,
í fylgd með veiðimönn-
um í köldum heimi
langra skugga norður-
hjarans, sem hann
fangar á sinn einstaka
hátt í svarthvítu.
66 dægurmál Helgin 26.-28. nóvember 2010
Plötuhorn Dr. Gunna
allt er eitthvað
Jónas Sigurðsson og Ritvélar
framtíðarinnar
Á annarri sólóplötu
Jónasar mynda
drífandi og ákveðnir
tramp-taktar, kraft-
mikill blástur og
safarík smáatriði mjög
sterka heild. Tónlistin
liggur einhvers staðar
á milli lífrænnar soul-
tónlistar og blúsrokks
Mugisons. Jónas flytur
nútímafirringartexta
af sömu ákefð og
Suðurríkja-predikari,
en er líka lífsglaðari
inn á milli. Þrátt fyrir
einstaka miðjumoð á
plötunni hefur Jónas
sannarlega stimplað
sig inn sem einn af
áhugaverðari popp-
urum landsins með
þessari flottu plötu.
undraland
Valdimar
Þetta er fyrsta plata
hljómsveitarinnar
Valdimars. Þar er
söngvarinn Valdimar Guð-
mundsson í fararbroddi
og semur lögin ásamt
Ásgeiri Aðalsteinssyni.
Innihaldið er milt popp
á íslensku með reggí- og
djassblæ og koma Hjálmar
og Moses Hightower upp í
hugann sem skipsfélagar
á þessar leið. Dulúðugustu
lög Valdimars eru best –
titillagið og „Yfirgefinn“ –
bæði frábærar laga-
smíðar. Annað er gott en
sumt minna frábært, eins
og gengur. Þetta er góð
frumraun og greinilega
eru hér mikil efni á ferð.
Kingston Keflavík
Hjálmar
Lopapeysureggí
Hjálma hefur nú
fengið að grassera og
fullkomnast á fjórum
stúdíóplötum. Bandið
er stórhuga og lítur yfir
farin veg fyrir þessi jól,
hefur gefið út hnaus-
þykka ljósmyndabók
og þennan safndisk,
þar sem safnað er
saman tíu aukalögum
frá ferlinum. Hér má
finna reggíútgáfur af
íslenskri poppklassík,
spikfeitar döbb-til-
raunir og traust pop-
plög eins og hressandi
smellinn Gakktu alla
leið. Hjálmar er frábært
band og þetta er fínn
millibiti þar til næsta
plata dettur í hús.
Kristín Ólafsdóttir er margfaldur Íslands- og bikar meistari í frjálsum.
Mark Johnson er bikarmeistari í stangarstökki og í hópi 15 bestu stanga-
stökkvara í Bandaríkjunum. Þau stefna bæði á ÓL 2012.
Jónatan er sá
eini sem heldur
sig alfarið í
stúdíóinu og
býður upp á bók
með fyrst og
fremst svart-
hvítum port-
rettum af lista-
mönnum. Meira
um þá bók má
sjá á blaðsíðu
22.
bæKur Veisla á stofuborðinu
Magnað ár í
útgáfu ljós-
myndabóka
Fimm eðalbækur á ólíkum slóðum.
Þ að eru engar ýkjur að segja að aldrei áður í útgáfusögu landsins
hafi komið út jafn margar
öflugar ljósmyndabækur og á
þessu ári. Fjórir af reyndustu
og virtustu ljósmyndurum
Íslands sendu allir frá sér
bækur. Þetta eru þeir Páll
Stefánsson, Einar Falur Ing-
ólfsson, Ragnar Aðalsteinsson
(Rax) og Sigurgeir Sigur-
jónsson, allt þrautþjálfaðir og
margsigldir menn sem kunna
öðrum betur að fanga ljósið
hvort sem það er á filmu eða
stafrænan kubb. Í þennan hóp
blandar sér Jónatan Grétars-
son, sem er unglingur miðað
við hina, en þó alls enginn
nýgræðingur. -jk
Það allra skemmti-
legasta við þessa ljós-
myndabókabyltingu –
þetta er ekkert annað
– er að bækurnar eru
mjög á ólíkum slóð-
um. Páll Stefánsson
er á ferð fyrir ofan og
neðan funheitan mið-
baug, í bjartri birtu
Afríku, og skrásetur í
djúpum og safaríkum
litum fótboltafárið
sem hefur heltekið
þessa dásamlegu álfu.
Sigurgeir Sigurjóns-
son stekkur aftur í
tímann og dregur fram
úr safni sínu aldeilis
frábærar myndir af
popphetjum, listamönn-
um og glöðum æskulýð
frá sjöunda og áttunda
áratug síðustu aldar;
glæsileg heimild um
andrúm liðins tíma.
Einar Falur heldur sig við heima-
hagana og teflir saman málverkum
Englendingsins W.G. Collingwood
sem fór um vestanvert Ísland árið
1897. Rúmlega hundrað árum síðar
fór Einar Falur á sömu staði og tók
myndir af sömu mótívum og úr verður
einstaklega skemmtileg blanda.