Læknablaðið - 15.04.1985, Page 26
94
LÆKNABLAÐIÐ
Árið eftir, þ.e. fyrir fjórum árum, var
konan lögð inn í fjórða sinn, nú vegna
endurtekinna skyndiblæðinga um endaþarm
með tveggja-þriggja tíma millibili sólarhring
fyrir innlögn. Ristilspeglun upp að miltis-
bugðu sýndi engan hugsanlegan blæðingar-
stað. Röntgenskoðanir á maga, mjógirni og
ristli reyndust neikvæðar.
Fimmta innlögnin var fyrir tveim árum
vegna þrálátra blæðinga um endaþarm í
rúman sólarhring fyrir innlögn. Endurteknar
blæðingar voru eftir komu á spítalann.
Æðamyndataka af efri hengisslagæð sýndi
þrjár æðaflækjur, misstórar utanvert í
miðjum botnristli og mjög bráða skuggaefnis-
fyllingu í mjög víðum bláæðum, en engin
merki um leka út í görn, mynd 5A og 5B. Með
hliðsjón af þessum niðurstöðum var gerð
ristilspeglun, sem sýndi litarbreytingar á
þremur stöðum í slímhúð botnristils, gegnt
Slagæö Æðahnykill
Mynd 4. Æðamynd tekin eftir ristilbrottnám og sýnir
æðamisvöxt í botnristli. (Sjúkrasaga II).
ristilsloku og merki um nýlegar blæðingar frá
stærsta svæðinu. Gerð var helmingsstýfing
ristils hægra megin.
Ekkert frásagnarvert kemur fram í heilsu-
farssögu konunnar.
Smásjárgerð, eðli kvillans og orsakir
Smásjárgerð. í sneiðum frá þessari æðamein-
semd sjást útvíkkaðar, hlykkjóttar, þunn-
veggja æðar, oft eingöngu klæddar innan-
þekju og sjaldnar með þunnu, sléttu vöðva-
lagi. Æðar þessar eru aðallega útvíkkaðar
bláæðar, bláæðlingar og háræðar, en einnig
má stundum sjá þykkveggjaðar bláæðar og
slagæðar. Fyrstu breytingarnar sem sjást í
æðamisvexti eru útvíkkaðar stórar bláæðar í
slímubeð, en í slimu eru oftast engar æðabrey-
tingar á þessu stigi. Síðan sjást útvíkkaðar
smærri bláæðar, sem ganga í gegnum
vöðvaþynnu slímhúðar upp í dýpri hluta
hennar. í lengra gengnum æðameinum af
þessu tagi sést síaukinn fjöldi útvíkkaðra og
aflagaðra æða í slímhúðinni, sem að lokum er
fyllt hlykkjóttum og þöndum æðum. Ekki
ósjaldan eru þessar æðar aðskildar frá ristil-
holi eingöngu með einföldu innanþekjulagi.
Stundum skagar blóðsegi upp úr slíkri æð,
sem ábending um nýlega blæðingu. í þeim
tilvikum æðamisvaxtar, sem greint hefur
verið frá, hafa ekki fundist nein merki um
æxlisvöxt, né hefur smásjárgerðin samræmst
því að um slagæða-bláæða-missmíð væri að
ræða. Niðurstöður rannsókna á þessari mein-
- Slagæð
Æðahnykill
0
Bláæð
Mynd 5A og 5B.
Æðamyndataka af arteria
mesenterica superior fyrir
aðgerð, (sjúkrasaga III), sýnir
þrjár æðaflœkjur og
skuggaefnisfyllingu í mjög
víðum bláæðum.