Læknablaðið - 15.04.1985, Síða 41
Enn einn íslenskur kostur:
TENSÓL
(atenolól)
Sérhæfur beta-blokkari
við háþiýstingi og hjartaöng.
Þrír styrkleikar skapa aukna
möguleika á einstaklings-
bundinni meðfeið.
Kiginleikar: Beta-blokkari með áhrifum aðallega á beta-1 viðtæki, en án eigin sympatómime-
tískra áhrifa (ISA). Ábendingar: 1. Háþrýstingur. 2. Hjartaöng (angina pectoris). Frábend-
ingar: Algerar: Ómeðhöndluð hjartabilun. 2. II. — III. gráðu leiðslurof (dissociatio atriovent-
ricularis). Afstæðar: 1. Lungnasjúkdómar með berkjusamdrætti. 2. Hjartabilun. 3. Hægur
hjartsláttur. 4. Æðaþrengsli í útlimum (arteriosclerosis obliterans, Raynauds phenomen). 5.
Sykursýki án meðferðar. 6. Sýring í líkamanum (acidosis metabolica). 7. Háþrýstingur í
lungnablóðrás (cor pulmonale). 8. Þungun. Varúð: 1. Varast ber að hætta gjöf lyfsins skyndi-
lega hjá kransæðasjúklingum. 2. Lyfið dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjartabilun, sem
áðurolli ekki einkennum, getur þá komið fram. 3. Einkenni berkjusamdráttar (mb. respirator-
icus obstructivus) geta komið í ljós af lyfinu. 4. Lyfið getur leynt einkennum of lágs blóðsykurs
og skjöldungsörvar (thyreotoxicosis). 5. Við nýrnabilun þarf að minnka skammt lyfsins. Auka-
verkanir: Geðrænar: Þreyta, þunglyndi, svefnleysi, martröð, ofskynjanir. Meltingarfæri:
Verkir, ógleði, uppköst, niðurgangur. Blóðrás: Svimi, hand- og fótkuldi. — Vöðvaþreyta. Ut-
þot og þurrkur í augum, þá ber að hætta notkun lyfsins, þó ekki skyndilega. Milliverkanir:
1. Beta-blokkara og verapamfl (Isoptin) á helst ekki að gefa samtímis vegna hættu á AV-blokki
og hjartabilun. Nífedipín (Adalat) getur einnig valdið AV-blokki og hjartabilun, ef það er gefið
samtfmis beta-blokkara, en sjaldnar en verapamfl. Hvorki skal gefa beta-blokkara né kalsíum-
antagónista (nífedipín, verapamfl) í æð fyrr en a.m.k. 48 klst. liðnum frá því gjöf lyfs úr hinum
lyfjaflokknum var hætt. 2. Digitalis og beta-blokkarar geta dregið of mikið úr rafleiðni og valdið
hægum hjartslætti eða leiðslurofi. 3. Sýrubindandi lyf með álsöltum draga úr virkni lyfsins. 4.
Címetidín eykur áhrif lyfsins. 5. Svæfingalyf geta ásamt beta-blokkurum dregið verulega úr
samdráttarkrafti hjartans. 6. Gæta skal sérstakrar varúðar, ef beta-blokkarar og dísópýramíð
eða skyld lyf eru gefin samtímis vegna hættu á hjartabilun eða alvarlegum leiðslutruflunum.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Háþrýstingur: 50 — 100 mg á dag, sjaldan 200 mg á
dag. Lyfið má gefa í einum skammti daglega. Minni skammta skal nota, ef nýrnastarfscmi er
skert. Hjartaöng: 50 mg tvisvar sinnum á dag; má auka með varúð í 100 mg tvisvar sinnum
á dag. Skammtastærðir handa börnum: Ekki eru til upplýsingar um
skammtastærðir handa börnum.
Pakkningar: Töflur 25 mg: 30 stk., 100 stk.
Töflur 50 mg: 30 stk., 100 stk.
Töflur 100 mg: 30 stk., 100 stk.
° REYKJAVIKURVEGI78
222 HAFNARFJORÐUR