Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.1988, Qupperneq 45

Læknablaðið - 15.04.1988, Qupperneq 45
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 155-8 155 Gylfi Ásmundsson UMFERÐ OG ÁFENGI ÚTDRÁTTUR Það eru einkum tveir þættir, sem gætu varpað ljósi á áhrif áfengisneyslu á umferðina. í fyrsta lagi hvernig fjölda umferðarslysa, sérstaklega áfengistengdra slysa, ber saman við þá aukningu sem hefur orðið á heildarneyslu áfengis. í öðru lagi má styðjast við tíðni ölvunaraksturs í landinu og hvernig henni ber saman við tíðni umferðarslysa annars vegar og heildarneyslu áfengis hins vegar. Til að kanna þessi tengsl hefur tiltækum tölfræðilegum gögnum varðandi umferðarslys og ölvun á tímabilinu 1966-1980 verið safnað og þau borin saman við fólksfjöldatölur, heildarneyslu áfengis og fjölda bifreiða í landinu. Þrátt fyrir að umferðarslysum hafi hlutfallslega heldur farið fækkandi, einkum ef miðað er þá miklu aukningu sem hefur orðið á fjölda ökutækja, benda niðurstöðurnar til þess að áfengistengdum umferðarslysum fari fjölgandi og hamli verulega gegn þróun að öðru leyti til fækkunar slysa. Finna má samsvörun á milli heildarneyslu áfengis, ölvunaraksturs og umferðarslysa á þessu 15 ára tímabili. INNGANGUR Umferðarslys og áfengismisnotkun eru hvort um sig meðal mestu heilbrigðisvandamála á íslandi í dag eins og reyndar í flestum vestrænum löndum. Enginn vafi er á því að nokkur orsakatengsl eru þarna á milli þannig að áfengisneysla eigi drjúgan og sennilega vaxandi þátt í umferðarslysum, einkum þegar um alvarleg líkamsmeiðsli og dauðaslys er að ræða. Þetta kemur fram í tölum (tafla I) um áfengistengd umferðarslys. Dæmi eru tekin frá Kaliforníu og Finnlandi (1), og eftir skýrslum Umferðarráðs (2) fyrir ísland, en skrásetning áfengistengdra umferðarslysa hófst hér á landi 1976. í þeirri athugun, sem hér er greint frá, er reynt að finna að hve miklu leyti breytingar á heildarneyslu áfengis, tíðni ölvunaraksturs og Frá Geðdeild Landspítalans. Barst 16/09/1987. Samþykkt 04/01/1988. tíðni umferðarslysa tengjast yfir tiltekið árabil. Þetta er lítill hluti af umfangsmikilli samnorrænni könnun á skaðlegum afleiðingum áfengis í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og íslandi, sem enn er ekki lokið. Tekur hún til árabilsins 1930-80 og byggist á gögnum um dánartíðni ýmissa sjúkdóma, sem hugsanlega má rekja til áfengismisnotkunar, svo og slysa, afbrota og innlagna vegna alkóhólisma. Skoðuð eru tengsl þessara þátta við heildaráfengisneysluna og ýmsa þætti eins og neysluvenjur, áfengislög og stefnu. EFNI OG AÐFERÐ Hvað ísland snertir eru nothæf gögn um úmferðarslys og ölvunarakstur, sem ná til landsins í heild, ekki fyrir hendi fyrr en eftir 1966 og í sumum tilfellum gætir jafnvel nokkurs misræmis eftir það. Hér verður því eingöngu fjallað um tímabilið 1966-80. Á þessu tímabili hefur einmitt orðið athyglisverð þróun í áfengisneyslu, heildarneysla áfengis hefur aukist verulega, neytendum hefur fjölgað og þá fyrst og fremst meðal unglinga og kvenna, og sjá má nokkrar breytingar á drykkjuvenjum, eins og fram hefur komið í niðurstöðum úr könnun á áfengisneysluvenjum íslendinga, sem hófst 1972 (3). Á sama tíma hefur orðið gífurleg aukning í bílaflota landsmanna og ökumönnum hefur fjölgað, mest einnig úr hópi ungs fólks og kvenna. Tafla I. Hlutfall áfengistengdra umferðarslysa af öllum umferðarslysum eftir tegund slysa. 1960 1975*) 1980 Kalifornía: slys m. meiðslum . .. .. 12% 13% dauðaslys .. 21% 34% Finnland: slys m. meiðslum ... .. 8% 15% dauðaslys .. 15% 23% ísland: slys m. meiðslum ... 14% 18% dauðaslys 11% 25% *) 1976 fyrir ísland.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.