Læknablaðið - 15.02.1983, Side 40
58
LÆKNABLADIÐ
um, en vel innan marka í SÁÁ- og Hátúnshóp-
num. Dreifing gildanna er hins vegar mikil og
lenda 43 % Hjartaverndarhópsins ofan við
70 % mörkin, en aðeins 20 % SÁÁ-hópsins og
22 % Hátúnshópsins (sjá mynd 3).
SKIL
Þessar niðurstöður komu nokkuð á óvart,
einkum pað hversu Hjartaverndarhópurinn
var illa á sig kominn miðað við hina. Engar
upplýsingar liggja fyrir um mataræði hópanna
þriggja, hins vegar kom í ljós við eftirgrennsl-
an, að fólkið í Hátúni fær fjölvítamíntöflur
daglega og nokkrir fá vítamínsprautur að auki.
Samkvæmt spurningalista Hjartaverndar, tek-
ur ’Á hluti þess hóps vítamín, en ekki er vitað
á hvaða formi, eða hvaða vítamín. Engar
upplýsingar liggja fyrir um vítamíninntöku
SÁÁ-hópsins aðrar en þær, að ekki var byrjað
að gefa vítamín, sem lið í meðferð, þegar
blóðsýni voru tekin. Hins vegar verður að
draga þær ályktanir af þessum niðurstöðum að
allstór hluti hópsins hafi tekið B vítamín
nokkuð reglulega heima hjá sér.
Eins og áður segir er hér greint frá frum-
athugun á magni vítamína B|, B2 og B6 í blóði
þriggja samanburðarhópa. Viðmiðunarhópur-
inn frá Hjartavernd er það lítill, að vafasamt
er, að hann endurspegli B-vítamínbúskap þorra
fullorðinna íbúa á höfuðborgarsvæðinu, auk
þess að aðeins voru konur í hópnum. Fólkið,
sem tók þátt í neyslukönnun Manneldisráðs,
var allt fjölskyldufólk, en ekki er vitað um
fjölskylduhætti Hjartaverndarkvennanna 40.
Ef niðurstöður okkar eru bornar saman við
magn B vítamína í fæðu fjölskyldufólksins,
gætir nokkurs ósamræmis. Samkvæmt niður-
stöðum Manneldisráðs er meir en nóg af B2 í
fæðunni miðað við RDS, en B] er hins vegar á
mörkum þess að vera nóg. Kóenzymaktive-
ringin bendir hins vegar til þess að nóg sé af
B, en um þriðjungur hópsins fái of lítið af B2.
Vítamín B6 mettunin er hins vegar í samræmi
við niðurstöður Manneldisráðs. Rúm 40 % af
Hjartaverndarhópnum fá of lítið af B6 sam-
kvæmt mælingum okkar, en útreikningar
Manneldisráðs sýna að konur fá aðeins ríflega
helming RDS af Be í fæðunni (1,1-1,2 mg af 2,0
mg)(l)-
Pað kom á óvart hversu góður B vítamín-
hagurinn var hjá gamla fólkinu í Hátúni miðað
við Hjartaverndarhópinn. Trúlega stafar þessi
munur fyrst og fremst af því að allir í þeim
hópi fá fjölvítamíntöflur daglega.
B-vítamínhagur SÁÁ fólksins var einnig
betri, en búist hafði verið við. Ef til vill er fólk,
sem á við drykkjuvandamál að stríða, orðið
sér það meðvitað um alvarlegar afleiðingar
ofdrykkju, að það taki inn B-vítamín í ríflegri
skömmtum en aðrir.
B-vítamínhagur Hjartaverndarhópsins er
hins vegar nokkuð slakur og benda niðurstöð-
ur okkar ótvírætt til þess, að rétt sé að huga
nánar að vítamín B2 og B6 búskap lands-
manna, enda er fyrirhugað framhald þessarar
athugunar að fá blóðsýni úr fólki, santbærilegu
því, sem neyslukönnun Manneldisráðs náði til,
þar sem kynskipting er jöfn og aldursskipting
dreifð. Frekari könnun á B-vítamínhag hugs-
anlegra áhættuhópa verður látin bíða þar til
niðurstöður eru fengnar úr þeim áfanga.
PAKKARORÐ
Forráðamönnum Rannsóknastofu Landspítal-
ans í meinefnafræði er þakkað fyrir afnot af
Multistat III Centrifugal Analyser, sem gerði
þessa athugun mögulega. Ennfremur er for-
ráðamönnum Hjartaverndar, SÁÁ og dagsþít-
alans í Hátúni þökkuð veitt aðstoð vegna
öflunar blóðsýna.
SUMMARY
The vitamin B], B2 and B6 status in alcoholics, before
treatment (SÁÁ), and elderly people in a day clinic
(Hátún) was compared with that of a group from
the Icelandic Heart Association Health Survey. The
vitamin B status was determined by measuring the
enzyme activities in hemolysates, of transketolase,
glutathione reductase and aspartate aminotransfer-
ase before and after activation with their respective
coenzymes.
The mean % activation (see table II) shows that
vitamin B] status was good in all three groups,
vitamin B2 status was poor in the alcoholics and the
control group, and vitamin B6 status was poor in the
control group but acceptable in the other two
groups.
The elderly people received a supplement of one
multivitamin tablet daily, and a quarter of the
control group supplemented their food with vita-
mins (undefined). No information on vitamin supple-
mentation was available from the SÁÁ group.
HEIMILDIR
1) Ragnarsson, J.Ó., Stefánsdóttir, E.: Neyslukönnun
Manneldisráðs íslands 1979-80. Fjölrit Rannsókn-
arstofu landbúnaðarins nr. 74, maí, 1981.
2) Baines, M.: Detection and incidence of B and C
vitamin deficiency in alcohol-related illness. Ann
Clin Biochem 1978; 15:307-12.