Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.1988, Qupperneq 40

Læknablaðið - 15.04.1988, Qupperneq 40
150 LÆKNABLAÐIÐ hvaða athafnir er um að ræða. Mest var andstaðan gegn því að dæma afbrot mildar vegna þess að viðkomandi væri undir áhrifum áfengis. Meirihlutinn taldi heldur ekki ástæðu til að taka minna mark á orðum fólks, þegar það er undir áhrifum áfengis en ella. Frekar væri hægt að sætta sig við að verða sér til skammar undir áhrifum áfengis eða lenda í rifrildi eða handalögmálum. Lítill munur var á svörunum á milli landa. Finnar voru þó heldur harðari á afstöðu sinni en aðrir í þá veru að áfengisáhrif gætu ekki minnkað ábyrgð manna á eigin athöfnum. Ætla hefði mátt að íslendingar, sem líta ölvun jákvæðari augum en hinar þjóðirnar, teldu að áfengisáhrif Tafla VIII. Hlutfall (%) áfengisneytenda á Norðurlöndum sem finnst þeir hafa drukkið of mikið. Finnland ísland Noregur Svíþjóö Drukkið meira en viðkomandi ætlaði ... 49 49 40 41 Hræddur við að verða háður 11 14 7 7 Átt erfitt með að hætta 14 18 11 12 Ætti að drekka sjaldnar 27 28 16 18 Tafla IX. Hlutfall (%) neytenda sem hafa fundið til timburmanna á síðstu 12 mánuðum. Finnland ísland Noregur Svíþjóö Taugaóstyrkur eða spenna Höfuðverkur eða 23 23 14 12 ógleði Ekki komist á fætur á 57 59 47 42 venjulegum tíma 23 27 22 16 Ekki komist í vinnu .. 11 15 6 4 Tafla X. Hlutfall (%) áfengisneytenda sem hafa orðið fyrir nokkrum óheppiiegum afleiðingum neyslunnar einhvern tíma á slðstu 12 mánuðum. Finnland ísland Noregur Svíþjóð Séð eftir e-u sem viðkomandi sagði eða gerði undir áhrifum .. 27 35 22 21 Verið háværari en venjulega 33 43 32 28 Eytt meiri peningum en ella 35 38 20 15 Lent í rifrildi við einhvern 15 26 10 11 Lent í handalögmálum eða slagsmálum 5 7 3 2 afsökuðu gerðir fólks, en svörin staðfestu það ekki. Skaðsemi áfengisneyslunnar. Margar áfengisrannsóknir hafa beinst að því að kanna félagslegar afleiðingar áfengisneyslu og hvaða áhrif hún hefur á heilsu fólks. í þeim flestum hefur tekist að sýna fram á samband á milli áfengisneyslu og hærri dánartíðni vegna skorpulifrar, umferðarslysa, og ákveðinna ofbeldisbrota og að vandamálin aukast með vaxandi áfengisneyslu (4). í norrænu rannsókninni var eingöngu kannað hver reynsla fólks væri af bráðum vandamálum í tengslum við áfengisneyslu. Einnig var spurt um það hvort fólk væri hrætt um að það drykki of mikið og ætti í erfiðleikum með að stjórna áfengisneyslunni. Tafla VIII sýnir hversu hátt hlutfall þeirra sem hafa neytt áfengis á síðustu tólf mánuðum telja sig hafa reynslu af þessu í tengslum við eigin áfengisneyslu. Á töflu VIII sést að skýr munur er á milli landanna. Þessi vandamál eru algengust í Finnlandi og íslandi en færri hafa þau í Noregi og Svíþjóð. Það var algengt í öllum löndunum að fólk drykki meira en það ætlaði sér, og nokkuð hátt hlutfall íslendinga og Finna töldu að þeir ættu að drekka sjaldnar. Niðurstöðurnar eru svipaðar þegar spurt er um timburmenn eins og sjá má á töflu IX. Hlutfallið er hæst og mjög svipað meðal Finna og íslendinga, en verulega lægra í Noregi og enn lægra i Svíþjóð. Meirihluti þeirra sem neyta áfengis á íslandi og í Finnlandi hafði fengið höfuðverk eða fundið til ógleði vegna áfengisneyslu og nokkuð margir höfðu ekki komist á fætur á venjulegum tíma daginn eftir að þeir neyttu áfengis. Þegar aðrar afleiðingar áfengisneyslunnar eins og áhrif á ýmsa hegðun eru kannaðar, er röð landanna sú sama og áður eins og sést á töflu X. Miklu fleiri í Finnlandi og á íslandi og fleiri í Noregi en í Svíþjóð segjast hafa orðið fyrir skaðlegum afleiðingum áfengisneyslu sinnar. íslendingar verða oftar háværari en venjulega, eyða meiri peningum og lenda oftar í rifrildi en Finnar sem komast næst íslendingum en slíkar afleiðingar eru sjaldgæfari hjá Norðmönnum og Svíum. Spurt var hvort fólk hefði ekið bifreið undir áhrifum áfengis á síðustu tólf mánuðum. Þeirri spurningu svöruðu 16% íslendinganna játandi á

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.