Læknablaðið - 15.04.1988, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ
125
höfðu 16,1% á aldrinum 16-20 ára reynt kannabis
einhvern tíma. Neyslumynstur alls hópsins var
eins og kemur fram á mynd 5 (10). Aðeins 10%
hafa engra fíkniefna neytt og aðeins 1% hefur
reynt kannabis en neytir ekki áfengis. Langflestir,
eða 87%, hafa neytt áfengis, 26% hafa einhvern
tíma reynt kannabis og 3% hafa reynt önnur
fíkniefni, þar með talin róandi lyf. Tæpur
þriðjungur þeirra sem reynt hafa kannabis hafa
gert það 10 sinnum eða oftar. Á hinn bóginn voru
5 ár eða meira síðan rúmur þriðjungur hafði neytt
slíkra efna.
Til þess að gefa frekari hugmynd um breytingar á
neyslu annarra fíkniefna en áfengis, er hægt að
bera saman fjölda þeirra sem lagst hafa inn á
Kleppsspítala og síðar geðdeild Landspítalans
vegna neyslu slíkra efna. Fram til 1960 er mjög
sjaldan greind önnur fíkniefnaneysla en áfengi
sem aðalástæða fyrir innlögn. Á árabilinu
1964-1980 eru milli 20 og 30 innlagnir árlega þar
sem aðalgreiningin er misnotkun annarra
fíkniefna. Framan af þessu tímabili eru konur í
meirihluta og fíkniefnanotkunin aðallega róandi
lyf. En munurinn milli kynja fer minnkandi og
snýst raunar við, ef tekið er tillit til bæði
aðalástæðu innlagnar og aukaástæðu.
Hér hefur af handahófi verið valið árið 1980 úr
ársskýrslum geðdeildarinnar til samanburðar við
árið 1984. Á töflu I sést, að á árinu 1980 er önnur
fíkniefnanotkun en alkohólismi greind 20 sinnum
sem aðalástæða innlagnar, en 1984 64 sinnum.
Samanburður af þessu tagi er að vísu
varhugaverður, því að vera má að einhverjir séu
tvítaldir. Til þess að fá örugga vitneskju um það
hvort raunveruleg aukning sé á ferðinni, þyrfti að
athuga hve margir væru að koma í fyrsta skipti
hvort ár. Einnig kann að vera áherslumunur á,
hvort neysla áfengis eða neysla annarra fíkniefna
er talin aðalástæða innlagnar. Tölurnar í töflu II
gefa líka vísbendingu um aukningu annarra
fíkniefna. Heildarfjöldi innlagna á deildina vegna
fíkniefnanotkunar er nokkuð svipaður bæði árin
(tafla I), en aðrar fíkniefnagreiningar eru tvöfalt
fleiri 1984 en 1980. Bæði árin er
áfengismisnotkun greind fjórum sinnum oftar hjá
körlum en konum, en hins vegar er önnur
fíkniefnanotkun aðeins greind tvisvar sinnum
oftar hjá körlum en konum.
Áberandi er, að 1980 er fíkninotkun róandi lyfja
greind mun oftar. Hins vegar var blönduð notkun
ýmissa efna ekki greind það ár, en helmingur
greininganna 1984 var slík notkun. Ef þessar tvær
töflur eru skoðaðar saman sést einnig, að
langflestir sem neyta annarra fíkniefna neyta
jafnframt áfengis. Á töflu II sést loks, að sú
breyting hefur orðið á þessu fimm ára bili, að á
árinu 1984 virðist vera meira um notkun ólöglegra
efna en á árinu 1980. Sýnir þetta kannski annars
vegar aukna varkárni lækna við ávísun róandi
lyfja, en hins vegar hættulega þróun í notkun
ólöglegra efna sem fleiri en heilbrigðisstéttir þarf
til að koma í veg fyrir.
UMRÆÐA
Eins og fram hefur komið er heildarsala (neysla)
áfengis á íslandi lægri en á hinum
Norðurlöndunum og raunar lægri en í nokkru
öðru Evrópulandi (17). Þó að erfitt sé að fá
sambærilegar tölur til að byggja á, er sennilegt að
notkun á öðrum fíkniefnum sé einnig minni hér á
landi, nema e.t.v. á kannabis. Á árunum 1979,
1980 og 1984 voru framkvæmdar kannanir í
Bergen og Osló sem sýndu, að 9% 15-20 ára
unglinga í Bergen höfðu notað kannabis, en
19,5% í Osló og 21,8% árið 1984 (18). Á árinu
1985 höfðu um 7% Norðmanna 15 ára og eldri
reynt kannabis, fleiri í Osló (11%) en annars
staðar, þar af 3% á síðustu 12 mánuðum fyrir
könnunina (19).
í Svíþjóð hefur ungu fólki, sem reynt hefur
kannabis, farið fækkandi síðan 1980 niður í
Tafla I. Fjöldi sjúklinga á geðdeild Landspítala 1980 og
1984 með aðalgreiningarnar áfengismisnotkun eða
önnur fíkniefnanotkun.
1980 1984
Áfengismisnotkun....................... 570 564
Önnur fíkniefnanotkun................... 20 64
Samtals 590 628
Tafla II. Sjúklingar á geðdeild Landspítala 1980 og
1984 sem hafa fengið fíkniefnagreiningu.
1980 Karlar Konur 1984 Karlar Konur
Áfengi ... 508 125 524 127
Önnur fíkniefni ... 111 52 211 95
Morfín ... 2 - 2 6
Róandi lyf ... 70 37 34 20
Kókaín ... 3 - 2 -
Kannabis ... 11 6 15 9
Amfetamín ... 7 5 19 5
LSD ... 2 1 1 _
Mörg efni . . . - 110 45
Annað eða ótilgreint.... . .. 16 3 28 10