Fréttatíminn - 26.11.2010, Side 91
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Sel javeg 2.
Frí heimsendingarþjónusta til eldri borgara og öryrkja.
Reykjavíkur Apótek býður
NOW vítamín og bætiefni með
20% afslætti út september.
Reykjavíkur Apótek er
sjálfstætt starfandi apótek sem
leggur áherslu á persónulega
þjónustu og hagstætt
verð. Apótekið er í gamla
Héðinshúsinu við Seljaveg 2.
Sel javegur 2 | S ími : 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap. is | reyap@reyap. is
Á hljómgrunnur.is er að
finna aðgengilegt yfirlit yfir
tónlistarviðburði sem eru
fram undan. Rokk, djass,
popp, klassík og allt þar á
milli.
dægurmál 67 Helgin 26.-28. nóvember 2010
Föstudagur 26. nóvember
Víkingur Heiðar Ólafsson
salnum í Kópavogi kl. 20.
Víkingur flytur lög Chopins
en senn er 200 ára afmælisár
tónskáldsins á enda. Prelúdíur
hans eru í hópi margbrotnustu
tónsmíða 19. aldarinnar.
Aðgangur: 2.900 kr.
SzaZa
tjarnarbíó, kl. 20.30
SzaZa flytja verkið Roman
Polanski: Shorts sem flutt er
við seríu stuttmynda Romans
Polanski. Á tónleikunum kemur
listamaðurinn Ben Frost einnig
fram, en hann hefur ekki spilað
hér á landi í nokkurn tíma.
Aðgangur: 1.500 kr.
Laugardagur 27. nóvember
Kvennakór Reykjavíkur
neskirkju, kl. 17.00
Á dagskránni eru hátíðleg
verk sem tileinkuð eru heilagri
guðsmóður, svo sem Ave María
eftir Liszt og Salve Regina
eftir Kocsár. Einnig verður
sungið um Jesúbarn blítt í
undurblíðu ljóði eftir Margréti
Jónsdóttur við lag eftir Bach.
Svo er slegið á léttari strengi í
Cool Yule og Santa Baby, og í
Various themes on Fa-la-la er
jafnvel farið býsna frjálslega
með nokkur frægustu tónverk
sögunnar.
Aðgangur: 2.500 kr. í forsölu
(3.000 kr. við innganginn).
Eldri borgarar og börn, 6-18
ára, greiða 1.500 kr.
Valdimar
Fríkirkjunni í reykjavík,
kl. 21
Hljómsveitin Valdimar gaf
út plötuna Undraland fyrir
stuttu og blæs af því tilefni til
heljarinnar útgáfutónleika.
Hljómsveitin lofar að þetta
verði engir venjulegir
Valdimar-tónleikar því ekkert
verði til sparað til að gera tón-
leikana sem glæsilegasta. Með
hljómsveitinni í kvöld leikur
sérskipuð tíu manna blásara-
og ásláttarsveit. Húsið verður
opnað klukkan 20 og hefjast
tónleikarnir klukkan 21.
Aðgangur: 1.500 kr.
sunnudagur 28. nóvember
Schola cantorum
Hallgrímskirkju, kl. 17
Aðventutónleikar Schola
cantorum verða haldnir í
Hallgrímkirkju undir yfir-
skriftinni Aðventan og María
og samanstanda af úrvali
aðventumótetta frá endur-
reisnartímanum og íslenskri
kórtónlist aðventunnar.
Efnisskráin er tvíþætt; fyrri
hlutinn tengist eftirvæntingu
fyrir komu Krists en hinn síðari
boðun Maríu. Latnesku mótett-
urnar, sem allar eru frá því um
1600, og íslensku verkin eru
sungin á víxl.
Aðgangur: 2.500 kr.
frumsýningar
Agora
Hér er á ferðinni söguleg mynd sem gerist
í Egyptalandi á meðan það laut stjórn
Rómverja og segir frá þræl sem leggur
baráttunni gegn uppgangi kristni lið í
þeirri von að þannig öðlist hann frelsi. Hús-
bóndi hans er hinn víðfrægi heimspekingur
og guðleysingi Hypatia frá Alexandríu
en þrællinn verður ástfanginn af henni.
Niko
Teiknimynd um litla hreindýrsstrákinn Niko
sem trúir því statt og stöðugt að faðir hans
sé eitt af aðalflughreindýrum Jólasveinsins,
þrátt fyrir að hafa aldrei hitt hann. Stærsti
draumur hans er að læra að fljúga eins og
faðirinn, en fullorðnu dýrin í heimahjörð
hans hafa engan áhuga á að veita Niko þá
athygli sem hann þráir og hinir krakkarnir
augasteinn kemur heim
Leikhópurinn Á senunni býður upp á fimm sýningar
á jólasýningunni vinsælu, Ævintýrið um Augastein,
í nóvember og desember. Ævintýrið um Augastein
var frumsýnt í London árið 2002 en íslensk útgáfa
þess var fyrst sett á fjalirnar hér árið 2003. Auga-
steinn steig sín fyrstu skref á íslensku leiksviði í
Tjarnarbíói og þangað snýr hann nú aftur í nýuppgert
Tjarnarbíóið.
Sýningin hefur komið víða við; var á síðasta ári
sýnd í Liverpool og London við góðar undirtektir.
Augasteinn mun gera víðreist í London áður en hann
mætir í Tjarnarbíó og fer á milli skóla í borginni og
nágrenni hennar.
Verkið er byggt á hinni sígildu sögu um Grýlu
og jólasveinana. Augasteinn lendir fyrir tilviljun í
höndum hinna hrekkjóttu jólasveina sem fer að þykja
vænt um hann þannig að leikar æsast þegar Grýla
rachel Weiz,
sem hefur meðal
annars gert það
gott í The Mummy-
myndunum, Con-
stantine og About a
Boy, leikur Hypatiu
en alejandro
amenábar (The
Others, Abre los
ojos) leikstýrir.
Aðrir miðlar:
Imdb: 7,2/10,
Rotten Tomatoes:
55%, Metacritic:
55/100
gera stöðugt grín
að honum vegna
þess að þeir trúa
því ekki að pabbi
hans sé fljúgandi
hreindýr.
Aðrir miðlar:
Imdb: 6,6/10,
Rotten Tomatoes: -,
Metacritic: -
gamla verður drengsins vör.
Felix bergsson leikur öll
hlutverkin í Ævintýrinu um
Augastein. Helga arnalds gerði
brúður og leikmynd og Kolbrún
Halldórsdóttir er leikstjóri.
Sýningar verða sunnudagana
28. nóvember og 12. desember
klukkan 14 og 16 og 19. desember
klukkan 13.