Læknablaðið - 15.02.1983, Side 28
50
LÆK.NABLAÐIÐ
kenna. Líkamlegt heilsufar var talið slæmt ef
sjúklingur var í meðferð vegna meiri háttar
einkenna í minnst tvo mánuði ár hvert eða var
vistaður á sjúkrahúsi eða stofnun af sömu
orsökum. Geta til sjálfsbjargar var talin slæm
ef sjúklingur var ófær um að hirða sig, matast,
klæðast og fara sinna ferða. Starfsgeta var
talin slæm ef hann gat ekki starfað hálft eða
meira við fyrri störf á almennum vinnumark-
aði eða heima.
Mynd 3 sýnir, að 33 (24 %) sjúklinga höfðu
pegar fimm árum áður en þeir leituðu til
geðlæknis, þ.e. árið 1962 slæma geðheilsu og
26 (19%) slæma líkamsheilsu. Virðast þessar
batahorfur svipaðar og fram hefur komið í
öðrum rannsóknum (11).
Innan við tíu sjúklingar höfðu slæma starfs-
eða sjálfsbjargargetu 1962. í árslok 1979 höfðu
93 sjúklingar slæma starfsgetu og 71 slæma
sjálfsbjargargetu. U.þ.b. tveir af hverjum
þremur sjúklingum halda starfsgetu sinni eftir
10 ár. Við samanburð á myndum 3 og 4 virðist
meiri fylgni vera á milli líkamsheilsu og
starfsgetu, en geðheilsu og starfsgetu.
UMRÆÐA
Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna stöðu
og horfur þeirra, sem leita fyrst til geðlækna
vegna þunglyndis eftir að þeir fara að eldast.
Sá hópur, sem hér er tekinn til athugunar er
valinn þannig, að aldur við komu var 55-74 ár.
Venjulega eru skil milli eldra og yngra fólks
sett við 65 ára aldur, en hér við 55 ár. Val þetta
ákvarðaðist aðallega af eftirfarandi ástæðum:
Hér er um 12 ára afdrifarannsókn að ræða
og því æskilegt að rannsóknin nái til fólks, sem
er yngra en 65 ára við komu. Ætla má að við
55 ára aldur sé fólk almennt ennþá í fullu starfi
og búi við tiltölulega óskertar félagslegar
aðstæður.
Eins og gera má ráð fyrir, hefur þetta val í
för með sér, að langflest tilfelli í hópnum eru
»unipolar« þunglyndissjúklingar, en hiutur
þeirra meðal þunglyndissjúklinga er hár fram
yfir sjötugt. Tíðni nýrra sjúklinga með »bipo-
lar« þunglyndi er einnig nokkuð há hjá fertugu
fólki og fram undir sextugt, þó að tíðni sé
langhæst milli tvítugs og þrítugs (12). í rann-
sóknahópnum eru 15 sjúklingar «bipolar«, þ.e.
hafa bæði þjáðst af þunglyndi eða verið með
oflæti (mania).
Eins og áður er sagt eru sjúklingar þeir sem
hér er fjallað um, hluti af þeim hópi er Lárus
Helgason fjallaði um í ritgerð sinni og leituðu í
Fjöldi
■/////. Slæm fíísí Slæm
'//////. geðheilsa líkamsheilsa
Mynd 3. Dreifing sjúklinga med slæmt heilsufar.
Fjöldi
Mynd 4. Dreifing sjúklinga með slæma starfs- og
sjálfsbjargargetu.
fyrsta skipti til geðlækna á árunum 1966-
1967.
Tíðni nýrra þunglyndissjúklinga hérlendis á
aldrinum 60-74 ára var 1980 áætluð 3,8 af
hundraði af Tómasi Helgasyni (2). Af þeim
höfðu 1,4 % verið til meðferðar hjá geðlækn-
um eða verið vistaðir á sjúkrahúsi á árunum
1957-1971. Samkvæmt þessu lætur nærri, að
tveir af hverjum þrem þynglyndissjúklinga í
sama aldursflokki í rannsókn Lárusar Helga-