Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1985, Síða 40

Læknablaðið - 15.04.1985, Síða 40
101 LÆKNABLAÐIÐ múrararnirírannsóknarhópnumfengusveins- próf/réttindi og í þeim hópi var 201 múrari. Af þeim höfðu 38 dáið, en búast mátti við 27,82 látnum. Gefur það staðlað dánarhlut- fall 1,37, sem er nálægt því að vera tölfræði- lega marktækt, þar sem neðri 95% öryggis- mörkin eru nálægt einum heilum eða 0,97. Þegar litið er á einstök dánarmein sést að þetta má aðallega rekja til aukinnar hættu á að deyja úr illkynja æxlum og þá sérstaklega illkynja æxlum í barka, berkjum og lungum. Staðlað dánarhlutfall fyrir hið fyrrnefnda er 2,23 (tölfræðilega marktækt á 1% stigi), en staðlað dánarhlutfall fyrir hið síðarnefnda er 6,25 (tölfræðilega marktækt á 0,1% stigi). Þetta merkir, að hættan hjá múrarahópnum á að deyja úr illkynja æxlum, er um tvöfalt meiri og að hættan á að deyja úr illkynja æxlum í barka, berkjum og lungum, er um sexfalt meiri en hjá íslenskum körlum í heild, miðað við 30 ára huliðstíma. UMRÆÐA Athyglisverð er sú stígandi, sem sést á stöðluðum dánarhlutföllum fyrir öll dánar- mein, öll illkynja æxli og illkynja æxli i barka, berkjum og lungum, ígegnum töflurll, III og IV. Fyrir öll dánarmein stígur staðlað dánar- hlutfall frá 0,94 á tímabilinu 1951-1982 í 1,15 með 20 ára huliðstíma og í 1,37 með 30 ára huliðstima, en það síðastnefnda er, eins og fyrr sagði, mjög nærri því að vera tölfræði- lega marktækt. Þegar staðlað dánarhlutfall fyrir öll ill- kynja æxli er reiknað fyrir tímabilið 1951- 1982, er það nærri því að vera tölfræðilega marktækt og verður það á 5% stigi við 20 ára huliðstíma og á 1 % stigi við 30 ára huliðstíma. Þetta bendir til þess að hættan á að deyja úr ill- kynja æxli aukist því lengur sem múrararnir til- heyra hópnum. Þegar litið er á ákveðin dánarmein í flokknum illkynja æxli sést, að þetta má aðallega rekja til aukinnar hættu á að deyja úr illkynja æxlum í barka, berkjum og lungum. Staðlað dánarhlutfall fyrir illkynja æxli í barka, berkjum og lungum er 3,14 á tímabil- inu 1951-1982, 3,65 með 20 ára huliðstíma og 6,25 með 30 ára huliðstíma með hækkandi stigum af tölfræðilegri marktækni. Hugtakið áhrif hraustra starfsmanna (healthy worker effect) (18, 19) er tengt rannsóknum með þessu sniði, sem byggja á samanburði á fjölda dáinna í rannsóknarhóp við væntigildi, sem fundið er frá dánartölum þjóðar í heild. Þessi áhrif gera að verkum að staðlað dánarhlutfall rannsóknarhópsins he- fur tilhneigingu til að vera vel undir einum heilum. Meginástæðurnar fyrir þessu eru tvær. í fyrsta Iagi eru meðal þjóðarinnar óvinnufærir og atvinnulausir einstaklingar, sem sumir eru sjúkir eða fatlaðir og hafa hærri dánartölu en starfandi hópar. í öðru lagi veljast heilsuhraustir einstaklingar til starfa, sem krefjast líkamlegra burða og andlegrar hæfni. Hætt er því við, að hinir veikbyggðari leiti síður eftir múraramenntun. Það kemur á óvart, að ekki skuli sjást merki um áhrif hraustra starfsmanna í múrara- hópnum, en það er nánast venja við rannsókn- ir, sem gerðar eru með þessari aðferð (19) og undirstrikar þá alvarlegu áhættu sem múr- arahópurinn er í. í inngangi var sagt frá snefilefnum í sementi, krómi, nikkeli og kóbalti og að þau gætu haft áhrif á heilsufar múrara. Sérstak- lega þarf að beina athyglinni að krómi, en í sementi er mest af því af þessum efnum. Störfum við múrvinnu fylgja reyndar óhrein- indi af ýmsum efnum og vinnuaðstæðurnar fela í sér mikið líkamlegt álag og erfiði. Aðstæður þessa hóps, sem hér hefur verið athugaður, hafa að sjálfsögðu verið mismun- andi með tilliti til þessa, bæði hvað varðar hag hvers einstaklings fyrir sig og einnig hafa vinnuaðferðir og þau efni, sem unnið hefur verið með, að einhverju leyti breyst á því tímabili, sem rannsóknin nær til. Ekki liggja fyrir upplýsingar um starfsferil einstaklinga í hópnum, en sameiginlegt þeim er, að allir hafa hlotið sveinsréttindi sem múrarar og þannig unnið lágmarkstíma við múrverk. Allir í hópnum hafa því unnið með sement og steypulögun og orðið fyrir krómmengun sem því fylgir, bæði í formi loftmengunar, ryks og úða, auk óhjákvæmilegrar húðsnertingar. Alkunna er að sígarettureykingar valda krabbameini, sérstaklega lungnakrabba- meini. Því mætti halda fram, að stórreykingar meðal múrara skýrðu hluta af þeim mismun á fjölda dáinna úr lungnakrabbameini, sem kemur fram hjá múrur um annars vegar og samsvarandi úrtaki íslenskra karla hins vegar. Þá væri verið að gefa sér, að múrarar reyktu svo miklu meira en aðrir karlmann, að það yki hættuna á að múrarar dæju úr lungnakrabba-

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.