Læknablaðið - 15.02.1983, Side 34
EFLUM ÍSLENSKA LYFJAFRAMLEIÐSLU
PRIMAZOL
er íslenskt sérlyf sem kom fyrst á markað í ársbyrjun 1982. Það er hliðstætt þrem vel þekktum erlendum
sérlyfjum, en mun ódýrara.
Virk innihaldsefni í hverri töflu: Trimethoprimum 80 mg, Sulfamethoxazolum 400 mg.
Ábendingar: Sýkingar af völdum baktería, sem eru næmar fyrir hinum virku efnum lyfsins, einkum við
bráðar og langvinnar sýkingar í loftvegum (þá ekki tonsillitis af völdum streptococca), eyrum, melting-
arvegi, þvagfærum og húð. Einnig sýkingar í beinum svo og sepsis nocardiosis og pneumocystis carinii
sýkingar.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir virkum efnum lyfsins, sérstaklega er bent á súlfaofnæmi. Meðganga. Fyr-
irburðir og nýfædd börn. Lyfið skal ekki nota hjá sjúklingum með lifrar- eða nýrnasjúkdóma á háu stigi.
Aukaverkanir: Lyfið getur valdið ógleði og stundum uppköstum. Hefur einnig valdið Steven’s-Johnson
syndrome. Einnig breytingar á blóðmynd svo sem fækkun á hvítum blóðkornum og blóðflögum. Fólín-
sýruskortur getur komið fyrir við langvarandi notkun lyfsins. Hugsanlegt er, að lyfið geti valdið fóstur-
skemmdum.
Milliverkanir: Eykur áhrif blóðþynningarlyfja og fenýtóíns.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammtur er 2 töflur tvisvar sinnum á dag. Við langtíma
meðferð 1 tafla tvisvar sinnum á dag.
Skammtastærðir handa bömum: Börn 12 ára og eldri: Sömu skammtar og handa fullorðnum. Böm 7 —
12 ára: Venjulegur skammtur er 1 tafla tvisvar sinnum á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 7 ára.
Pakkningar: 20 töflur (þynnupakkað), 100 töflur, 10 töflur X 25 (þynnupakkað).
Samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda hér á landi, ber í öllum auglýsingum að vara við hugsan-
legum blóðbreytingum og fósturskemmdum af völdum lyfsins.
Lyfjaverslun ríkisins.
NAPROXEN LR
Virkt innihaldsefni í hverri töflu: Naproxenum 250 mg.
Ábendingar: Iktsýki, slitgigt, hrygggigt, þvagsýrugigt, tíðaverkir, verkir í legi vegna lykkju eða annars sem
sett hefur verið í leg.
Frábendingar: Þungun, magasár.
Aukaverkanir: Höfuðverkur, svefnleysi, óróleiki, þreyta, magaverkir, brjóstsviði, hægðatregða, niður-
gangur, magablæðing (sjaldan). Útbrot geta komið fyrir. Berkjusamdrátturgetur versnað hjá sjúklingum
með astma.
Varúð: Saga um sár í meltingarvegi, astma, nefslímubólgur, útbrot vegna salicýlata.
Milliverkanir: Milliverkun er við lyf, sem bindast eggjahvítuefnum í plasma, t.d. blóðþynningarlyf,
sykursýkislyf.
Skammtastærðir handa fullorðnum: 500— 1000 mgá dag. Við bráða þvagsýrugigt 750 mgfyrst, síðan 250
mg á 8 klst. fresti. Skammtastærðir handa bömum: lyfið er lítið reynt hjá börnum og er því óvíst um
skammtastærðir.
Pakkningar: 20 töflur, 50 töflur, 100 töflur.
Lyfjaverslun ríkisins