Læknablaðið - 15.04.1985, Blaðsíða 52
108
LÆKNABLAÐIÐ 1985; 71: 108-12.
FUL
ÁRSSKYRSLA FÉLAGS UNGRA LÆKNA
starfsárið 1983-1984
Stjórn Félags ungra lækna starfsárið 1983-
1984 skipuðu eftirtaldir: Formaður: Vil-
helmína Haraldsdóttir, ritari: Þórður Þór-
kelsson, gjaldkeri: Þóra Steingrímsdóttir,
ráðningastjóri: Kristleifur Þ. Kristjánsson,
formaður kjaranefndar: Grímur K. Sæmund-
sen, formaður utanríkisnefndar: Margrét
Oddsdóttir, formaður fræðslunefndar: Jón
Jóhannes Jónsson. Meðstjórn: Ásgeir
Böðvarsson, Einfríður Árnadóttir, Kristinn
Sigvaldason.
SKÝRSLA FORMANNS
Stjórnin hélt 14 fundi á starfsárinu. Auk þess
voru haldnir nokkrir minni vinnufundir, þar
sem unnið var að áveðnum verkefnum.
Stjórnarfundir voru flestir haldnir í skrif-
stofu læknafélaganna í Domus Medica. Ýms-
um kann að þykja stjórn félagsins vera fjöl-
menn, en hafa verður í huga, að alltaf eru
einhverjir meðlimir hennar forfallaðir á
stjórnarfundum vegna vakta, svo og
vegna héraðsskyldu. í fráfarandi stjórn sátu
þrír meðlimir, sem voru í stjórn félagsins
1982-1983, og gafst það fyrirkomulag vel,
þar sem sömu málin eru gegnumgangandi á
fundum stjórnarinnar.
Tveir félagsfundir voru haldnir á árinu. Sá
fyrri var haldinn á Borgarspítalanum þann 25.
jan. sl., og var þá kynnt sameiginleg kröfu-
gerð læknafélaganna vegna samninga
sjúkrahúslækna, er voru lausir 29. febr. 1984.
Það er skemmst frá að segja, að þrátt fyrir að
fundurinn væri mjög vel auglýstur, var
fundarsókn til skammar, en batnandi mönn-
um er bezt að lifa, og vona ég að áhugi verði
meiri þegar samningar verða aftur lausir þ.e. í
febrúar n.k.
Þann 12. marz 1984 var svo haldinn annar
félagsfundur um sérnám og möguleika til
sérnáms erlendis. Þeir sem voru á síðasta
aðalfundi, muna væntanlega eftir því, að þar
var samþykkt ályktun um að halda skuli
árlega slíkan fræðslufund. Við fengum marga
góða gesti til að tala á fundinum og fundar-
sókn var mjög góð. Auðvitað varð tíminn of
naumur, en því má auðveldlega kippa í lag á
næsta fundi.
Framhaldsmenntunarmál. í síðustu árs-
skýrslu kom fram, að í mars 1983 skipaði
þáverandi heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra fimm menn í nefnd til að gera
tillögu um skipan framhaldsmenntunar læ-
kna hér á landi. Finnbogi Jakobsson, fyrrver-
andi formaður Félags ungra lækna, var
fulltrúi okkar í þessari nefnd. Nefndin hefur
nú skilað áliti og er þar komist að þeirri
niðurstöðu, að brýnt sé að skipulagt sérnám
hefjist hér sem fyrst. Gert er ráð fyrir, að hægt
sé að hefja sérnám hér í 1-2 ár og síðan ljúka
því erlendis. Þær greinar, sem lagt er til að
byrjað verði á eru heimilislækningar, Iyf-
Iæknisfræði.skurðlæknisfræðioggedlæknis-
fræði. Lagt er til, að ráðinn verði kennslu-
stjóri í hlutastarf, sem ásamt 3ja manna
nefnd, sérnámsnefnd lækna, sjái um fram-
kvæmd.
Héraðsskylda. Fyrir rúmu ári ritaði þáverandi
stjórn FUL heilbrigðisráðherra enn eitt mót-
mælabréfið vegna héraðsskyldunnar. Eftir
nokkurn tíma barst svo svarbréf ráðherra á þá
leið, að enginn hefði sótt um lausar stöður
heilsugæzlulækna á Djúpavogi, Þórshöfn og
Hólmavík síðast er þær voru auglýstar. í bréfi
ráðherra kom fram, að bæði landlækni og
Iæknadeild finnist rétt að fella niður
héraðsskylduna í núverandi mynd, en ráðher-
ra situr fastur við sinn keip.
Staða tœkna í dag. Allmikið hefur verið rætt
um stöðu lækna, bæði í þjóðfélaginu og í
heilbrigðiskerfinu. Mjög oft sjást í
fjölmiðlum neikvæð viðhorf í garð stéttar-
innar, sem oft eru byggð á veikum grunni.
Ennfremur kemur nú glögglega í ljós á
sjúkrahúsunum, að ýmsar aðrar stéttir hafa
tekið að sér stjórnunarstörf, þar sem læknar