Læknablaðið - 15.04.1985, Blaðsíða 55
LÆKNABLAÐIÐ
111
Ameríska prófið verður nú í fyrsta sinn einnig
haldið í janúar 1985, og kemur það ráðninga-
kerfinu til góða, þar sem all margir hugsa sér
að taka sér frí í desember og janúar til
próflesturs, einmitt á þeim tíma sem hvað
þrengst er á vinnumarkaði ráðningakerfisins.
í héraðsmálum hafa orðið á síðustu 2 árum
þau umskipti, að erfiðleikum er bundið að
komast á þeim tíma, sem hverjum hentar.
Hefur fólk orðið að bíða eftir héruðum, og
dæmi eru til þess, að héraðsskylda hefur
fengist niðurfelld á þeim forsendum, að engin
staða hafi verið, þegar viðkomandi sótti um
að komast í hérað. Rétt væri að þrýsta á um að
héraðsskyldan fáist felld niður. Ljóst er, að
þar er þó á brattann að sækja á meðan ekki
hefur verið fastráðið í öll héruð.
Öllum ættu að vera ljósir kostir og gallar
núverandi ráðningakerfis. Kostirnir eru fyrst
og fremst sveigjanleiki kerfisins, sem gerir
ráðningastjórum auðveldara að bregðast við
óvæntum uppákomum, eins og veikindum,
nýjum stöðum og fleiri óvissuþáttum. Einnig
gerir þetta kandídötum fært að breyta áætl-
unum sinum um frí og/eða í samræmi við
breyttan áhuga og markmið. Ókostirnir eru
aftur á móti, að fólk er í nokkurri óvissu um
tekjurnar, og því erfitt að gera fjárhagsáætl-
anir Iangt fram í tímann. Annars má segja, að
langflestir fái það, sem þeir vilja, og oftast er
einungis spurning um tíma, hvenær maður
kemst á tilteknar deildir. Varðandi okkur
ráðningastjórana, þá gera óvæntar uppá-
komur oft erfitt fyrir, en þar eiga kandídatar
ekki síður hlut að máli, en yfirlæknar. Þannig
er heildarfjöldi staða og kandídata í kerfinu
stöðugt breytilegur. Varðandi möguleika á að
gera kerfið fastara í formi, teljum við það nær
útilokað, til þess eru óvissuþættirnir alltof
margir. Af fyrri reynslu vitum við einnig, að
fram mundu koma óteljandi beiðnir um
breytingar frá kandídötum varðandi val á
deildum. í besta falli mætti e.t.v. ákveða
megin deildir (med. og kir.) fyrirfram.
Það sem leggja ber áherslu á í framtið-
inni, er frekari skilgreining á stöðugildum
spítalanna, þ.e. hvað séu aðstoðarlækn-
isstöður, súperkandídatsstöður, námsstöður
eða sérfræðingsstöður. Eðlilegast væri, að
slikt uppgjör færi fram í tengslum við
skipulagningu framhaldsnáms hér heima.
Ljóst er, að nokkur þrýstingur getur skapast
frá sérfræðingum erlendis frá, að komast inn
í aðstoðarlæknisstöður á íslandi, einkum,
þegar frekar fer að þrengja að á vinnumark-
aðnum á hinum Norðurlöndunum, og ef
Bandaríkjamenn fara að gera erfiðara fyrir
erlenda lækna að setjast að að loknu sérnámi.
Varðandi þetta þarf að skapa ákveðna
afstöðu, og þá í tengslum við skilgreiningu
stöðugilda og framtíðarspár um fjölda útskrif-
aðra kandídata á hverju ári frá Háskóla
íslands. Að 5-6 árum liðnum, gæti skapast hér
nokkur skortur á aðstoðarlæknum, þ.e. þegar
numerus clausus hefur haft áhrif til fækkunar
útskrifaðra kandítata. Eins og er, er kerfið í
jafnvægi og yfir vetrartímann ráðið í allar
stöður á sjúkrahúsunum og varla hægt að tala
um atvinnuleysi, þó að einhverjir verði að
taka sér frí á öðrum tíma, en þeir ætluðu sér.
Þegar numerus clausus hefur haft áhrif til
fækkunar fjölda útskrifaðra kandídata, er
sjálfsagt að lengja stöður aðstoðarlækna
þannig, að þær nýtist þeim til framhalds-
menntunar. KK
ÁRSSKÝRSLA FORMANNS
UTANRÍKISNEFNDAR
Starfið var með svipuðu sniði og s.l. ár, mikill
hluti þess var í tengslum við PWG (Permanent
Working Group of European Junior Hospital
Doctors). Sóttir voru 2 fundir á vegum PWG,
í mai í Vín og í september í Oporto. Mikið
atvinnuleysi rikir nú meðal lækna í mörgum
löndum Evrópu, einna verst er ástandið í
Þýskalandi, Danmörku, Sviss, Austurríki,
Hollandi, Ítalíu ogáSpáni. f Svíþjóðerekkert
atvinnuleysi, en víða er »falið«. í Bretlandi fer
útskrifuðum læknum fækkandi.
Fyrir fundinn í Vín var það hlutverk
islenska fulltrúans að undirbúa plagg um
»Public Relations and PWG«, því um það eru
nú skiptar skoðanir innan samtakanna hversu
öflug og ákvarðandi þau eiga að vera fyrir hin
einstöku aðildarfélög. EBE Iöndin og flest S-
Evrópulönd vilja efla PWG. í umræðunum
um kynningarstarf (Public Relations) kom
það fram að flest aðildarfélögin hafa mörgum
kynningarfulltrúum á að skipa og gegna þeir
miklu hlutverki í málum þeirra og starfi út á
við, t.d. i undirbúningi verkfalla, samninga
og blaðamannafunda. Á fundinum í Vin
sögðu Finnarnir frá undírbúningi samninga
og verkfallsins í vor en í Oporto frá árangr-