Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 117 NABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavíkur lTr 74. ÁRG. - APRÍL 1988 RANNSÓKNIR Á ÁFENGISNEYSLU OG MISNOTKUN Þó að áfengi hafi verið notað í árþúsundir til gagns eða ógagns eftir atvikum er þekkingin á notkun þess og verkun enn ófullkomin. Slík þekking er nauðsynleg til að takast á við þann vanda sem fylgir áfengisneyslu og afleiðingum hennar. Að vísu hefur safnast saman mikill þekkingarforði og er löngu vitað að áfengi er hættulegt efni sem veldur breytingum á hegðun fólks, sjúkdómum og dauða. Því er nauðsynlegt að hafa hemil á notkun þess í heilsuverndarskyni. Vegna mismunandi aðstæðna og hefða er nauðsynlegt að rannsaka áfengisnotkun í hverju landi sérstaklega jafnframt alþjóðlegum samanburðarrannsóknum. Ekki er víst að alls staðar hæfi sömu aðgerðir til að koma í veg fyrir heilsufarslegar afleiðingar notkunarinnar þó að sömu meginreglur eigi vafalaust alls staðar við. ísland er um margt sérstakt, m.a. á sviði áfengismála. Hér hefur ríkt mjög ákveðin áfengismálastefna sem hefur haft það markmið að halda neyslunni niðri. Árangurinn hefur verið sá, að heildarneysla áfengis hér er enn hin lægsta í Evrópu þrátt fyrir að neyslan hafi farið vaxandi eftir því sem slakað hefur verið á hömlum. Hér hafa komið upp öflugar fjöldahreyfingar sem hafa haft mikil áhrif. Bindindishreyfingin var mjög fjölmenn og öflug snemma á öldinni og mótaði áfengismálastefnu þá sem síðan hefur verið fylgt þó að fljótlega hafi verið horfið frá áfengisbanninu sem ekki var algert nema á árunum 1915-1917. Á árinu 1949 vöru sett sérstök lög um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra. I þeim var lögð áhersla á sjúkdómslíkanið og kveðið á um að við geðsjúkrahús ríkisins skyldi vera aðstaða til rannsókna og meðferðar á þessum sjúklingum. AA samtökin festu hér rætur upp úr 1950 og hafa einnig haft mikil áhrif til þess að móta viðhorf til áfengismisnotkunar og meðferðar hennar vegna. Upp úr þeim var stofnað Bláa-bandið til að reka hjúkrunarstöð og síðar Samtök áhugamanna um áfengisvandamálið (SÁÁ) sem urðu hlutfallslega jafn fjölmenn eftir miðjan áttunda áratuginn og bindindishreyfingin var í byrjun aldarinnar. Árangur þessara samtaka er sá að hér á landi er nú meira framboð á sjúkrahúsmeðferð fyrir drykkjusjúka en nokkurs staðar annars staðar. Þegar ég lærði meinafræði 1949 taldi Niels Dungal prófessor að skorpulifur af völdum áfengis væri varla til á íslandi. Þá var meðalneysla áfengis á ári rúmir tveir lítrar á mann 15 ára og eldri á ári. Skorpulifur var það sjaldgæf að ekki var hægt að nota Jellineks jöfnu til að áætla algengi drykkjusýki hér eins og gert var í öðrum löndum. Bein talning gaf mun hærri niðurstöðu. í störfum mínum fyrst eftir að ég varð læknir fannst mér meira en nóg um fjölda drykkjusjúkra. Meðan ég dvaldist við framhaldsnám í Bandaríkjunum efaðist ég hins vegar um hvort þeir sem ég hafði kynnst á íslandi væru sjúkir, svo miklu verr voru hinir amerísku drykkjusjúklingar farnir, sérstaklega að því er varðaði líkamlega heilsu. Þrátt fyrir lága heildarneyslu þjóðarinnar reyndust líkurnar til að verða áfengismisnotandi einhverntímann á ævinni vera tæplega 10% fyrir karla sem voru fæddir rétt fyrir síðustu aldamót. Dánarlíkur misnotendanna voru verulega meiri en annarra íslendinga. Síðan sá hópur, sem þessi rannsókn tók til, var á þeim aldri sem misnotkun er mest áberandi hefur meðalársneysla áfengis þrefaldast. Jafnframt benda niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verið á síðari árum til að líkurnar til að verða áfengismisnotandi hafi aukist mjög verulega. Á síðustu tuttugu árum hefur verið unnið talsvert að rannsóknum á áfengisneyslu og afleiðingum hennar m.a. fyrir tilstilli Áfengisvarnaráðs ríkisins og er fjallað um nokkrar af þessum rannsóknum í þessu tölublaði Læknablaðsins. Upphaf rannsóknanna var athugun á drykkjuháttum og aðstæðum ungra ofdrykkjumanna. Þessi rannsókn leiddi m.a. í ljós að ofdrykkjumenn höfðu byrjað að neyta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.