Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1985, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 15.04.1985, Blaðsíða 32
98 LÆKNABLAÐIÐ 1985; 71: 98-103. Vilhjálmur Rafnsson, Soffia G. Jóhannesdóttir RANNSÓKN Á DÁNARMEINUM MEÐAL MÚRARA Á ÍSLANDITÍMABILIÐ 1951-1982 INNGANGUR Snefilefni í sementi geta haft áhrif á heilsu þeirra, sem með steypu vinna. Helst þessara efna eru málmarnir nikkel og kóbalt, en þó sérstaklega króm og er það í mestu magni þessara málma (1). Sexgilt króm fannst í íslensku sementi við athuganir, sem gerðar voru 1983 (2). Sexgilt króm í sementi getur vakið ofnæmisviðbrögð og á þann hátt valdið húðútbrotum (1, 3, 4, 5, 6). Einnig er talið að krómsambönd hafi skaðvænleg áhrif á önd- unarfærin, valdi sárum á slímhimnum nefs- ins, götum á miðsnesinu, bandvefsherslum í lungum og ofnæmisastma (7). Hjá starfsmönnum, sem unnið hafa við framleiðslu á krómsamböndum eða við krómhúðun, hefur verið lýst aukinni tíðni krabbameina í lungum (8, 9, 10, 11, 12). Alþjóðlega krabbameinsrannsóknastofnunin (IARC) í Lyon telur nægar sannanir fyrir því, að krómsölt valdi lungnakrabbameini hjá þeim, sem vinna við framleiðslu þeirra (13). Þær faraldsfræðilegu niðurstöður, sem fyrir liggja, eru ónógar til að meta hlut hinna ýmsu krómsambanda, hvað varðar form eða leys- anleika, með tilliti til hættunnar á, að þau framkalli krabbamein (13). Ekki er heldur vitað, hverri krómmengun starfsmenn mega verða fyrir, þannig að ekki aukist hættan á, að þeir fái lungnakrabbamein (7). Ofangreind atriði hafa orðið tilefni þessarar hóprannsóknar. Megintilgangur hennar er að kanna dánarmein múrara, einkum þann fjölda sem dáið hefur úr krabbameini, sér- staklega lungnakrabbameini. Fjöldi dáinna í hópi múrara verður borinn saman við þann fjölda sem vænta má að deyi miðað við íslenska karla í heild. Okkur er ekki kunnugt um fyrri rannsóknir meðal múrara af þessu tagi, en hóprannsókn á starfsmönnum við sementsframleiðslu hefur Vinnueftirlit ríkisins. Barst ritstjórn 29/12/1984. Samþykkt til birtingar og send í prentsmiðju 13/01/1985. aftur á móti leitt í ljós aukna hættu á dauða úr magakrabbameini (14), sem talin er tengjast mikilli rykmengun. AÐFERÐIR Rannsóknaraðferðin, sem notuð er, kallast aftursýn hóprannsókn (retrospective cohort study). Skilgreindur er rannsóknarhópur, sem er allir múrarar skráðir í Múraratali og steinsmiða (3) og fæddir eru á árunum 1905 - 1945 er tekið hafa sveinspróf eða hafa fengið sveinsréttindi á íslandi eða fengið meistara- bréf í múraraiðn, samkvæmt úrskurði Land- sambands íslenskra iðnaðarmanna. Rann- sóknarhópurinn er 450 múrarar, allt karlar. Leitað var að múrurunum í skrá Hagstofu íslands 1. desember 1982 og athugað hvort þeir væru á lífi. Að þeim, sem ekki fundust í nafnnúmeraskránni, var leitað í skrám yfir dána. Eftir þeim, sem sagðir voru búsettir erlendis, var grennslast hjá íslenskum sendi- ráðum og erlendum manntalsstofnunum, hvort þeir voru lífs eða liðnir. Á þennan hátt fengust upplýsingar um afdrif allra einstak- linganna í rannsóknarhópnum. Upplýsinga um dánardag og dánarmein var aflað af dánarvottorðum hjá Hagstofu íslands. Dánarmeinin voru flokkuð til samræmis við sjöundu útgáfu Hinnar alþjóðlegu sjúkdómá- og dánarmeinaskrár. Fjöldi mannára sem múrararnir eru í hættu að deyja, var reiknaður frá því að fyrsti múrarinn í hópnum fékk sveinspróf/réttindi, þ.e. frá árinu 1927 og til 1. desember 1982 eða til dánardags þeirra, sem fallið höfðu frá fyrir þann tíma (15,16). Væntanlegur fjöldi dáinna (expected number, væntigildi), fyrir dánar- mein, sem voru athuguð, var reiknaður út á grunni samsvarandi dánartalna fyrir karla á íslandi 1951-1980 og framreiknaðra dánar- talnafyrirárin 1981-1982(15,16). í rannsókn- inni er þannig fjöldi dáinna úr múrarahópn- um (observed number, fundinn fjöldi dáinna)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.