Læknablaðið - 15.12.1985, Qupperneq 7
LÆKNABLAÐIÐ
335
AÐ
TALA
r'
A
FUNDUM
OG
RÁÐSTEFNUM
»Lectures were once useful, but now that all can
read, and books are numerous, lectures are
unnecessary.u (1).
Dr. Samuel Johnson (1709-1784)
»Most medical meetings are dull.« (2)
Stephen Lock, Ed Br Med J
Fundir og ráðstefnur eru vettvangur upplýs-
ingamiðlunar. Þar er hægt að koma á fram-
færi nýjum fróðleik með skjótari hætti,
en verður með því, að skrifa grein um efnið.
Þetta miðlunarform fær sífellt aukna þýð-
ingu í framhalds- og viðhaldsmenntun lækna.
í vaxandi mæli eru læknisfræðirannsóknir
stundaðar hérlendis og niðurstöðum þeirra
þarf að koma á framfæri. Auðveldar sam-
göngur gera mönnum kleift að sækja ráð-
stefnur erlendis og mest munar þó um
samningsbundinn rétt til utanferða. Þá kemur
og til sá hvati, sem felst í orðunum: Lecture or
leave. Eru þau hliðstæð alþekktu orðatiltæki,
sem lengi hefur gilt í menntastofnunum:
Publish orperish. Ekki spillir heldur fyrir, að
þeir, sem bera kostnað af ráðstefnum og
fundum, eru oft reiðubúnir til þess að greiða
fargjald, gistingu og beina. Öll þessi atriði og
mörg fleiri eru samverkandi og hafa Ieitt til
þess, að fleiri og fleiri læknar taka þátt í
fyrirlestrahaldi af einu eða öðru tagi.
Gæði fyrirlestra, sem fluttir eru á fundum
og ráðstefnum lækna, eru misjöfn, bæði að
því er veit að efni og flutningi. Mismunurinn
liggur í undirbúningi og reynslu fyrirlesarans.
Góður fyrirlesari hefur enga sérstaka hæfi-
leika, sem koma honum þrautalaust að mark-
inu. Hann hefur komist klakklaust á leiðar-
enda vegna þess, að hann hefur fylgt réttum
leikreglum. Hann hefur vandað undirbúning
og æft flutninginn.
í því sem hér fer á eftir, er fátt nýtt að finna,
sem lesari vissi ekki fyrir. Trúlega finnst
viðkomandi þetta upptalning augljósra og
sjálfsagðra hluta. Það er alveg rétt. Það er
einnig rétt, að það er ekki hægt að kenna
mönnum ræðumennsku. Hér gildir það sama
og í öllu námi, að um sjálfsnám verður að
ræða. Hins vegar sendir höfundur þér nokkr-
ar leiðbeiningar, auk viðvarana um þær
hindranir, sem kunna að verða á vegi þínum.
Það er gert í þeirri von, að námið verði þér
léttara fyrir bragðið.
EF ÞÉR ER BOÐIÐ . . .
Fáir þú boð um að flytja fyrirlestur á fundi eða
ráðstefnu, átt þú tveggja kosta völ: Að þiggja
boðið eða að afþakka það.
Fyrst af öllu: Fáðu skilgreint nákvæmlega
hvert hlutverk þitt á að vera. Undirbúningur
verður sitt með hverjum hættinum, eftir því
hvort þú átt
• að flytja yfirlitserindi um tiltekið efni,
• að skýra frá rannsókn/könnun þinni,
• að greina frá nýrri tækni eða rann-
sóknaaðferðum,
• að fjalla um nýtilkomna þekkingu eða
• að ræða um sjálfvalið efni.
Ef um munnlegt boð er að ræða og þú ert
sjálfur ekki viðriðinn undirbúning samkom-
unnar, óskaðu þá eftir skriflegri staðfestingu
á boðinu og því, hvert efnið er.