Læknablaðið - 15.02.1983, Page 38
56
69,56-59,1983 LÆKNABLADIÐ
Elín Ólafsdóttir, Bergpóra Jónsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Hörður Filippusson
FRUM ATHUGUN Á VÍTAMÍN B,, B2 OG B6 í BLÓÐI
ÞRIGGJA SAMANBURÐARHÓPA
INNGANGUR
Vítamín Bp B2 og B6 búskapur íslendinga
hefur ekki verið kannaður með mæiingu á
magni umræddra vítamína í blóði, svo vitað sé.
Hins vegar hefur magn B vítamína í fæðu
verið metið út frá næringarefnatöflum, og er
yfirgripsmesta rannsóknin til pessa neyslukönn-
un Manneldisráðs íslands á höfuðborgarsvæð-
inu 1979-80 (1). Kom par í ljós, að vítamín B2
í fæðunni var nægilegt miðað við ráðlagða
dagskammta (RDS), vítamín B, var rétt á
mörkunum, en vítamín B6 var nokkuð neðan
við RDS í flestum aldurshópum.
Þótt næringargildi fæðunnar gefi vísbend-
ingu um næringarástand pess er hennar neytir,
geta matreiðsluaðferðir skert næringargildið
og ýmsir sjúkdómar kunna að hindra eðlilega
nýtingu næringarefna. Erlendar rannsóknir
hafa sýnt, að drykkjusjúklingar (2) og aldrað
fóik (3) í velferðarríkjum búa við skort á
vítamínum B,, B2 og B6 og hafa sýnileg eða
dulin skortseinkenni. í pessari grein er skýrt
frá frumathugun á pví, hvort svipaðan skort
megi finna á íslandi.
Undanfarin ár hefur mælingu á virkni ákveð-
inna enzyma verið beitt í vaxandi mæli, til pess
að meta mettun líkamsvefja með tilliti til
nokkurra helstu B-vítamína. Af hagkvæmnis-
ástæðum eru rauð blóðkorn tekin sem vefja-
sýni. I>ar sem tækni til enzymvirknimælinga er
á annað borð til staðar, eru slíkar mælingar
handhægari en beinar efnafræðilegar mæling-
ar á magni B-vítamína eða afleiddra kóen-
zyma í vefjum. Við pá athugun, sem hér er frá
greint, var slíkri mælingu á enzymvirkni beitt.
Aðferðin byggist á pví, að virkni tiltekins
enzyms, sem háð er ákveðnu kóenzymi, er
mæld í sýninu, síðan er yfirmagni tilsvarandi
kóenzyms bætt í sýnið og enzymvirknin mæld
á ný. Þar sem kóenzym (og par með tilsvarandi
vítamín, sem kóenzymið er ieitt af) skortir,
verður virkniaukning eða hvatning (aktive-
Frá Lífefnafræöistofu læknadeildar Háskóla íslands,
Ármúla 30. Barst ritstjórn 04/10/1982. Sampykkt til birt-
ingar og sent i prentsmiðju 05/10/1982.
ring) við aukinn kóenzymastyrk og eykst
virknin pví meir sem skorturinn í vefnum er
meiri.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Aldur og kynskipting. Hér er um frumathugun
að ræða og var valið í hópa á pann hátt, að fá
blóðsýni úr fólki, sem á annað borð var verið
að taka sýni úr í öðrum tilgangi.
Hóparnir voru: Gestir Hjartaverndar, valdir
sem almennt úrtak fullorðinna íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu, vistmenn SÁÁ á Silungapolli,
sem voru að fara í meðferð vegna ofdrykkju
og aldrað fólk á dagspítala Landspítalans í
Hátúni.
í Hjartaverndarhópnum voru 40 konur á
aldrinum 33-72 ára (meðalaldur 56,5 ár). í
SÁÁ-hópnum frá Silungapolli voru 10 konur,
en 36 karlar á aldrinum 18-58 ára (meðalaldur
37,8 ár). í Hátúnshópnum voru 28 konur, en 12
karlar á aldrinum 65-89 ára (meðalaldur 79,1
ár).
Sýni. Blóðsýni voru tekin að morgni og
segavarin með heparini eða citrati. Rauð
blóðkorn voru skilin frá plasma og pvegin
prisvar með 0,9 % saltvatni og síðan hemoly-
seruð í vatni (fyrir GR og ASAT mælingar)
eða í 0,1 % Triton-X-100 lausn (fyrir TK
mælingar).
Enzymvirknimælingar. Virkni eftirtalinna
enzyma var mæld: Transketolasi (TK), sem
parfnast kóenzymsins thíamínpyrofosfats
(TPP) og leitt er af vítamíni Bn glutathion
reduktasi (GR), sem parfnast kóenzymsins
flavín adenín dínúkleotíð (FAD) og leitt er af
vítamín B2; aspartat amínotransferasi (ASAT),
sem parfnast kóenzymsins pyrídoxal fosfats
(PLP) og leitt er af vítamín B6. Virkni enzym-
anna í hemolysati var mæld samdægurs og
var beitt kinetiskri mæliaðferð, samkvæmt
forskrift Bayoumi og Rosalki (4), sem aðlöguð
var að Multistat III Centrifugal Analyser
(Instrumentation Laboratory, USA). Virkni
með kóenzymi (V,) og án kóenzyms (V0) var
mæld og virkniaukningin reiknuð pannig: