Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1985, Síða 6

Læknablaðið - 15.12.1985, Síða 6
ÍSLENSKT SÉRLYF: ATENÓLÓL HAGKVÆMT OG ÁRANGURSRÍKT LYF TIL MEÐFERÐAR Á HÁÞRÝSTINGI OG HJARTAÖNG. Eiginleikar: Beta-blokkari með áhrifum aðallega á beta-1 viðtæki, en án eigin sympatomi- metískra áhrifa (ISA). Ábendingar: 1. Háþrýstingur. 2. Hjartaöng (angina pectoris). Frá- bendingar: Algerar: 1. Ómeðhöndluð hjartabilun. 2. II.-III. gráðu leiðslurof (dissociatio atrioventricularis). Afstæðar: 1. Lungnasjúkdómar með berkjusamdrætti. 2. Hjartabilun. 3. Hægur hjartsláttur. 4. Æðaþrengsli í útlimum (arteriosclerosis obliterans, Raynauds phen- omen). 5. Sykursýki án meðferðar. 6. Sýring í líkamanum (acidosis metabolica). 7. Háþrýst- ingurílungnablóðrás (corpulmonale). 8. Þungun. Varúð: 1. Varastberaðhættagjöflyfsins skyndilega hjá kransæðasjúklingum. 2. Lyfið dregur úr samdráttarkrafti hjartans og hjarta- bilun, sem áður olli ekki einkennum, getur þá komið fram. 3. Einkenni berkjusamdráttar (mb. respiratoricus obstructivus) geta komið í ljós af lyfinu. 4. Lyfiðgetur leynt einkennum of lágs blóðsykurs og ofstarfsemi skjaldkirtils (thyreotoxicosis). 5. Við nýmabilun þarf að minnka skammt lyfsins. Aukaverkanir: Geðrænar: Þreyta, þunglyndi, svefhleysi, martröð, of- slQ'njanir. Meltingarfæri: Verkir, ógleði, uppköst, niðurgangur. Blóðrás: svimi, hand- og fótkuldi. - Vöðvaþreyta. Útþot og þurrkur í augum, þá ber að hætta notkun lyfsins, þó ekki skyndilega. Milliverkanir: 1. Beta-blokkara og verapamíl (Isoptin) á helst ekki að gefa samtímis vegna hættu á AV-blokki og hjartabilun. Nífedipín (Adalat) getur einnig valdið AV- blokki og hjartabilun, ef það er gefið samtímis beta-blokkara, en sjaldnar en verapamíl. Hvorki skal gefa beta-blokkara, né kalsíumantagónista (nífedipín, verapamíl) íœð fýrr en a.m.k. tveimur sólarhringum liðnum frá því gjöf lyfsins úr hinum lyfjaflokknum var hætt. 2. Digitalis og beta-blokkarar geta dregið of mikið úr rafleiðni og valdið hægum hjartslætti eða leiðslurofi. 3. Sýrubindandi lyf með álsöltum draga úr virkni lyfsins. 4. Címetidín eykt^ áhrif lifsins. 5. Svæfmgalyf geta ásamt beta-blokkurum dregið verulega úr samdráttarlúafti hjartans. 6. Gæta skal sérstakrar varúðar ef beta-blokkarar og dísópýramíð eða skyld lyf eru gefin samtímis vegna hættu á hjartabilun eða alvarlegum leiðslutruflunum. Eiturverkanir: Hægur hjartsláttur, leiðslurof, blóðþrýstingsfall, lágur blóðsykur, krampar, berkjusamdrátt- ur. Meðferð: Atrópín 1-2 mg iv, má endurtaka; handa smábörnum 50 míkróg. Glucagon 10 mg iv, má endurtaka eftir 10 mín. Prenalterol 10 mg hægt iv, það má gefa þennan skammt á 3-5 mín. fresti, þar til hjartabilunareinkenni minnka. Skammtastærðir handa fullorðn- um: Háþrýstingur: 50-100 mg á dag, sjaldan 200 mg á dag. Lyfið má gefa í einum skammti daglega. Minni skammta skal nota, ef nýmarstarfsemi er skert. Hjartaöng: 50 mg tvisvar sinnum á dag; má auka með varúð í 100 mg tvisvar sinnum á dag. Skammtastærðir handa bömum: Ekki eru tilgreindar upplýsingar um skammtastærðir handa bömum. Töflur: 50 mg og 100 mg / 30 og 100 stk. jn€ TORO STEFÁN THORARENSEN HF. Síðumúla 32, 105 Reykjavík. Sími 686044.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.